Bjallan - 01.11.1943, Page 2

Bjallan - 01.11.1943, Page 2
Hannes «101188011: Samvinnan, sagan og stjórnmálin ísland er lítið land og þjóðin fámenn. Öld fram af öld lifðu hér víkingar og höíðingjar miklir. Þeir voru menn stórhuga og snjallir jafnt til.víga sem almennrar stjórnsemdar. Með þeim þróaðist ljóðagerð og ritlist svo af bar. Frelsið og sjálfræði manna var í öndvegi. Hvarvetna var velgengni og allsnægtir, því samfara sjálfs- forræðinu blómgvaðist hagur og þroski þjóðar- innar. En einn var sá þjóðarlöstur, sem með lands- fólkinu bjó. Þessi löstur var sundrungin. Og það var þessi þjóðarlöstur, sem framar öllu öðru varð þess valdandi, að íslendingar seldu af hendi sjálfsforræði sitt um miðja 13. öld. Vegna henn- ar er öll ógæfa þjóðarinnar sprottin. Hún varð þess valdandi, að þjóðin varð að þola áþján og kúgun grannþjóðar sinnar um margra alda skeið. Vegna hennar var traðkað á réttindum og sjálfstæði landsmanna. Og vegna hennar hnignaði þroski og hagsæld þjóðarinnar, þar til allt sökk að lokum niður í eymd og vesöld. í nærfellt fimm aldir varð þjóðin svo að þola hinar dýpstu raunir. Allt lagðist á eitt með að kyrkja dug hennar og þroska. En í rökkurrofi niðurlægingarinnar bar hún gæfu til þess að eign- ast syni, sem í senn voru djarfir hugsjónamenn, skeleggir baráttumenn og lagnir að sameina þjóðina til átaka. Þessum mönnum tekst um tíma að hefta með henni erfðasynd feðranna, sundrunguna, svo að átök hennar fyrir frelsinu bera hægt og bítandi árangur. — Og ljóst er af sögunni, að þá fyrst réttir hagur þjóðarinnar aftur við, er hún fær að nýju hlutdeild í sínum eigin málum, og fær aftur að ráða nokkru um sinn eigin hag. Nú líða ár og dagar. Þjóðin fær viðurkenn- ingu fyrir fullveldi sínu og sjálfstæði (1918). Hún má að vísu ekki strax stofna sitt óháða lýðveldi. En að tuttugu og fimm árum liðnum frá fullveldisviðurkenningunni (1943), er henni gefinn kostur á að velja um frelsi eða áþján. Þetta síðasta tuttugu og fimm ára tímabil sögunnar, er örlagaríkt og margþætt. Með því hefst framsóknarskeið hinnar hrjáðu þjóðar. Umbætur við umbætur, framfarir og menntir, allt tekur þetta ævintýralegan fjörsprett. Menn vinna einarðlega saman að endurreisn og lag- færingum á því, sem aflaga fór undir áþján ófrelsisins. — Og sönn framfaraalda flæðir yf- ir þjóðlífið. Að vísu koma erfið tímabil á þessum árum, sem stafa af hagsveiflum, markaðstregðu eða aflabresti. En þjóðin bar gæfu til þess, að ráða svo með sér ráðum sínum, að umbótaathafnir og menningarlegar framfarir urðu ekki heftar þrátt fyrir það. En á miðju framsóknarskeiði þjóðarinnar sézt vígblika á lofti. Erfðasynd feðranna, sundrung- in, er að ná tökum á landsfólkinu aftur. í land- inu hefjast og þróast hinar grimmúðlegustu deilur og meiðingar. Sturlungaöldin endurspegl- ast í þjóðlífinu. „Huldir landsins verndarvætt- ir“ fá ekkert að gert. Pólitísk vígöld og varg- öld er orðið tákn tímanna. Hyggnum og óbundn- um mönnum óar við sundurþykkjunni og hinu stjórnmálalega siðleysi •— og það ekki að ástæðu- lausu. Allt bendir til þess, að þjóðin glati sínu innra sjálfstæði, þegar hún hreppir formlega sitt ytra. Fyrir dyrum þjóðarinnar er því vágestur sá, sem í gegnum aldirnar hefur elt landsfólkið eins og skuggi. Hann hefur ráðið hér húsum fyrr, og af því hlaut þjóðin sína raunalegu sögu. Ef því sundrungin ræður hér enn um stund, er ekki annað sýnna en að annað ófrelsis- og niðurlægingartímabil gangi yfir þjóðina, •— og hver þorir að fullyrða, að hún glatist ekki með öllu, ef til þess kemur? Hér er því „þunga þraut að vinna“ og það er ekki aðeins æskan, sem á leikinn, heldur líka „hin aldraða sveit“. Átök æskunnar einnar mundu ekki nægja til þess að losa núverandi húsráðanda þjóðlífsins, sundrungina, frá dyra- staf þjóðfélagsins. Allir íslendingar, eldri sem yngri, þurfa að leggja saman. Þeir eldri þurfa að ríða á vaðið strax. Þeir eru á vettvangi starfsins, en æskan almennt ekki tilbúin til þess, að taka þátt í því nú þegar. Hins vegar má engan tíma missa, ef allt á ekki að verða um seinan. Eðlilegast væri, að íslenzkir samvinnumenn hefðu forustuna um að sameina þjóðina í sjálf- stæðisbaráttu hennar fyrir sínu innra sjálf- stæði, sem hún sumpart er að glata og sumpart hefur þegar glatað. Þeir hafa kennt henni að standa saman um verzlunarmál sín og ýmis önn- ur hagsmunamál, með því að sýna henni gildi samvinnunnar í kaupskap. Nú ættu þeir að leitast við, að sýna henni gildi samvinnustefn- unnar sem þjóðskipulagsstefnu, og þar með vinna að því, að þjóðin komi fram sem órofin heild, sjálfstæð inn á við og sjálfstæð út á við. íslenzkir samvinnumenn þurfa að leggja drög að því, að móta hugarfar og lífsskoðanir þjóð- arinnar í öllum þjóðmálum, svo kjörorð sam- vinnunnar, sérhver fyrir alla, hefjist til önd- vegis meðal landsmanna, — því að þjóð með slíku hugarfari verður aldrei fórnað á altari sundrungarinnar. Skólaæska samvinnustefnunnar getur ekki 2 BJALLAN

x

Bjallan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjallan
https://timarit.is/publication/1843

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.