Bjallan - 01.11.1943, Page 4

Bjallan - 01.11.1943, Page 4
Samtíiitiigiir Gunna sér um sig. „Ekki á af ykkur að ganga piltunum í Sam- vinnuskólanum," sagði kunningi minn við mig, þegar hann frétti að skarð væri höggvið í okkar fríðu en fámennu kvenfylkingu. „Já,“ sagði ég, „en við, sem höfum aldrei haft af miklu að státa í kvennamálum, erum orðnir svo vanir við ólánið, að við sættum okkur furðu fljótt við þetta. — Og auk þess getum við glaðst með Gunnu, því að nú getur hún farið að taka einhverju bónorðinu, gift sig og alið fullt hús af fallegiun bömum." X+Y. Vísa. Ó, Sigga, ég é þig anda, svo sviphreina, bjarteygða og blíða, að birta um sál mína fer, Þú stúlkan mín forkunnar fríða, ef fengi ég þig til að standa við hlið mér í lífs löngum vanda, ég lifði sem konungur hér. Frosti. Skilnaður. Hann stóð þama í dyrunum og horfði á hana. Hún var ljósgeislinn í lífi hans, og hann fann, að lífið mundi vera einskis nýtt án hennar. Hún var svo góð og hrein og svo elskuleg. En hann vissi, að hann mátti til að fara. Hann átti að skilja við hana; skilja við þessar rauðu varair, sem hann hafði kysst. Hann stundi þungan, þegar hún kom til hans, til þess að kyssa hann enn einu sinni. Hún lagði hvíta armana um háls honum; varir þeirra mættust. Loks reif hann sig lausan og stökk örvinglaður út á göt- una; já, hann varð að fara. í síðasta sinni veif- aði hún vasaklútnum til hans. Þau voru nýgift, og hann var að fara ofan á pósthús, til að kaupa tvö tíu-aura frímerki. Frosti: Sorgleg ástarsaga. Það var einu sinni maður. Hann var ástfang- inn í stúlku — En stúlkan bjó langt, langt í burtu, svo maðurinn gat ekki haft samfundi við hana. Þess vegna leiddist honum. í örvæntingu sinni og leiðindum hugkvæmd- ist honum að senda henni bréf. Ekki bónorðs- bréf. Nei, Heldur bréf almenns eðlis, sem þó var þrungið umhyggju og ást. Hann vænti svars og beið lengi, lengi í kitl- andi spenningi og óvissu. En hann fékk ekkert svar — sem og vænta mátti, því bréf hans komst aldrei til stúlkunnar. Póstþjónninn týndi því á leiðinni. Þrílyftur mannheimur. Á efstu hæð húsa hafa þeir búið, sem erft hafa ríkidæmi og alizt upp mikinn auð. Þeir hafa jafnan verið stærsta hætta heimsins og þröskuldurinn á vegi þjóða inn í friðarríkið. Á miðhæðinni hafa miðlungskjaramenn búið. Þeir hafa oftast orðið miðlimgsmenn í athöfn- um og afrekum. Á neðstu hæðinni hafa þeir menn fæðst og alizt upp við örbirgð, sem orðið hafa afburða- menn, bjargvættir þjóða, brautryðjendur nýrra hugsjóna, Ijós heimsins og leiðtogar kynslóð- anna. (Errago. Lögberg). A: „Þér eruð sá maður, sem skrifað hefur flestar vitleysurnar um æfina.“ B: „Þorið þér að mæla slíka ósvífni í votta viðurvist?“ A: „Eruð þér ekki margra ára hraðritari þingsins?“ Auðmaðurinn (á myndlistarsýningu expression- ista): Heyrðu ráðgjafi, hvað táknar þessi mynd? Ráðgjafinn: Hum! Það er sjálfsagt landlags- mynd að vetrarlagi — svart að ofan og hvítt að neðan — já, það hlýtur að vera. — Skrambi lagleg mynd. Þú ættir að kaupa hana. Auðmaðurinn: Hún er dæmalaust falleg — en hvað er þetta? Hún stendur á höfði? Ráðgjafinn: Nú, ég held að þú segir satt. Svona eru nú augun mín orðin. — Jú, nú sé ég það. Þetta er sjálfsagt landslagsmynd að sumar- lagi — og hreint ekki ólagleg. — Þú ættir samt að kaupa hana. (!!!) Sendibréf. Kæra vina mín! í dag kyssti Albert mig í fyrsta sinn. Ó! Sú tilfinning. Mér fannst ég vera að synda í kampavínspolli, eða að gullflær með demants- fótum skriðu um mig alla. Ég er ólýsanlega hamingjusöm. Mér liði ekki betur þótt ég sæti karlvega á friðarboganum og væri að ríða beint inn í himnaríki. (!!!) Sölustjóri „Bjöllunnar“ er: Óskar Þorkelsson. 4 BJALLAN

x

Bjallan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjallan
https://timarit.is/publication/1843

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.