Bókaskrá Bóksalafélags Íslands - 01.12.1960, Blaðsíða 2
Arsæll Arnason
var fæddur 20. des. 1886 í Narfakoti í Njarðvíkum. Foreldrar hans
voru Árni Pálsson bóndi og barnakennari og kona hans Sigriður
Magnúsdóttir. Hann nam bókband hjá Guðmundi Gamalíelssyni
og stundaði framhaldsnám í Stokkhólmi og Berlín. Hann kom
heim 1913 og setti þá á stofn bókaverzlun í Kirkjustræti 10, en
keypti nokkru síðar hús Halldórs Þórðarsonar við Laugaveg 4
og rak þar bókaverzlun og bókband um 15 ára skeið. En bóka-
útgáfu rak hann í 20 ár. Fyrsta bókin, sem hann gaf út var
Fornólfskver 1923, en sú síðasta Til Heklu 1943. — Hann þýddi
sjálfur og gaf út allar ferðabækur Vilhjálms Stefánssonar og Til
Heklu, bók Alberts Engströms. Þá gaf hann út öll verk Ben.
Gröndals, svo og Nonna-bækumar og sitthvað fleira. — Ársæll
fékk verðlaun fyrir bókband á sýningu í Stokkhólmi 1912. Hann
var heiðursfélagi í Iðnaðarmannafélagi Reykjavíkur. — Ársæll
lézt í Reykjavík 9. janúar 1961.
Skammstafanir:
Eftirfarandi skammstafanir eru notaðar í skránni:
Fcp. 8vo F8 16.5X10.2
Cr. 8vo C8 18.4X12.1
Post 8vo P8 20.3X12.7
Demy 8vo D8 21.6X13.7
Med. 8vo M8 22.2X14
Cr. 4to C4 24.1X18.4
Royal 8vo R8 24.8X15.2
Demy 4to D4 27.9X21.6
Royal 4to R4 30.5X24.8
M.m. = með myndum.
* (stjama) við verð bókar merkir, að hún sé í bandi.
Stefán Stefánsson tók bókina saman.
Prentsmiðjan Leiftur * Reykjavík