Suðri - 04.07.2019, Síða 12

Suðri - 04.07.2019, Síða 12
12 4. júlí 2019 Auðbrekku 6 · Kópavogi · Sími 565 8899 · www.normx.is Við hjá NormX höfum framleitt heita potta fyrir íslenskar aðstæður í yfir 30 ár. Við bjóðum fjölda gerða og lita ásamt öllu því sem tilheyrir til að koma sér upp glæsilegum heitum potti á verði sem kemur skemmtilega á óvart. Snorralaug Gvendarlaug Grettislaug Unnarlaug Geirslaug Við seljum lok á alla okkar potta. NormX hitaveitupottar Það er alltaf rétti tíminn að eignast vandaðan heitan pott á hagstæðu verði. ÍSLENSK FRAMLEIÐSLAÍ YFIR 30 ÁR www.normx.is Nýr veruleiki í mótun? Komin er út ný skýrsla um félagsleg þolmörk íbúa á Suðurlandi gagnvart ferðamönnum og ferðaþjónustu en hún er lokaafurð áhersluverkefnis Sóknaráætlunar Suðurlands. Rannsóknin fór af stað haustið 2017 og var unnin af Þorvarði Árnasyni og Arndísi Láru Kolbrúnardóttur hjá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Hornafirði. Helsta markmið verkefnisins var að afla upplýsinga um viðhorf íbúa á Suðurlandi gagnvart ferðaþjónustu og greina þannig þolmörk íbúa gagnvart ferðamönnum og ferðaþjónustu út frá hinum ýmsu þáttum í innviðum samfélagsins. Einnig var markmiðið með að afla þessara upplýsinga að fá fram stöðumat og þar með forsendu til ákvarðanatöku til að bregðast við ef þurfa þykir. Könnuð voru viðhorf íbúa til ýmissa þátta ferðaþjónustunnar, bæði í landshlutanum í heild en einnig tekin fyrir sérstaklega uppgangssvæðin Bláskógabyggð, Mýrdalshreppur og Sveitarfélagið Hornafjörður. Ýmis jákvæð og neikvæð viðhorf komu fram og meðal þeirra jákvæðu voru efling atvinnulífs, sköpun nýrra starfa, fjölgun íbúa, bætt lífskjör og aukin lífsgæði. Það sem helst kom fram sem neikvæð áhrif voru meiri og hættulegri umferð á þjóðvegum og aukið álag á ýmsa grunnþjónustu, svo sem heilbrigðisþjónustu og löggæslu. Rannsakendur telja að á heildina litið megi álykta að áhrif af völdum ferðaþjónustu – og þá hvort heldur jákvæð eða neikvæð – þurfi ekki að birtast með sama hætti í öllum byggðarlögum, jafnvel þótt umfang ferðaþjónustunnar sé af sömu stærðargráðu. Munur á staðbundnum aðstæðum getur þannig ráðið miklu um hvort viðhorf til einstakra áhrifa af völdum ferðaþjónustunnar verði jákvæð eða neikvæð. Greining tækifæra og ávinnings af friðlýsingu svæða Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Eva Björk Harðardóttir, formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, skrifuðu í dag undir samning á Selfossi um greiningu tækifæra og áhrifa friðlýstra svæða á Suðurlandi. Verkefnið er ein aðgerða í Byggðaáætlun 2018-2024 en er einnig hluti af stefnu ríkisstjórnarinnar um sérstakt átak í friðlýsingum. Verkefnið byggir á greiningu á hagrænum áhrifum friðlýstra svæða sem Hagfræðistofnun Háskólans hefur unnið fyrir umhverfis- og auðlindaráðuneytið. Veitt er 7 milljónum til verkefnisins. Sambærileg verkefni verða unnin í öðrum landshlutum. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga óskuðu eftir innsendum tillögum að svæðum frá hagaðilum innan landshlutans. Út frá þeim tillögum sem bárust er stefnt að tveimur verkefnum í landshlutanum. Annars vegar um verndun jarðvætta (e. geosites) í Kötlu jarðvangi, einkum þau svæði sem metin eru alþjóðlega mikilvæg. Hins vegar um svæði vaðfugla í Skarðsfirði og á leirum með aðkomu Náttúrustofu Suðausturlands. Greindar verða mögulegar sviðsmyndir fyrir svæðin til að leggja mat á möguleg hagræn áhrif ef svæðin yrðu friðlýst eða verndun þeirra aukin. Loks verða mótaðar hugmyndir um þróun svæðanna og möguleg tækifæri þeirra. ,,Það gleður mig að sjá Sunnlendinga nú komna í hóp með Austfirðingum sem vilja greina tækifærin sem geta skapast með friðlýsingu svæða. Nýleg rannsókn Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, sem unnin var í tengslum við átak í friðlýsingum, sýnir glöggt hvaða efnahags- og samfélagslegi ávinningurinn af friðlýstum svæðum getur verið mikill þegar hver króna sem lögð er til friðlýstra svæða skilar sér 23 sinnum til baka”, segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. www.sass.is

x

Suðri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Suðri
https://timarit.is/publication/1143

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.