Íslensk bókatíðindi - 01.12.1976, Qupperneq 29
BÓKAFORLHGSBJEKUR
Það er óhætt að segja, að nú hefur höfundur metsölubók-
anna HÓTEL, GULLNA FARIÐ (AIRPORT) og BlLABORG-
IN sent frá sér eina af sínum mest spennandi skáldsögum.
Hér kynnumst við margvíslegri starfsemi bankamanna bak
við tjöldin, og þó að hér sé fjallað um banka í Ameríku,
þá er eins og ýmislegt komi íslenzkum lesanda býsna
kunnuglega fyrir sjónir. Forstjóri stórfyrirtækis býður
bankastjóranum með sér í einkaþotu til afslöppuna á sól-
arströndum — og semur í leiðinni um stórlán handa fyrir-
tæki sínu. Sólarferðin heppnast ágætlega — en þegar frá
líður fara málin að vandast, því fyrirtækið verður gjald-
þrota og bankinn tapar tugum milljóna.
Ef einhver heldur að hann kannist við þessa sögu, þá
er það hrein tilviljun, því BANKAHNEYKSLIÐ er nýjasta
skáldsagan eftir hinn heimsfræga skáldsagnarithöfund
Arthur Hailey, sem kann þá list að gera sögur sínar svo
líkar raunveruleikanum og jafnframt svo spennandi, að les-
andinn er sem á nálum meðan á lestrinum stendur.
Sigurd Hoel Þorbjörg frá Brekkum Ármann Kr. Einarsson
UPPGJÖRIÐ TRYGGÐA- FRÆKILEGT
Raunhæf og spennandi PANTURINN SJÚKRAFLUG
ástarsaga frá Noregi. Það var ást við fyrstu sýn. Úr bókaflokknum um Árna og Rúnu í Hraun- koti.
Guðmundur Þorsteins-
son frá Lundi Ingibjörg Sigurðardóttir Jenna og Hreiðar
HUGSA DÝRIN? BERGLJÓT JÓN ELÍAS
Kjörin bók handa dýra- vinum. 17. ástarsaga höfundar. Úrvals barnabók.
Páll H. Jónsson
Úr Djúpadal
að Arnarhóli
Þetta er sagan um aldamótamanninn og at-
hafnamanninn HALLGRlM KRISTINSSON,
fyrsta forstjóra Sambandsins, sem ruddi sér
braut til frægðar og frama með einstæðum
dugnaði, viljaþreki og atorku. Hallgrími auðn-
aðist að lyfta mörgum Grettistökum fyrir sam-
vinnuhreyfinguna meðan hans naut við, en
hann andaðist fyrir aldur fram, aðeins 46 ára.
Þetta er stórfróðleg og vel skrifuð ævisaga,
prýdd fjölda mynda.
Bókaforlag Odds Björnssonar