Íslensk bókatíðindi - 01.12.1974, Blaðsíða 1

Íslensk bókatíðindi - 01.12.1974, Blaðsíða 1
ÍSLENSK BÓKATÍÐINDI ÚTGEFANDI: BÓKSALAFÉLAG ÍSLANDS • NR. 1 1974 íslendinga sögur með nútíma stafsetningu I—IX í útgáfu íslenzkufræðinganna Gríms M. Helgasonar og Vésteins Ólasonar Út eru komin átta fyrstu bindin af þessari einu heildarútgáfu íslendinga sagna, sem prentuð er með nútíma stafsetningu og því aðgengileg öllum, sem njóta vilja þessa merki bókmenntaarfs þjóðarinnar til fulls. í þess- um átta bindum eru allar Islendinga sögur og þættir, en í níunda þind- inu verður nafna- og atriðisorðaskrá, en sú skrá er alger nýlunda við útgáfu fslendinga sagna. „Aðeins með þvi að laða útgáfur þannig að kröfum samtímans verða íslendinga sögurnar sígilt lestrarefni eins og góðar skáldsögur. Sá á að vera sess þeirra." — Andrés Kristjánsson I Tímanum. „Þegar menn þlaða í textanum skilja þeir fljótt, að ritháttur skiptir i raun og veru máli. — Það fer ekki hjá því að hinn gamli, samræmdi ritháttur var fráhrindandi að ýmsu leyti, ekki sízt ungu fólki.“ Árni Bergmann í Þjóðviljanum. Eignist þessa einu heildarútgáfu sagnanna, sem prentuð er með þeirri stafsetningu sem við lesum og skrifum I dag. SfclB 0® SMHSl te Skemmtilegar bækur um þjóðleg efni; sögur, sagnir og kveðskapur víðs vegar að af landinu: SKRUDDA I—III, Ragnar Ásgeirsson SÖGUR OG SAGNIR ÚR VESTMANNAEYJUM, Jóh. Gunnar Ólafsson SÖGUR OG SAGNIR ÚR BOLUNGARVÍK, Finnbogi Bernódusson SÖGUR OG SANGIR AF SNÆFELLSNESI, I—II, Oscar Clausen AFTUR ( ALDIR, I—III, Oscar Clausen SÖGN OG SAGA I—III, Oscar Clausen ÚR FARVEGI ALDANNA I—II, Jón Gíslason ÞJÓÐLEGAR SAGNIR, Ingólfur Jónsson frá Prestsbakka Allar eru þessar bækur góður viðauki við áður prentuð sagnasöfn og allar eru bækurnar fróðlegar og skemmtilegar. SKUGGSJÁ Strandgötu 31, Hafnarfirði

x

Íslensk bókatíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslensk bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1846

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.