Íslensk bókatíðindi - 01.12.1976, Síða 31
HORNSTREND-
INGABÓK
Aukin og endurskoðuð
- að miklu leyti nýtt verk
Hornstrendingabók kom út áriS
1943 og vakti þá þegar mikla at-
hygli. Greinir þar frá byggða-
lögum og náttúru Hornstranda og
mannlífi þar um slóðir langan ald-
ur, harðri lífsbaráttu fólksins í
þessum afskekkta og hrjóstruga
landshiuta, en jafnframt sérstæðri
menningu þess og einkennilegum
háttum. Drjúgur hluti bókarinnar
er sagnaþættir og þjóðsögur af
Hornströndum, og tekst höfundi
að bregða sterku Ijósi á liðnar
aldir.
Nú hefur Hornstrendingabók verið
gefin út á ný í endurskoðaðri
og aukinni gerð höfundar og auk-
ið i hana fjölda mynda gömlum
og nýjum. Er hin nýja útgáfa í
þremur bindum og að miklu leyti
nýtt verk. Bindin bera heitin, Land
og líf, Baráttan við björgin og
Dimma og dulmögn. Fjórir nýir
kaflar eru í bókunum, þeir eru
Hvalveiðar, Mótorbátaútgerð t
Sléttuhreppi, Fiskimið Aðalvík-
inga og sagnaþátturinn Rauður
logi í Rskavík.
Heildarendurskoðun höfundarins
og hinar nýju svipmiklu rjtsmíð-
ar stækka að mun hina sérstæðu
mynd af átthögum hans og
gera sögu þeirra tilkomumeiri
og snjallari. Hlýtur Hornstrend-
ingabók að teljast eitt af merki-
legustu átthagaritum í íslenskri
tungu og frábært rit vsgna fróð-
leiks og snilli Þórleifs Bjarnasonar.
Þegar bókin kom út 1943 var
enn byggð í Sléttuhreppi og á
Hornströndum, en níu árum síðar
var sveitin komin í eyði.
Finnur Jónsson alþingismaður tók
allar þær landslagsmyndir sem
voru í fyrri útgáfu. Þær birtast
allar aftur auk fleiri mynda eftir
Finn. Hjálmar R. Bárðarson vann
allar myndir Finns upp að nýju.
Þá eru tugir mynda eftir Hjálmar
sjálfan, en hann fór um Strandir
árið 1939 og tók þá fjölda mynda
sem nú birtast í fyrsta sinni.
Myndir þeirra Finns og Hjálmars
eru hinar sögulegustu, enda sýna
þær hið horfna mannlif á Strönd-
um og eru teknar á síðasta snún-
ing áður en byggðin lagðist i eyði.
GÓDBÓK ER GULLI BETRI
Örn og Örlygur, Vesturgötu 42. Simi: 25722