Vestfirðir - 17.01.2019, Síða 14
14 17. janúar 2019
i-t.isOpið virka daga frá 9 til 18
laugardaga 11 til 14
Ármúla 31 - Sími 588 7332
Fyrstur kemur, fyrstur fær!
TAKMARKAð MAGN
20%
afsláttur af
speglaskápum
50%
afsláttu
r af
Scanbath
handklæðaofnum 45%
afsláttu
r af
Gala
eldhústækjum
70%
afsláttu
r af
Stálvöskum
15%
afsláttu
r af
ljósaspeglum
20%
afsláttu
r af
Gala
blöndunartæ
kjum
17%
afsláttu
r af
upphengdu salerni 10-20%
afsláttur af
handlaugum
50%
afsláttu
r af
fylgihlutasetti
20%
afsláttu
r af
baðkarshlífu
m
20%
afsláttu
r af
baðkörum
50%
afsláttu
r af
Sápupumpusettu
m
15-70%
afsláttu
r af
baðinnréttin
gum
- m
argar gerðir
Útsala
VIÐ UPPHAF NÝS ÁRS
Árið 2018 var baráttuár á
Vestfjörðum eins og svo
mörg önnur ár. Baráttan
nú snýst um þann sjálfsagða rétt
Vestfirðinga til sjálfærrar nýtingar
náttúruauðlinda svæðisins. Það er
ekki ný barátta en hún hefur breyst.
Vestfirðingum svíður enn hve áhrif
kvótakerfisins léku byggðirnar grátt án
þess að stjórnvöld gripu til framsýnna
mótvægisaðgerða og nýsköpunar til
að efla sjávarbyggðirnar. Nú standa
Vestfirðingar frammi fyrir stórum
tækifærum sem haft geta mikil
jákvæð áhrif á samfélögin á svæðinu.
Þau tækifæri felast í sjálfærri nýtingu
náttúruauðlinda, að rækta hina bláu
akra fjarðanna og bjóða gestum að
njóta einstakrar fegurðar svæðisins
auk þróunar í hefðbundnum
sjávarútvegi og hógværri nýtingu
orkuauðlinda svæðisins.
Tækifærin sem felast í uppbyggingu
fiskeldis á Vestfjörðum eru mikil.
Hins vegar þarf að vanda það sem
lengi á að standa þannig að áherslur
Vestfjarðastofu hafa verið á að styðja
við langtímahugsun við uppbyggingu
arðbærrar atvinnugreinar. Þar kemur
á óvart fálæti hins opinbera sem síður
en svo hefur lagst á árarnar með
Vestfirðingum við þá uppbyggingu.
Áherslur í lagasetningu í fiskeldi
virðast allar miða að því að hefta
vöxt fiskeldis frekar en að mörkuð
sé stefna til framtíðar sem tryggi
sjálfæran vöxt atvinnugreinarinnar.
Ótrúlega lítill vilji virðist einnig
vera á að horfa til þess að læra af
nágrönnum okkar Færeyingum og
skoða það sem vel er gert þar. Lítill,
en hávær hópur fólks sem sett hefur
sig upp á móti uppbyggingu fiskeldis
virðist eiga auðveldara með að ná
eyrum og athygli ráðamanna en
Vestfirðingar.
Fálæti hins opinbera gagnvart
Vestfjörðum sést vel í því hve langa
og stranga baráttu hefur þurft til
að fyrirtæki í fiskeldi fái eðlilega
afgreiðslu leyfisumsókna. Fálætið
sést einnig berlega þegar kemur að
umgjörð greinarinnar, rannsóknum,
leyfismálum og eftirliti sem byggt
er upp víða um land en alls ekki
á Vestfjörðum. Nýlega auglýsti
Matvælastofnun starf á sviði
fiskeldis með starfsstöð á Selfossi.
Hafrannsóknarstofnun hyggst í trássi
við útgefnar yfirlýsingar fyrrum
Sjávarútvegsráðherra byggja upp svið
fiskeldismála í Reykjavík.
Innviðir svæðisins hafa setið á
hakanum og staðan er sú í byrjun árs
2019 að enn sér ekki fyrir endann
á endurbyggingu á 70 ára gömlum
vegi um Gufudalssveit og því er
suðursvæði Vestfjarða eina byggð
landsins með yfir 1000 íbúa sem þarf
að fara yfir illfæran malarveg hluta
leiðarinnar til Reykjavíkur. Ótrúlegt
er að hlusta á málflutning um að
Vestfirðingar séu að njóta forréttinda í
samgöngumálum eins og heyra mátti
Kristján Má Unnarsson segja í þætti
á Bylgjunni nýlega. Þá gleymist alveg
forsagan þar sem Vestfirðir hafa, með
áratuga aðgerðaleysi við uppbyggingu
innviða, verið nánast dæmdir úr
leik. Innviðir í raforkumálum hafa
einnig setið á hakanum og hvorki
framleiðsla eða dreifing á orku styður
við uppbyggingu atvinnulífs og
fjölgun íbúa.
Það gleymast einnig í þessari
umræðu þau gríðarlegu verðmæti
sem eru í húfi. Þannig getur
markviss uppbygging fiskeldis
skapað á Vestfjörðum yfir 1000 störf
og 65 milljarða útflutningstekjur á
ári. Uppbygging Vestfjarðavegar 60
mun skila okkur Íslendingum nýjum
hringvegi, Hringvegi 2, sem verður
nýr valkostur fyrir ferðamenn sem
sækja Ísland heim og skapa verulega
aukningu í tekjum af ferðaþjónustu á
svæðinu. Ný kalkþörungaverksmiðja
í Súðavík getur skapað allt að 30
störf og verulegar útflutningstekjur.
Vestfirðir eru því sannarlega land
tækifæranna á fjölmörgum sviðum
ef rétt er gefið.
Það voru því samgöngu, orku og
atvinnumál sem sett voru á oddinn
fyrsta starfsár Vestfjarðastofu en
byggðamálin í heild sinni eru einnig
framarlega á verkefnalistanum
enda hefur Vestfjarðastofa
annast verkefnisstjórn fyrir
verkefnið Brothættar byggðir
bæði í Árneshreppi og á Þingeyri.
Málefni Árneshrepps hafa verið
mikið í fjölmiðlum á árinu. Þar
ber hæst málefni væntanlegrar
Hvalárvirkjunar sem einnig hefur
mætt mikilli andstöðu nánast
sama hóps og sett hefur sig upp
á móti uppbyggingu fiskeldis og
veglagningar um Gufudalssveit.
Svo langt var seilst í þeim slag að
tilraun var gerð til að hafa áhrif á
sveitarstjórnarkosningar með því að
nokkur fjöldi fólks flutti lögheimili
sitt í hreppinn í aðdraganda kosninga.
Athygli vakti að sú misnotkun á
lýðræðinu hafði ekki nægilegt vægi
til að minnst væri á það í annál RÚV
fyrir árið 2018.
Það er þó þrátt fyrir allt svo að ef
rétt er gefið er framtíð Vestfjarða
björt. Einstök náttúra og umhverfi
Vestfjarða er góður grundvöllur
blómlegs atvinnu og mannlífs.
Vestfirsk samfélög eru varðmenn
náttúrunnar og sveitarfélög á
svæðinu hafa umhverfisvottun
Earth Check. Fjölmörg fyrirtæki
á svæðinu hafa að auki gæða og
umhverfisvottanir. Sjávarútvegurinn
sem hefur um aldir verið grundvöllur
atvinnulífsins verður það áfram en
ræktun blárra akra, hógvær virkjun
vatnsfalla og ferðaþjónusta sem rekin
er á forsendum sjálfærni og gæða
eru þær stoðir sem Vestfirðingar
vilja bæta við og byggja til framtíðar.
Samfélög eiga rétt á að geta með
sjálfærum hætti nýtt auðlindir sínar
og slík nýting er forsenda búsetu á
svæðinu.
Við áramót tíðkast að líta um öxl
og gera upp liðið ár. Árið 2018 var
fyrsta starfsár Vestfjarðastofu sem var
formlega stofnuð 1. desember 2017.
Vestfjarðastofa er sjálfseignastofnun
sem hefur það hlutverk að styðja
einstaklinga, fyrirtæki, félagasamtök
og sveitarfélög á Vestfjörðum við
að ná árangri á sviði nýsköpunar og
atvinnuþróunar. Vestfjarðastofa er
í forsvari gagnvart stjórnvöldum,
sinnir markaðssetningu og
svæðasamstarfi á Vestfjörðum.
Jafnframt er Vestfjarðastofu ætlað
að samþætta krafta landshlutans,
fylgja eftir hagsmunum umhverfis,
samfélags og efnahagslífs byggðanna
og stuðla þannig að öflugum og
sjálfærum Vestfjörðum.
Á fyrsta ári starfseminnar hefur mikill
tími og orka farið í að móta starfsemi
nýrrar einingar og samþætta verkefni
þeirra tveggja eininga, skrifstofu
Fjórðungssambands Vestfirðinga og
Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða,
sem sameinuð voru undir merkjum
Vestfjarðastofu. Vestfjarðastofa
annast nú rekstur skrifstofu
Fjórðungssambands Vestfirðinga og
stuðning á sviði atvinnuþróunar og
nýsköpunar.
Efst í huga framkvæmdastjóra
eftir fyrsta árið er þakklæti til
starfsfólksins sem lagt hefur á
sig ómælda vinnu þetta árið. Án
þeirra væri Vestfjarðastofa ekki
til. Stjórn stofnunarinnar ber líka
að þakka. Pétur Markan fylgdi
Vestfjarðastofu úr hlaði sem fyrsti
stjórnarformaðurinn og sló með
framsýni og kjark þann tón sem
fylgt hefur verið í starfseminni. Á
Fjórðungsþingi í byrjun október
var ný stjórn Fjórðungssambands
Vestfirðinga kjörin og þar með
fimm af níu stjórnarmönnum
Vestfjarðastofu. Hafdís Gunnarsdóttir
varð þá nýr stjórnarformaður
Fjórðungssambands Vestfirðinga og
Vestfjarðastofu.
Við hefjum árið 2019 með bjartsýni
og kraft að leiðarljósi.
Hafdís Gunnarsdóttir,
stjórnarformaður Vestfjarðastofu
Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir,
framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu
Hafdís Gunnarsdóttir,
stjórnarformaður Vestfjarðastofu
Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir,
framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu