Vestfirðir - 17.01.2019, Qupperneq 6
6 17. janúar 2019
R LEIÐIN ÚR SÖGUNNI
Eftir að umferðaröryggismat
á mismunandi vegkostum
í Gufudalssveit var birt
virðist vera fullljóst að R leiðin er
úr sögunni. Sú leið fékk falleinkunn
í öryggismatinu og því getur
Vegagerðin ekki látið framkvæma
hana. Vegamálastjóri Bergþóra
Þorkelsdóttir hefur sagt alveg skýrt að
lög komi í veg fyrir slík áform. Það er
einfaldlega bannað með lögum. Vegir
„skulu uppfylla kröfur sem gerðar
eru með tilliti til öryggis umferðar,
ástands vega, merkinga og annarra
þátta sem kveðið er á um í lögum
þessum.“ Vilji Reykhólahreppur halda
R leið til streitu þarf að breyta leiðinni
og þá verður einfaldlega til A3 , sem er
útfærsla Vegagerðarinnar á R leiðinni,
enda hefur Vegagerðin frá upphafi
sagt að R leiðin væri með miklum
ágöllum og það yrði að lagfæra þá ef
ætlunin væri að halda henni til streitu.
R- leiðin langverst í
umferðaröryggi
Úr skýrslu um umferðaröryggismat
fjögurra leiðakosta.
Kostnaðarlega er ÞH leiðin
ódýrust. Hún kostar um 7,2 milljarða
króna en A3 leiðin er talin kosta 11,3
milljarða króna eða 4 milljörðum
króna meira. R – leiðin kostar ekki
minna en A3 leiðin, en til lítils er að
kostnaðarmeta hana óbreytta. Óvissan
er veruleg í mati á brúarkostnaðinum
við A3 og gæti kostnaðurinn hækkað
umtalsvert þegar betri upplýsingar
liggja fyrir. D2 leiðin er dýrust, 6
milljörðum króna dýrari en ÞH
leiðin.
ÞH leiðin er fullfjármögnuð
í tillögu að samgönguáætlun sem
verður afgreidd á Alþingi innan fárra
vikna. Verði A3 leiðin valin verður
ekki hægt að setja framkvæmdaferli
í gang. Það mun vanta a.m.k.
fjóra milljarða og erfitt verður að
áfangaskipta verkinu og láta hluta þess
bíða þar til síðar þegar fjármagn fæst.
Annar vandi við að velja A3 leið er
að tímatöfin verður svo mikil að bæði
Vegagerðin og Alþingi munu þurfa að
taka ákvarðanir um ráðstöfun fjárins ,
7 milljarða króna, til annarra brýnna
verkefna sem verður hægt að vinna og
ljúka á meðan beðið er eftir því að A3
komist á framkvæmdastig.
REYKHÓLAR: R – LEIÐINNI MÓTMÆLT
Á mánudaginn var sveitarstjóra Reykhólahrepps afhentur undirskriftalisti
þar sem mótmælt er að R leiðin verði valin. Undir mótmælin skrifuðu
95 manns, þar af eru 623 með lögheimili í hreppnum og 33 utan hans,
en það eru fasteigna eða jarðeigendur eða reka fyrirtæki í hreppnum.
Textinn er svohljóðandi:
Kristján Þór Eberneserson, bóndi á Stað sagði í samtali við Bæjarins besta að
hann teldi að meirihluti væri fyrir því í hreppnum að mótmæla R leiðinni. Íbúar
í Reykhólahreppi voru 259 í byrjun ársins, þar af tæplega 200 á kjörskrá. Um
þriðjungur atkvæðibærra íbúa í sveitarfélaginu hefur þannig lagst formlega gegn
áformum um að velja R – leiðina og setja hana í aðalskipulag.
Til samanburðar þá voru 52 undirskriftir í fyrravor, 8. febrúar 2018 fyrir
R leiðinni á undirskriftalista sem þá fram kom. Flestir þeirra eiga lögheimili
á hreppnum, en þó ekki allir. Undirskriftasöfnunin hafði þá þau áhrif á
hreppsnefnd Reykhólahrepps að fresta því að framfylgja samþykkt um ÞH
leiðina og leitað var til Multiconsult um skýrslugerð.
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR &
UNDIRKERFI
VILTU AUGLÝSA Í VESTFJÖRÐUM?
AUGLÝSINGASÍMINN ER 578-1190
AUGLÝSINGADEILDIN ER OPIN
ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 9:00 – 17:00