Vestfirðir - 17.01.2019, Síða 4

Vestfirðir - 17.01.2019, Síða 4
4 17. janúar 2019 Þann áttunda mars á síðasta ári samþykkti hreppsnefnd Reykhólahrepps með 4 atkvæðum gegn 1 að „lleið Þ­H verði lögð til grundvallar í aðalskipulagstillögu vegna breytingar á aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006 ­ 2018 vegna vegagerðar um Vestfjarðarveg 60, Bjarkalundur að Skálanesi.“ Þá var talið að komin væri loksins niðurstaða í val á veglínu. Í aðdraganda fundarins sagði sá eini sem var á móti, í opinberu viðtali, að málið þyldi ekki frekari tafir og að niðurstaða yrði að fást. Það kom svo í ljós að það átti bara við ef niðurstaðan yrði „rétt“ og Þ­H leiðin var ekki „rétt“. Hófst nú nýr tafaferill sem staðið hefur síðan og miðar að því koma í veg fyrir Þ­H leiðina. Í þessari viku er gert ráð fyrir því að sveitarstjórnin ógildi leiðavalið frá 8. mars 2018 og velji R leiðina, leið sem er óframkvæmanleg. Þá verður málið í þeirri stöðu, að óbreyttu, að ekkert mun gerast næstu árin. Það er misskilningur hjá hreppsnefndarmönnunum á Reykhólum að þeir ráði vegagerð. Það er ríkið sem gerir það og Vegagerðin fyrir hönd þess rannsakar og velur leið. Ríkið á vegina , borgar þá og heldur þeim við. Sveitarfélagið leggur ekkert til. Sveitarstjórn getur neitað Vegagerðinni með því að gefa ekki út framkvæmdaleyfi og gera ekki viðeigandi breytingar á skipulagi. En það þýðir ekki að Ríkið verði að leggja vegina eins og sveitarstjórnin mæla fyrir um. Vegalög Í 28. grein vegalaga segir eftirfarandi: Ákveða skal legu þjóðvega í skipulagi að fenginni tillögu Vegagerðarinnar að höfðu samráði Vegagerðarinnar og skipulagsyfirvalda. Fallist sveitarfélag ekki á tillögu Vegagerðarinnar skal það rökstyðja það sérstaklega. Þó er sveitarfélagi óheimilt að víkja frá tillögu Vegagerðarinnar ef það leiðir til minna umferðaröryggis en tillagan felur í sér. [Skal Vegagerðin þegar við á leggja fram mat á umferðaröryggi mismunandi kosta við vegarlagningu nægilega tímanlega til að skipulagsnefnd geti tekið afstöðu til matsins við mótun aðalskipulagstillögu.]  Vegalög eru lög. Sveitarstjórnarmenn verður að hlíta lögum rétt eins og aðrir þegnar landsins. Þarna segir í fyrsta lagi að lega vegar skuli ákveðin að fenginni tillögu Vegagerðarinnar. Tillagan liggur fyrir og er um Þ­H leið. Sú tillaga var unnin í samráði fyrir Reykhólahrepp og að kröfu hans. rökstuðningur enginn Þá segir í öðru lagi að sveitarstjórn skuli rökstyðja það sérstaklega ef ekki er fallist á tillöguna. Fyrir liggur að leiðtogar hreppsnefndar hafa samþykkt í skipulagsnefnd hreppsins að setja R leið inn á aðalskipulag. Þetta þarf að rökstyðja sérstaklega. En rökstuðingurinn er afar fátæklegur: „Ljóst er að samfélagslegir hagsmunir Reykhólahrepps og umhverfissjónarmiðum verði best borgið með R­leið. Undirritaðir telja að umhverfisáhrif Þ­H leiðar séu það umfangsmikil að sú leið verði aldrei fær“ Þetta stendur ekki undir því að geta kallast rökstuðningur. Umhverfismat fyrir R leiðina hefur ekki farið fram en þær athuganir sem gerðar hafa verið á fyrri stigum hafa leitt til þeirrar niðurstöðu að umhverfisáhrif verði mikil og slæm. Eina leiðin til þess að vita betur er með því að láta framkvæmda fullburða umhverfismat. Það eru engin gögn sem styðja fullyrðinguna að umhverfissjónarmiðum verði best borgið með R – leið. Meira að segja hreppsnefnd Reykhólahrepps andmælti ekki Vegagerðinni á sínum tíma þegar ákveðið var að leggja frekari skoðun á umræddri leið á hilluna. Seinni hluti rökstuðningsins er aðeins mat tveggja mat um að Þ­H leiðin verði aldrei fær vegna umhverfisáhrifa. Það er líka í andstöðu við fyrirliggjandi gögn og afstöðu flestra þeirra sem komið hafa að málinu. Umferðaröryggi Þá segir í lögunum að sveitarstjórn er óheimilt að víkja frá tillögu Vegagerðarinnar ef það leiðir til minna umferðaröryggis en tillaga Vegagerðarinnar. Þetta liggur fyrir eftir öryggismatsúttekt á þeim fjórum möguleikum sem hafa verið nefndir. Þar kom Þ­H leiðin best út, það er með mest umferðaröryggi. En R – leiðin kom langverst út, var sem sé hættulegasti kosturinn. Þetta þýðir einfaldlega að óheimilt er að velja R­ leiðina. Það er lögbrot. Þeir tvímenningar hafa ekki lagt fram nein gögn um öryggi R leiðina sem breytir öryggismatsútektinni. Þeir einfaldlega láta sem lagaákvæðið komi þeim ekki við. Út í ófæruna Gangi það eftir, sem virðist fyrirsjáanlegt, að hreppsnefndin samþykki tillöguna um R­leiðina kemur upp staða sem er algert einsdæmi. Valin veglína sem enginn er til þess að framkvæma. Hefja þarf ferli um breytingar á skipulagi og auglýsa þær. Þá mun Vegagerðin væntanlega mótmæla tillögunum og benda á vegalögin. Það er vandséð hvernig Skipulagsstofnun getur hleypt tillögunum áfram og mun ekki geta staðfest þær. Málið er sjálfdautt og á þá eftir að líta til andófs og mótmæla þeirra annarra sem leggjast gegn R – leiðinni. Sveitarstjórnin hefur engan framkvæmdaaðila til þess að standa straum af kostnaði við umhverfismat og skipulagsbreytingar. Kostnaður við Þ­H leiðina er orðinn um 430 milljónir. Hver ætlar borgar hundruð milljóna króna við algerlega nýtt ferli sem mundi taka mörg ár? Svarið er skýrt. Enginn. Ekki einu sinni Hagkaupsbræður eða annað innlent auðvald. En Vestfirðingar munu líða fyrir þvermóðskuna Kristinn H. Gunnarsson LEIÐARI 1. tölublað, 8. árgangur Útgefandi: Fótspor ehf., Suðurlandsbraut 54 , 103 Rvk. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason. Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason sími 824-2466, netfang, amundi@fotspor.is. Auglýsingar: Sími: 578-1190 & netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri: Kristinn H. Gunnarsson, sími: 892-7630, netfang: kristinn@kristinn.is. Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Dreifing: Íslandspóstur. Vefútgáfa PDF: www. fotspor.is FRÍBLAÐINU ER DREIFT Í 3.400 EINTÖKUM Á ÖLL HEIMILI OG FYRIRTÆKI Á VESTFJÖRÐUM Anað úr ófæruna – Vestfirðingum til ómælds skaða Vestfirska vísnahornið Vísnahornið hefst með framlagi Indriða Aðalsteinssonar, Skjaldfönn sem kemur velortur undan jólum. Gefum honum orðið: Best er að taka kveðskapinn í tímaröð og byrja um vetrarsólstöður: Orða bundist ekki get og því fagna mikið. Hársbreidd eða hænufet hefur myrkrið vikið. Rúmlega tvö þúsund Norðmannaheyrúllum var skipað út á Hólmavík. Norðmenn eflast hratt af heyjum, hjálpa verðum þessum greyjum, enda væri illur skellur, ef að bústofn þeirra fellur. Og svo sigldi rúlluflutningaskipið: Rúllur hafa lagt frá landi, líklega í góðu standi. Norðmenn fagna út í eitt. Ekki þurfi að fækka neitt. Jólakveðja til Eiríks og Bjargar á Grænhóli á Barðaströnd. Gott er á Grænhól. Glóir þar oft sól. Fagurt og bjart ból. best er þar um jól. Strandamaðurinn sterki fékk vist í heiðurshöllinni. Strandamanna sómasveinn, sanna met hans öll. Öðrum fremur ekki neinn á að búa í höll. Þá er komið að áramótum. Ekki er kostur okkar rýr, yfir töfrum framtíð býr. Lengir dag, þá léttast spor. Láttu hug þinn dreyma vor. Skaupið fór misjafnlega í fólk. Aðalsteinn bóndi á Klausturseli í Jökuldal fagnaði á fésbók, fögrum og Gnarrlausum morgni með endursýningu skaupsins að baki. Upp er risinn afar fagur hjá Aðalsteini Gnarrlaus dagur. Ekki vill hann aftur sjá ófétið á sínum skjá. Eftirmáli: þessi vísa segir ekkert um álit mitt á Jóni Gnarr eða skaupinu. En það eru fleiri umdeildur á ferðinni en Gnarrinn. Vellygni Bjarni frár á ferð, fantur af allra verstu gerð. Auðvinaklíku hyglar hann helst, með að gefa Landsbankann. Það hefur aldrei þótt góð búmennska að selja eða slátra bestu mjólkurkúnum sínum. Ráðsmennskan er raunaleg. Reynist okkur Bjarni dýr. Fari allt á versta veg vantar okkur bráðum kýr. Mér blöskraði og var hugsað til granna minna í Árneshreppi hvað samgöngur varðar, þegar Reykhólamenn héldu því fram á netinu að byggð þar myndist leggjast af fengju þeir ekki væntanlegan veg um hlaðið hjá sér. Páll Eyþór Jóhannsson á þriðju og fjórðu hendingu í eftirfarandi limru: Teigsskógi gerður var greiði í gegnum hann ágætis leiði. Það raunar má sjá, en raunalegt smá, að Reykhólar leggjast í eyði. Meira af vegamálum Barðstrendinga. Eiríkur Jónsson er harður Teigsskógsmaður. Eiríkur er fær um flest. Fjármanninn ég þekki best. Er einn af mörgum þörfum þegnum sem þræða vilja Teigsskóg gegnum. Þjóðkunn kvæði má vel aðlaga nútímanum svo sem í Hlíðarendakoti eða fyrr var oft í koti kátt eftir Þorstein Erlingsson. Fyrr var oft í Klaustri kátt, karlar ræddu saman. Drukku fast og höfðu hátt. Hentu að konum gaman. Yfir glasi uxu þar einatt skrýtnar sögur. Þegar væflast var á bar vetrarkvöldin fögur. Þegar hríðarkastið um helgina var gengið niður og orðið bjart fylgdist ég með svartþrestinum mínum sem settist að í trjágarðinum í haust, hamast við að hakka í sig kjötafskurði í hlaðvarpanum, ætlaði honum og tófunum og datt þá í hug að þessi vaski fugl ætti nú alveg skilið eina vísu. Litli svarti kjánakall, kvikur um sig ber. Þrauka vill sá vinur snjall veturinn hjá mér. Endum þetta með vísu um veðrabrigðin sem útlit er fyrir að verði fram að næstu helgi. Oss hefur vorið yfirgefið. Austankári bítur nefið. Yfir höfuð hött skal draga og halda sig inni næstu daga. Gleðilegan þorra. Sláum botn í vísnahornið að þessu sinni með vetrarsólstöðuvísu frá Jóni Atla Játvarðssyni, hagyrðingnum snjalla á Reykhólum, en þá var veðrið annað og betra en síðustu daga: Við mér sólin brosir björt og bauð mér góðan daginn. Undir morar moldin svört og magnar blómahaginn. Með góðum vetrarkveðjum Kristinn H. Gunnarsson. VETRARSÓL Á STRÖNDUM „Vetrarsól á Ströndum’’ er lítil notaleg hátíð með tónleikum, kvöldvöku, sögugöngu og fleiru. Fyrsta hátíðin hefst á morgun og stendur yfir dagana 18.­20. janúar 2019. Dagskrá hátíðarinnar sjálfrar verður þannig: 18. janúar – föstudagur kl. 8:30 – 9:30 – Grunnskóli Hólmavíkur Selló­Stína kveður og kennir rímnalög. 18. janúar – föstudagur kl. 20:30 – 21:30 – Hólmavíkurkirkja íslensk þjóðlög og sönglög, meðal annars við texta ljóðskálda úr Dölunum og af Ströndunum. – Jóhanna Ósk Valsdóttir, söngur. Bjartur Logi Guðnason, píanó/orgel. Íris Dögg Gísladóttir, fiðla. Kristín Lárusdóttir, selló. 19. janúar – laugardagur kl. 15:00-16:00 – Sauðfjársetrið „Bábiljur og bögur í baðstofunni’’ „Ungir sem aldnir koma saman í baðstofunni. Fólk getur unnið við eigið handverk, hlustað á sögur, langspil og kveðskap og tekið þátt í samsöng um leið og vöffluhlaðborði er skolað niður með kaffi, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum.’’ 19. janúar – laugardagur kl. 20:30 – Bragginn á Hólmavík Hinn þjóðkunni og stórskemmtilegi Svavar Knútur spilar og skemmtir af sinni alkunnu snilld. 20. janúar – sunnudagur kl. 11:00 – Kaffi Galdur (fyrir utan) Söguganga með Jóni Jónssyni þjóðfræðingi. Hægt að kaupa heita og góða súpu eftir gönguna á Kaffi Galdri.

x

Vestfirðir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.