Heima er bezt - 01.10.2007, Blaðsíða 29
'AÍð húsið sem Hitler
'dutýpti af systur sinni.
Gríðarlegur Jjöldífólks \
fiiþiir þess að sjá Hitler
'f)regðá, jýrir. ' "
lóð Hitlers. Tveggja metra há girðing var
reist í kringum lóðina sem Hitler dvaldi á
og var það varið af lífvörðum hans. Ibúar
Oberzalzberg, sem bjuggu áþessu svæði
foringjans, voru reknir burt eða fluttir á
aðra staði í Berchtesgaden.
Og geta má nærri að ekki var þessi
snögga og afgerandi aðgerð framlcvæmd
með neinum silkihönskum.
Og árið 1935 hófst gríðarleg uppbygging
á svæðinu, svo líkja má við æði. Haus
Wachenfeld var breytt í miklu stærra hús
og hét eftir það Berghof, sem kannski
mætti þýða sem Fjallabýlið. Settar voru
á það miklar útitröppur, sem ífægar
urðu og gríðarstór gluggi á sérstöku
ráðsteíhuherbergi í því, sem einnig varð
ffægur síðar.
Enda var svo orðið er hér var komið
sögu, að Hitler var orðin ígildi stórstjömu
í landi sínu, fólk streymdi á svæðið í von
um að sjá honum bregða fýrir á svölum
húss síns. Kom reyndar fýrir að hann kom
út og heilsaði upp á mannfjöldann þegar
hann var þama staddur, en brátt var talið af
leyniþjónustunni að þetta væri of hættulegt
og nauðsynlegt væri að girða svæðið alfarið
af. Mun þessi fólksstraumur hafa numið
mörgum þúsundum manna á dag, þegar
hæst lét.
Gistihúsið Tyrkinn, varð aðsetur
leyniþjónustunnar og hús fýrir
ríkislögregluna og lífVerði var byggt aftan
við það.
Aðrir toppar nasista byggðu sér líka
hús þama, svo sem Göbbels, Göring og
Bomiann, sem nýtti sér aðstöðu sína til þess
að vera sem næst foringjanum og hertók
stórt bamaheimili fýrir sig og fjölskyldu
sina. Albert Speer arkitekt þeirra, tók sér
líka hús þama.
Sagt er að öll þessi uppbygging á svæðinu
hafi kostað meira en hálfan milljarð evra
á núvirði.
Peningana til þess tók Bormann úr sjóði
sem kallaður var „Gjöf Adolfs Hitlers
til þýska efnahagslífsins“, og sem var
stjómað af Bonnann sjálfúm. Einnig
kom fé samkvæmt sérstöku ffamlagi ffá
nasistaflokknum, en hversu mikið það var,
var alltaf hulið móðu.
Neðanjarðarbyrgi tengdu svo Berghof
við mikilvægustu staðina, þar sem hægt
var að nálgast matvæli o.sv.ffv. og aðrar
vistir.
í kringum þetta allt safnaðist svo að
sjálfsögðu fjöldinn allur af opinbem
starfsfólki, embættismönnum jafnt sem
óbreyttum.
Útibú frá kanslaraembættinu í Berlín
var meira að segja sett upp í Stangass,
nálægt Berchtesgaden.
Hámark þessa byggingaræðis nasistanna
í Berchtensgaden var svo að sjálfsögðu
bygging hins svokallaða Amarhreiðurs,
sem um var á toppi fjallsins Kehlstein,
sem er um 1.800 metra hátt. Það var byggt
undirlagi Bormanns, en með því ætlaði
hann að upphefja sig í augum Hitlers, með
því að gefa honum þetta hús í afmælisgjöf,
þegar foringinn varð fimmtugur.
Þetta var gríðarlegt verkefhi, sem rekið
var áffam af hörku Bonnanns, og ekki of
mikill tími til stefnu fýrir afmæli foringjans.
Mikinn mannljölda þurffi í þetta verkefni
Jstrr'X
_ _
Frá fyrstu aðgerðum við vega-
lagningu upp á tind Kehlstein-
fjallsins, þar sem byggja átti
A rnarhreiðrið. Margvíslegir
erfiðleikar mœttu verkamönn-
unum, sem aðallega voru frá
Italíu og Tékkós/óvakíu.
>*•>
'■■ ..—•*
m
..
V.
Kofinn sem Hitler bjófyrst í, í
Berchtesgaden.
Heima er bezt 509