Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2007, Blaðsíða 32

Heima er bezt - 01.10.2007, Blaðsíða 32
Þorsteinn Jósefsson: Grímsey 1957 Land og lega Grímsey er blágrýtisklettur, sem rís úr hafi röskum 40 kílómetrum norður af Gjögri. Hún er sæbrött og hömrum girt allt um kring. Hæst er hún um miðbikið og nær þar rösklega 100 metra hæð, en þaðan hallar henni til beggja enda. Grímsey er 5.3 ferkm að stærð. Hún er um 6 km að lengd en um það bil tveggja km breið, þar sem hún er breiðust. Hún mjókkar til beggja enda og þó einkum til norðurs. Að austan er samfellt standberg, og þar er öll fuglabyggðin. Þar er bjargið hæst, 80—100 metra hátt, og þar er venjulega sigið eftir fugli og eggjum á vorin. Fuglabjargiö er einstaklega litríkt, mikiö af gróðri í því, einkum skarfakáli, en auk þess er bergið þéttsetið fugli á vorin og sumrin, og þaó setur sinn ákveðna svip á bjargið, lífgar og lýsir það upp. Að vestan er eyjan nokkru lægri, og á nokkrum stöðum skerast þar inn í hana víkur og vogar. Þar er lending eða höfn eyjarinnar, og þar er öll byggóin. Standa bæirnir í samfelldri röð uppi á sjávarkambinum, 10—15 metra yfir sjávarmáli. Víða er fagurt og sérkennilegt stuðlaberg í víkunum framan við bæina, en handan við þá, til austurs og norðurs, hækkar eyjan skyndilega, og þar taka beitilöndin við. í Grímsey er nyrzta byggð íslands, enda er eyjan talin öll norðan heimskautsbaugs. Þar hverfur sól ekki af lofti um þriggja vikna skeið um sólstöðurnar á vorin, og jafnvel í svartasta skammdeginu, þegar sólargangurinn er skemmstur, sést sólin svífa stundarkom yfir háfjöllum í suóurátt. Búsar. Þaó er nyrsti bœr í Grimsey og jafnframt nyrsti bœr á Islandi. Fuglabjörg og fuglalíf Það, sem aðkomumanni þykir tilkomumest og sérkennilegast í Grímsey, er miðnætursólin og fuglamergðin í bjarginu umhverfls eyna. Ef flogið er meðfram bjarginu, þá sér maður hvíta mekki þyrlast til lofts. í fyrstu sýnist þetta eins og reykský, sem rísa upp frá bjarginu í stefnu til himins, en við nánari athugun kemur í ljós, að þetta eru tugþúsundir og milljónir bjargfugla, sem styggzt hafa og hefja sig til flugs af ótta við hvin eða gný tröllfuglsins mikla - flugvélarinnar, sem nálgast með ægilegum hraða. En styggöin varir ekki lengi. Fuglinn er heimakær, og sér í lagi á vorin, á meðan hann liggur á eggjum eöa gætir unga sinna, og á skammri stundu er bjargið þéttsetið .aó 5 12 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.