Góðan daginn - 09.06.1944, Page 2

Góðan daginn - 09.06.1944, Page 2
2 GÖÐAN DAGINN NÝ HÚSALEIGUNEFND hefir verið skipuð hér í bænum, og var ekki vanþörf á slíkri framtakssemi. Hannes og Jón voru heldur slappir í framkvæmdum, en nú er Andrés orðinn formaður, röskur maður og ráð- snjall. Aðrir, sem nefndina skipa, eru þeir Gunnlaugur Sigurðsson og Trausti Reykdal. Nefndin er því í raun og veru ekki ný nema að einum þriðja, en sá þriðjungur er traustur. Trausti Reykdal er umbótamaður, sbr. draum- vísa á öðrum stað hér í blaðinu. Vera má, að stundum kunni að „rjúka í dalnum“ þegar þeir fara að vinna saman, Andrés og hann. en þá mun Gunnlaugur sá friðarins maður, kæfa þenn- an reyk. Vér óskum hinni ný-gömlu húsaleigunefnd til hamingju með starfið og óskum henni góðrar samvinnu við bæjarstjóra, bæjarstjórn og sam- borgara. ÚTBRUNNAK STJÖRNUR Hún skein mér um kvöld svo hýr og hlý, fékk hundrað prósent á sál minni völd, en svo birgði hana eitt skítugt ský, ég skeytti ei um hana meir það kvöld. Hún birtist mér síðar sem blys, er skín, sem blossandi eldur, svo skír og hreinn, en mikið skelfing ég skammaðist mín, er ég skildi, að sá eldur var fölskvi einn. Já, vandræði ljót þetta virðast mér, en því ver og miður, þá er það satt. að á himni sem jörðu ótal er af útbrunnum stjörnum, er skína glatt. Frá himneskum stjörnum geisla glóð enft í geimnum lifir, ég skil og finn. þær jarðnesku engan þann eiga sjóð, sem oftast í búðinni hjá Gesti fá ljóma sinn. s. m. Lýðveldiskosningarnar. Framhald af 1. síðu. Páll strengdi heit, að heimta sérhvern mann, er hefði rétt að kjósa, það hann efndi, og slíkum voða hamförum fór hann, að Hertervig víst fimmtán sinnum stefndi Lýðveldiskosningarnar eru gengnar um garð. Lýðveldið verður stofnað, stjórnarskráin sam- þykkt, forseti verður kosinn. Ný tíð rennur upp. Sátt og samlyndi, friður og eining, ríkjadeilu- mál hverfa. Ofstoparnir brjóta odd af oflæti sínu. Þeir, er hafa sofið, vakna. Kórónan hverf- ur úr skjaldarmerkinu. Draumvísa. Ritstjóra þessa blaðs dreymdi nýlega, að Trausti Reykdal kom að rúmi hans og mælti fram þessa vísu: Til umbóta á okkar jörð, ég hefi kraft minn lánað. Síðan ég kom í Sigluf jörð, solítið hefir ’ann skánað.' HROSSANÁLIN Ólafur hét rnaður og bjó í Rauðhúsum í Eyjar- firði. Hann kunni frá mörgu að segja. Eitt sinn sagði hann þessa sögu af sjálfum sér: Einu sinni sló ég mikið af hrossanál. Svo kom sunnan rok og öll hrossanálin fauk. Eg fann hana síðan alla saman, hún hafði stungizt niður á mjórri endann. Eg sló hana aftur og það var miklu betra að slá hana í seinna sinn. Ennþa nýjar bækur: Hótel Berlín Reg;nboginn Meyjarskemman Robinson Crúsóe Garðyrkjuritið 1944 Æfintýrabókin Litli svarti Sambo HANNES JÓNASSON Heilsurækt og mannamein. Nokkur eintök í bandi HANNES JÓNASSON

x

Góðan daginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Góðan daginn
https://timarit.is/publication/1868

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.