Kaupmennirnir og KRON - 15.10.1940, Side 2
2
Kaintmeimiriiir og RROX,
vö'runum, einkum þó, þegar
þess er gætt, að slíkt vexð var
fyrst í stað ekki auglýst eða á
nokkurn hátt tilkynnt af nein-
um öðrum verzlunum í bænum.
Þegar maður flettir blöðum
síðustu daganna, kemur í ljós,
að þau hafa gripið mjög mis-
jafnlega og sum í raun og veru
mjög einkennilega á þessum
málum. Mörg þeirra létu að
vísu ekki á sér standa að færa
neytendum þegar í stað þann
gleðiboðskap, sem felst í tíð-
indum um lækkað verð á lífs-
. nauðsynjum, en önnur tóku
þann kostinn að steinþegja
meðan Kaupfélagið var eitt um
að selja ódýrt, alveg eins og þau
gerðu ráð fyrir, að lesendur
þeirra varðaði litlu að vita, að
svo ódýr varningur stæði til
boða. Síðar — þegar kaupmenn
eru farnir að fljóta í kjölfar
Kaupfélagsins — þakka þessi
sömu blöð félagi matvörukaup-
manna mjög innilega fyrir verð-
lækkunina. S. 1. miðvikudag,
þegar kaupmenn höfðu í verki
viðurkennt þá staðreynd, að
ekki þýddi annað en að semja
verðlag sitt með nokkurri hlið-
sjón af verði Kaupfélagsins og
lúta þannig lögmálum frjálsrar
samkeppni, kemur fyrst hljóð
úr horni hjá einu blaðanna,
(Morgunblaðinu), sem áður
hafði forðast að minnast á all-
ar verðlækkanir Kaupfélagsins.
„MIKIL VERÐLÆKKUN Á
MATVÖRUM OG SYKRI,“ segir
það í feitletraðri fyrirsögn, en i
greininni, sem á eftir fer, er
hvergi getið um þátttöku KRON
í þeirri verðlækkun, hvað þá
heldur, að það hafi gengið á
undan kaupmönnum og verið
þeim til fyrirmyndar.
Sama dag — og þá fyrst —
birtist einnig grein í öðru dag-
blaði (Vísi), um verðlækkunina,
og er hún mjög í sama anda.
Allt gert til að láta líta svo út
sem að kaupmenn hafi haft for-
ystu í málinu en ekki Kaupfé-
lagið. Segir orðrétt í greininni:
„Eiga matvörukaupmenn:i: þakk-
ir skilið fyrir það, hve fljótt þeir*
hafa brugðið við og látið al-
menning njóta góðs af verð-
lækkuninni, einkum þar sem
fimm mánaða úthlutunin kom til
framkvæmda í gær.“
Þetta er lítið sýnishorn af
blaðamennskunni, að vísu þar
sem hún er einna bágbornust.
Rétt er jafnframt að taka það
fram, að sjálft útvarpið missti
* Leturbr. hér.
annan fótinn niður í sama
fenið og blöðin. Það minntist
vel og réttilega á haustmark-
að Kaupfélagsins, en þegar að
því kom að skýra frá verð-
lækkuninni á útlendu vörunum,
varð ekki annað ráðið af frétt-
inni en að kaupmenn væru
einir um þá lækkun.
En þetta getur maður kallað
nægjusemi hjá blöðunum með
frammistöðu kaupmanna og
furðu mikla þolinmæði hjá
þeim og útvarpinu, að bíða
með að segja frá jafn merkileg-
um tíðindum og stórkostlegri
verðlækkun á nauðsynj avörum
alla leið frá mánudegi til mið-
vikudags, unz kaupmenn eftir
töluverð fundarhöld höfðu kom-
ið sér saman um að ganga þann
veg, sem Kaupfélagið hafði vís-
að þeim.
V.
Neytendur í Reykjavík hafa
nú enn á ný fengið mjög greini-
legar sannanir fyrir því, hversu
nauðsynlegt það er, að þeir séu
sjálfir nokkurs ráðandi í verzl-
unarmálunum. Ennþá er í fersku
minni hin mikla verðlækkun á
matvörum, sem Kaupfélagið
knúði fram í árslok 1937, og enn
þá muna Reykvíkingar og ná-
grannar þeirra eftir kolainn-
flutningi Kaupfélagsins, sem
sannfærði kolakaupmennina til
bráðabirgða um það, að rétt væri
að selja kol með hóflegra verði
heldur en þeir höfðu gert fram
að þeim tíma. Hér er fátt tínt til
af dæmum, sem öll stefna að
sama marki. — En þessi nýjasta
sókn neytendasamtakanna á
hendur dýrtíðinni í Reykj avík er
notadrjúg röksemd til viðbótar
við það, sem áður er komið, til
að sanna það, að „sjálfs er hönd-
in holIust.“
Iimlánsdetlcl KRON
ávaxtar sparifé
f éla gsmaima
ges'n bcztu fáanlegu
vaxtakjörum.
Útg.: Kaupfélag Reykjavíkur
og nágrennis. •
Prentsmiðjan Edda h.f. — 1940
Skólaföt
< *
o
o
o
o
O
o
I >
(»
o
sanrnnð með stntt-
uiii fyrirvara.
Naumastofa k Ifi O \
Alþýðuhúslnu.
Inntökugjald í KRON er kr. IO.00
Engín samábyrgð er í íélaginu
r
I búðum KRON eru neytendurnír
húsbændur
&__
l Sjóstígvél
\ Karlmannaskór
;
: Barnaskór
Skóbúð KRON :
Bankastræti 2