Heimili og skóli - 01.08.1950, Qupperneq 10
78
HEIMILI OG SKÓLI
OLAFUR GUNNARSSON frá Vík i Lóm:
Hvernig lesum við?
*
Þetta finnst sennilega flestum les-
endum heimskuleg fyrirsögn og segja
sem svo, ef þeir annars segja nokkuð
um svona fjarstæðu, að á því sé ekki
mikill vafi, við lesum með augunum,
og þar með sé þessari aulalegu spurn-
ingu svarað.
Ef eg, í stað þess að spyrja lesendur,
hvernig þeir lesa, bæði þá að gera
grein fyrir, hvað þeir hefðu gert, hvað
þeir hefðu hugsað og hvernig tilfinn-
ingaástand þeirra hefði verið tvo síð-
astliðna daga, myndu þeir fljótlega
viðurkenna, að því gætu þeir ekki
gert grein fyrir. Allir, sem reyna slíkt,
komast að þeirri niðurstöðu, að bæði
umheimurinn og okkar eigið meðvit-
undarlíf séu svo flókin fyrirbrigði, að
engum hafi tekizt að lýsa þeirn, nema
að litlu leyti, enda ráðum við aðeins
yfir takmörkuðum orðaforða, til þess
að gera lýsingar fullkomnar.
í þessari grein mun ég leitast við að
skýra að nokkru leyti, hvernig við för-
um að því að lesa. Ég skal strax geta
þess, að hvorki ég né neinn annar er
fær um að lýsa heilastarfseminni út
í yztu æsar rneðan við lesum, af þeirri
einföldu ástæðu, að enginn veit enn
til hlítar, hvað gerist frá því augna-
bliki, er við skynjum lestrarefnið og
þangað til heilinn hefur unnið úr
þeim eggjendum, sem sjóntaugarnar
liafa fært honum.
Áður fyrr var haldið, að við læsum
þannig, að augun liðu jafnt og þétt
fram hjá lesmálinu. Nú vitum við, að
þannig er þetta ekki, og varð Frakk-
inn Javal fyrstur til þess að benda á,
að augun hreyfast í smástökkum, þeg-
ar lesið er, þannig, að augnastöðvanir
og augnahreyfingar skiptast stöðugt á.
Hjá æfðum lesendum taka augna-
hreyfingarnar 5—10% og augnastöðv-
anirnar 90—95% af lestrartímanum.
Lestrarefnið skynjum við meðan aug-
un standa kyrr, en meðan við færum
þau, er ekki um neina lesmálsskynjun
að ræða. Hver augnastöðvun tekur
1/20—1/10 úr sekúndu, en það velt-
ur bæði á hversu æfður lesandinn er
og hversu erfitt lesmál er um að ræða,
hvort augnastöðvun hans er löng eða
stutt. Hins vegar skiptir leturstærð
litlu máli. Orðafjöldinn í jafnþungu
efni er alltaf svipaður milli augna-