Heimili og skóli - 01.12.1955, Page 19
HEIMILI OG SKÓLI
127
sveitunum. Kennt á tveim, fjórum eða
sex stöðum. Skólatíminn allt ofan í
þrjá mánuði. Fátt um góð kennslu-
tæki. Spjöldin og grifflarnir jafnvel
ekki óþekkt fyrirbrigði, þó að hvergi
sæi ég þau í notkun.
— Eru ekki viðunanleg skólahús í
kaupstöðunum og kauptúnunum?
Ójú. Svo má það kalla. Nokkuð
mörg þeirra eru þó komin til ára
sinna, gjarnan of lítil og gamaldags á
ýmsan hátt.. Önnur hafa verið endur-
bætt, og á fáéinum stöðum eru nýleg
hús. Aðeins eitt er alveg nýtt (á Djúpa-
vogi), og er vel til þess vandað.
— Hve margir heimavistarskólar eru
á þessu svæði?
Þeir eru aðeins fjórir, og er ekki
hægt að segja, að yfirleitt sé vel að
þeim búið, hvorki með viðhald né
húsbúnað.
— Eru nokkurs staðar í smíðum
heimavistarskólar?
Einn að Eydölum í Breiðdal. Hann
á að verða fyrir Berufjörðinn líka. í
Eiðaskólahverfi er hafinn undirbún-
ingur að byggingu. Sá skóli á einnig
(í framtíðinni) að verða fyrir Hjalta-
staðaþinghá.
— Eru menn ekkert á móti heima-
vistarskólunum?
Það er misjafnt. Ýmsir eru búnir
að koma auga á þá sem einu skynsam-
legu úrlausnina, og þeim fjölgar smám
saman. Til sannindamerkis um það
má geta þess, að á tveim stöðum er í
vetur rekin heimavist og hafður
tveggja deilda skóli, þó að skólahúsið
vanti. Á báðum þessum stöðum eru
leigðar fjórar stofur til strafseminnar,
og vænti ég, að börnum og aðstand-
endum finnist munur á orðinn frá
því sem var.
— Hvar eru þessir skólar?
Annarr er að Felli í Breiðdal, en
hinn á Eyjólfsstöðum í Vallaskóla-
hverfi. Bændurnir á þessum stöðum
byggja svona myndarlega, að þeir geta
hýst heilan skóla. hvor um sig.
— En heiman-akstursskólar, eru þeir
nokkrir?
Nei, en þó er í ráði að gera tilraun
á tveim stöðum. Það er beggja megin
við Horfnafjarðarfljót.
— Eru nýju fræðslulögin víða komin
í gildi?
Nei, aðeins í kaupstöðunum og
stærstu kauptúnunum. Skiptar eru
skoðanir manna á þeim þar eystra,
eins og víða annars staðar.
í stærstu I(jarða-skólunum eru ung-
lingadeildir, og gagnfræðaskóli er á
Norðfirði. Og svo er Eiðaskóli. Hann
er vel sóttur, enda mun hann vera í