Heimili og skóli - 01.10.1968, Side 14

Heimili og skóli - 01.10.1968, Side 14
STEINGRÍMUR BALDVINSSON, Nesi Steingrímur Baldvinsson bóndi í Nesi og fyrrum kennari í ASaldal andaðist 11. júlí sl. Mér þykir tilhlýðilegt að rit þetta geymi örfá minningarorð frá samstarfsmanni um Steingrím. Við unnum saman að barna- kennslu í Aðaldal um árabil. Ýmsir aðrir, mér fremri, hafa minnzt Steingríms Baldvinssonar í ræðu og riti. Það vil ég ekki endurtaka. Þessvegna mun ég hér aðeins í stuttu máli gera grein fyr- ir, hvernig hann kom mér fyrir sjónir sem kennari, og hvernig hann reyndist í sam- starfi. Ég tel að Steingrími Baldvinssyni hafi verið margt gefið, sem prýðir kenn- ara. Hann var barnavinur. Honum leið vel í návist barna, einkum þeirra yngri. Hon- um var einkar lagið að leiðbeina. Viðmót hans laðaði börn, án þess hann gerði sér far um það sérstaklega að vinna hugi þeirra. Ég veit varla hvernig þetta gerðist, en þannig var það í reynd. Vafalaust hef- ur nokkru um ráðið það að hann gat ver- ið ágætur leikfélagi í hópi barna við ýmis tækifæri. Mönnum líður misjafnlega í návist ann- arra, jafnvel við fyrstu fundi, áður en byggt verður á kynnum. Svo ríkt er þetta stundum að menn kenna einhverskonar andúðar á vissum mönnum við fyrstu sýn, án þess að gera sér grein fyrir ástæðum, — en vellíðanar í návist annarra. Þetta fyrirbrigði er þekkt, t. d. meðal sjúklinga við heimsóknir ókunnra manna í fj ölbýlisstofur sjúkrahúsa. Steingrímur hafði næman skilning á sálarlífi barna. Þeim virtist líða vel í ná- vist hans. Hver kennari, sem slíkt hefur að bjóða, á mikla sigurmöguleika. Hann var vel máli farinn og rökvís og átti auðvelt með útskýringar við hæfi barna. Og hann var dagfarsprúður í umgengni, kunni vel að dylja skapbreytingar. Hann tók vægt á yfirtroðslum og óhlýðni nemenda, en hélt hinu fram, sem lofsvert var og vel gert. Haustið 1963 lét Steingrímur Baldvins- son af barnakennslu í Aðaldal, sjötugur að aldri, samkvæmt lögum um aldurstakmark embættismanna. Eftir það kom hann lítt 106 HEIMILI OG SKÓLI

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.