Heimili og skóli - 01.12.1969, Qupperneq 5
Heimilí
og
skóli
TIMARIT UM
UPPELDISMÁL
C>
Í
:
I
i
ÚTGEFANDl: KENNARAFÉLAG EYJAFJARÐAR
RitiS kemur út í 6 heftum á ári, minnst 24 síður hvert hefti,
03 kostar órgangurinn kr. 130.00, er greiðist fyrir 1. júlí. —
Útgúfustjórn:
Indriði Úlfsson, skólostjóri.
Eddo Eiríksdóttir, skólastjóri.
Jónas Jónsson, kennori.
Afgreiðslu- og innheimtumaður:
Guðvin Gunnlcugsson, kennari,
Vanabyggð 9, Akureyri.
Ritstjóri:
Hannes J. Magnússon, rithöfundur,
Hóaleitisbraut 117, Reykjavik.
PRENTSMIÐJA BJÖRNS JÓNSSONAR
HANNES
J.
MAGNÚSSON
GRUNMR PÍRAMÍDAIVS
Skólamál hafa verið í brennidepli nú um
nokkurt skeið og ber að fagna því. Skóla-
kerfið er eins og píramídi. Þar eru barna-
skólarnir hinn breiði grundvöllur, sem allt
hitt verður að hvíla á og öll önnur skóla-
menntun byggist á. Þá taka við almennir
framhaldsskólar og sérskólar og loks há-
skólinn. Málefni háskólans hafa einkum
verið á dagskrá á síðustu missirum, síður
hefur verið rætt um barnaskólastigið, sem
allt annað hvílir þó á. Þegar við byggjum
hátt hús, byrjum við ekki á turninum eða
þakinu, heldur grunninum og leggjum
áherzlu á að hafa hann sem traustastan.
Eins á að fara að, þegar við byggjum upp
skólakerfi, en þegar á allt er litið er barna-
skólastigið, eða skyldustigið kannski veik-
asti hlekkurinn í skólakerfinu. Ekki vegna
þess, að við eigum lélega barnaskóla og lé-
lega kennara. En barnaskólarnir okkar eru
of stuttir. Allt fram að þessum tíma hefur
verið gert ráð fyrir að 7—9 ára börn í
kaupstöðum fengju 9 mánaða skólakennslu
en börn ofar á skyldustiginu aðeins um 7
mánaða kennslu, og fjöldi barna enn þá
styttri, allt niður í þriggja mánaða kennslu
í dreifbýlinu.
Lágmarkið á að vera 9 mánaða kennsla
fyrir öll börn á barnaskólastiginu og jafn-
vel á öllu skyldustiginu. Þróunin er nú að
færast í þessa átt, að í Reykjavík og sum-
um kaupstöðum öðrum er 9 ára skólanám
fyrir öll börn upp tekið, eða er í undirbún-
ingi, svo að innan fárra ára ætti 9 ára skóli
HEIMILI OG SKÓLI 121