Heimili og skóli - 01.12.1969, Síða 6

Heimili og skóli - 01.12.1969, Síða 6
fyrir öll börn að vera tekinn upp í öllum kaupstöðum landsins, og þar næst kemur röSin aS kauptúnunum, aS minnsta kosti. En hvers vegna? Einfaldlega af því, aS grunnurinn undir skólakerfinu í nútíma þjóSfélagi er ekki nógu traustur. ÞaS telja sér sumir trú um, aS íslenzk börn og unglingar standi ekki aS baki jafnöldrum sínum, t. d. á NorSurlöndum aS menntun og almennri þekkingu. En þetta er aSeins blekking og óskhyggja. Þau standa á mörgum sviSum verulega aS baki börnum á NorSurlöndum, varSandi al- menna þekkingu og skólatækni. Þetta vita allir, sem eitthvaS hafa kynnzt skólum á NorSurlöndum. AnnaS væri líka óhugsandi. Börn okkur eru ekki þeim mun gáfaSri, en frændur þeirra á NorSurlöndum, aS þau geti tiIeinkaS sér sambærilega þekkingu á miklu styttri tíma, bæSi í árum og dagleg- um skólatíma. Þó aS viS færum meS allar deildir skólanna í 9 mánuSi, væri aSstöSu- munurinn samt enn mikill, þar sem skólar á NorSurlöndum standa tíu og hálfan mán- uS og auk þess miklu lengri daglegan skóla- tíma. Vegna þessa eru börn á NorSurlönd- um miklu betur búin undir allt framhalds- nám en okkar börn. Þannig hefur þessi ótrausti grundvöllur hjá okkur áhrif alla leiS upp úr skólakerfinu. ÞaS seinkar öllu, og hinn menntaSi einstaklingur kemst seinna til starfa í þjóSfélaginu en ella. Líka má benda á, aS þessi barnaskólaár eru ekki fullnýtt. 8. og þó sérstaklega 9. skólaáriS fara mjög í súginn. Á 9. skólaári mætti t. d. hyrja á einhverjum lesgreinum. SömuleiSis mætti nýta betur öll skólaárin þegar komiS er upp úr 9 ára bekkj um meS því aS sleppa eSa draga verulega úr þessum viSamiklu og tímafreku prófum, jafnvel tvisvar á ári, sem ekki hafa nokkra hagnýta eða menn- ingarlega þýSingu. Prófum milli bekkja mætti nálega alveg sleppa, eSa miSa viS 2—3 greinar, og mætti þaS gilda um allt skyldustigiS. Ef prófin eiga aS þjóna þeim tilgangi aS fylgjas meS getu og framförum nemend- anna, má á miklu auSveldari og einfaldari hátt ná þeim tilgangi, t. d. meS daglegum leynilegum einkunnagjöfum, eSa smápróf- um, sem ekki þyrftu aS setja allt skólastarf- iS á annan endann eins og nú er. Tímann, sem sparaSist mætti svo blátt áfram nota til aS kenna börnunum. I sambandi viS þetta vil ég láta þess get- iS, aS þaS ætti aldrei að fella neinn á próf- um, aS minnsta kosti ekki á skyldustiginu. ÞaS er nógu erfitt lífiS fyrir þeim, sem eiga viS námsörSugeika aS berjast, þótt skólinn gefi þeim ekki þennan kinnhest. Hitt er svo annaS og miklu lengra mál, hvernig og á hvern hátt, eigi aS hjálpa þessum nemend- um til aS skilja heiSarlega viS skólann á sínum tíma, án sársauka og niSurlægingar. Sjálfsagt munu framhaldsdeildir viS gagnfræSaskóIana bæta þarna úr þeim þekkingarskorti, sem börnin búa yfir þrátt fyrir kennsluna á skyldustiginu, kannski ágæta kennslu, eftir atvikum. En þaS er fullseint. ÞaS er kannski liSinn hjá bezti tíminn 9—15 ára aldurinn, þegar næmiS er í hámarki, næmiS, til aS tileinka sér hin léttari grundvallaratriSi almennrar mennt- unar, svo aS ekki þurfi aS byggja á sandi, þegar tekiS er til viS hin erfiSari viSfangs- efni á hærri stigum skólakerfisins. Sé þaS æskilegt t. d. aS menn taki stúdentspróf einu ári fyrr en nú er, verSur þaS varla meS öSru móti en því að auka við grund- vallarmenntunina meS fyllri barna- og unglingaskólamenntun. AuSvitað eru hin löngu sumarleyfi óskaplega elskuleg og hafa auk þess tals- vert menntunar- og menningargildi, ef 122 HEIMILI OG SKOLI

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.