Heimili og skóli - 01.12.1969, Blaðsíða 7

Heimili og skóli - 01.12.1969, Blaðsíða 7
nemendurnir eiga þess kost að' komast í sveit og í snertinguna við náttúruna og at- vinnulífið, en sá möguleiki fer nú minnk- andi með ári hverju, meðal annars með sí- vaxandi vélvæðingu landbúnaðarins, og að sama skapi fjölögar þeim börnum og ungl- ingum, sem ganga aðgerðarlaus um götur bæjanna. En jafnvel þótt börn og ungling- ar hefðu möguleika á að komast í sveit, verður ekki bæði sleppt og haldið. Hér er um það að ræða hverju við viljum fórna til þess að börn okkar fái haldgóða og trausta undirstöðumenntun og þekkingu, sem sé sambærileg við það, sem gerist á öðrum Norðurlöndum. Eigum við að halda langa sumarleyfinu og þar með hafna góðri og traustri grundvallarmenntun barna okk- ar? Þetta er mikilvæg spurning, sem stjórn- völd og allur almenningur í landinu verður að svara fyrr eða síðar. Ef það verður ofan á, að sumarleyfið verði stytt verulega, má gefa börnunum leyfi, allt að viku til að fara í göngur og réttir, jafnvel til að taka upp garðávexti að haustinu, ef þurfa þykir. Því meira sam- bandi sem hægt er að halda við sveitirnar og atvinnulífið þar, því betra. Seinna mætti svo hugsa sér að lengja skólann í 10 mánuði á ári. Bezt er að taka þetta í áföngum, svo að þetta geti komið sem þróun, en ekki nein stökkbreyting. En þetta kemur, og hlýtur að koma. Ég geri ráð fyrir, að þetta og svipaðar breytingar mæti einhverjum mótmælum í fyrstu, en það gera allar breytingar. Hið sama hlýtur að gerast með ýmsar breytingar á kennslu- háttum, námsbókum og kennsluaðferðum. Þessi lenging á skólatímanum hefur einn- ig þann kost, að hún ætti ekki að valda neinum verulegum útgjödum. Skólahús- næðið bíður ónýtt, og það út af fyrir sig er ámælisvert að láta dýrt skólahúsnæði standa ónotað í marga mánuði á ári. Sömu- leiðis eru kennararnir til, sem yfirleitt ganga atvinnulausir í fleiri mánuði, ef þeir fá þá ekki einhverja aðra atvinnu við ó- skyld störf.. Kennararnir eru menntaðir til að gegna kennslu- og uppeldisstörfum. Gef- um þeim kost á því, að sinna þeim störfum og búa sig undir þau. Kennararnir myndu að vísu eitthvað hækka í launum, en það kæmi uppeldis- og kennslumálunum sannar- lega að góðu. Kannski hefur það verið eitt- hvert mesta mein okkar í skóla- og uppeld- ismálum alla tíð, að við höfum ekki fengið úrval manna inní kennarastöðurnar vegna þess, hve kennararnir hafa verið illa laun- aðir, svo að jafnvel fjöldi kennara hefur kosið að velja sér aðrar stöður. Þetta hef- ur meðal annars valdið langvarandi og seigdrepandi kennaraskorti, sem hefur haft neikvæð áhrif á öll skóla- og kenslumálin í landinu, svo og á allt uppeldi. Notum hið dýra skólahúsnæði til að kenna í því, og notum kennarana, sem hafa búið sig undir það starf, til að mennta og fræða börnin okkar og unglingana. Það er fjárfesting, sem borgar sig, ef allt er með felldu. Það borgar sig sannarlega að byggja traustan grunn undir hárri menningarhöll, sem við vonum öll, að eigi eftir að rísa meðal okkar. H. J. M. GLEÐILEG JÓL! FARSÆLT KOMANDI ÁR! HEIMILI OG SKOLI 123

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.