Heimili og skóli - 01.12.1969, Qupperneq 8

Heimili og skóli - 01.12.1969, Qupperneq 8
Stafsetning og stílagerð Móðurmálið hefur verið og á alltaf að verða höfuðnámsgrein barnaskólanna. Eg hygg líka, að hún sé vel rækt í aðalatriðum og til hennar er varið meiri tíma en nokk- urrar annarrar námsgreinar. Þetta er eins og það á að vera, en ég hef oft hugsað um það, og ekki sízt eftir að ég hætti að starfa í skólanum, að mér hefur þótt sem skriflegu íslenzkunni hafi ekki verið nægur sómi sýndur, einkum stílagerðinni. Stafsetningin hefu ralltaf setið þar í fyrirrúmi, hvernig sem á því stendur. Á stundatöflunni eru kannski tveir eða þrír tímar í stafsetningu, en ekki nema einn í stílagerð, það er að segja frumsömdum ritgerðaæfingum, kannski er svo bætt við þetta einni heima- ritgerð. Það eru gefnar út bækur um rétt- ritun og leiðbeiningar til að stafsetja orð- in rétt, en miklu minna um hitt, hvernig nemendur eigi að koma orðunum í fallegar setningar og málfræðilega réttar. Ritvillur eru eins og óþrif í málinu, en klaufalegt og rangt málfar er sýking. Það er margt, sem hjálpast að við að gera setninguna að aðalatriði í kennslu hins skriflega móðurmáls, en eitt af því er, að börnin eru ekki látin byrja nógu snemma. Þau eiga að byrja á að setja saman létta stíla um leið og þau geta það skriftarinnar vegna, jafnvel áður en þau læra að skrifa, ef þau kunna prentstafina. Það er mjög á- ríðandi að gera þetta áður en þau komast á gagnrýnisaldurinn og þykir allt ómögu- legt, sem þau gera, Ef þau eru látin byrja nógu snemma að segja frá í skriflegu máli, komast þau fyrirhafnarlaust yfir þennan slæma þröskuld og skrifa og semja af hjart- 124 HEIMILI OG SKÓLI ans list. Þetta er geysilega mikilisvert. Annað, sem hefur komið því inn hjá kennurum, að mesta áherzlu beri að leggja á stafsetninguna eru prófin í skriflegri ís- lenzku. Þeim er þannig háttað, eins og kunnugt er, að villur í réttritunarverkefninu eru taldar og gefið fyrir nákvæmlega tölu rétt stafsettra orða — fyrir gitgerðirnar eða stílana er gefið eftir mati. Til að fá sem hæsta einkunn út, ég tala nú ekki um að komast hjá því að falla á prófinu, kemur það fyrir að reynt er að láta ritgerðina hækka meðaleinkunnina, nálega hversu lé- leg sem hún er. En hitt mun vera fátítt að stíll sé látin lækka einkunn. Á þennan hátt er miklu minna tillit tekið til stílsins en rétt- ritunaræfingarinnar. Stíllinn er því ekki eins rétthár og ritæfingin. Þetta mat fer ekki framhjá börnunum, sem finna, að það skiptir minna máli hvernig ritgerðin er en stafsetningarverkefnið. Þetta á að vera öf- ugt. Það á að leggja ritgerðina til grund- vallar, þegar verið er að gefa einkunnir fyrir skriflega íslenzku. Það er að vísu leiðinlegt að skrifa og lesa stíla, sem eru morandi af ritvillum, en hitt lýsir þó enn meira menningarleysi, að skila stílum, sem skrifaðir eru á ljótu, klaufalegu og röngu máli. Það á að byrja þessa kennslu þegar í sjö ára bekkjum með því að venja börnin á að segja frá. Láta frásagnargleðina njóta sín algjörlega í fyrstu en leiðrétta þó málið smátt og smátt. Með þessu myndast öryggi í frásögninni, sem færist svo yfir í frásögn- ina, þegar bömin fara að rita hana niður

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.