Heimili og skóli - 01.12.1969, Page 15

Heimili og skóli - 01.12.1969, Page 15
JT' A barnðheimilinu EFTIR CESELÍE OG JOHN MURPHY TILFINNINGALEGT ÖRYGGI Allir menn, bæði fullorðnir og börn, þarfnast öryggis. Mörg börn, sem koma á barnaheimilin okkar, hafa verið svikin í þeim efnum. Þörfum þeirra eftir öryggi og anddlegu samfélagi hefur ekki verið full- nægt. Oft lítur svo út, sem þau hafi ekki samband við einn eða neinn. Þetta öryggis- leysi koma þau með sér inn í barnaheimil- in. Þetta er eitthvert erfiðasta viðfangsefni barnaheimilanna, að endurvekja traust barnanna á hinum fullorðnu. Margt er hægt að gera í þessum efnum, þótt enginn geti bent á hina einu réttu leið til að koma börn- unum þarna til hjálpar. Allir fullorðnir menn hafa hver sína aðferð í samlífi við börn. Þar er ekki hægt að benda á neina eina aðferð, sem eigi við um öll börn. Hver verður að beita sínum aðferðum, sem eru í samræmi við persónuleika hans og skapgerð. Við vitum aðeins að köld, gróf og eintrj áningsleg framkoma getur ekki veitt barninu það öryggi, sem það þarfn- ast. Barn á ekki alltaf auðvelt með að tjá sig með orðum, svo að það kýs oft frekar að nota aðrar aðferðir til að gefa til kynna, hvers því sé vant. Sum börn gera kannski tilraun til uppreisnar til að vekja á sér at- Dagheimilisbörn. hygli. Við þekkjum öll „spyrjendurna“, sem spyrja og spyrja án þess að búast í raun og veru við að fá svar. Þetta gerir barnið til að kanna hvort það sé í raun og veru í sambandi við einhvern. Litlu börnin vilja sitja í fanginu á einhverjum, fá hjálp til að afklæðast og klæðast. I þeirra augum er öryggið fólgið í vissri líkamlegri snert- ingu. Það er þeim sönnun fyrir öryggi. Þarna höfum við í barnaheimilunum alveg sérstöku hlutverki að gegna varðandi allra minnstu börnin. Það sem kemur af sjálfu sér hjá móður, sem er með barni sínu all- an daginn er ekki eins auðvelt að uppfylla í barnaheimili. Hér er um að ræða atvinnu með reglubundinn vinnutíma, 8 stunda vinnu á dag. Hér verður því um að ræða síbreytilegt samband hinna litlu barna við annað fólk, sem getur verið mjög skaðlegt fyrir þau. HEIMILI OG SKÓLI 131

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.