Heimili og skóli - 01.12.1969, Qupperneq 16

Heimili og skóli - 01.12.1969, Qupperneq 16
Á barnaheimilinu. Það eru skiptar skoðanir um, hvernig eigi að leysa þennan vanda. En það er knýj- andi nauðsyn, að þetta verði tekið til rann- sóknar og umræðna. Svona síbreytilegt og slitrótt samband við þá, sem eiga að ann- ast barnið, skiptir minna máli, þegar börn- in fara að stækka. Þá eru þau ekki í sama mæli bundin við nálægð einhvers í tíma og rúmi eins og litlu börnin. Þau sætta sig við að um þau sé hugsað, og að þarna sé ein- hver, sem þekkir þau og skilur, og þetta veitir þeim visst öryggi. Auðvitað vilja börnin, að til þeirra séu gerðar kröfur, eftir aldri og þroska. Ef við látum aldrei í það skína að við séum ó- ánæg með sitt hvað í fari þeirra og fram- komu — eða þá ánægð, skýra þau það þannig, að okkur standi á sama um þau og við væntum ekki neins af þeim. Þetta verð- um við oft vör við. Ég held, að þetta hafi verri áhrif á þau og geri þeim lífið leiðara en flest annað. VIRÐING FYRIR EINSTAKLINGUM. MISMUNUR Á MÖNNUM. Á meðan barn er heima hjá föður og móður, veitir það litla eftirtekt mismunin- um á sér og öðrum mönnum. Það er ekki fyrr en barnið kemur út í hinn stóra hóp, sem það byrjar að gera samlíkingar. Sá, sem skilur sig að einhverju leyti frá hópn- um, finnur fljótlega til þess. „Þú skalt ekki vera öðruvísi en aðrir“. Þannig hljóða lög hópsins. Á barnaheimilum kemur það oft fyrir að eitthvert barnið á ekki samleið með öðrum einhverra hluta vegna. Böm geta oft sýnzt hjartalaus og tilfinningalaus. En venjulega er þetta þó oft vegna vöntun- ar á kunningsskap og skilningi, sem þetta gerist. Fullorðna fólkið getur gert mikið til að breyta þessari afstöðu, ef það gerir sér far um að útskýra samhengið og slær á hina viðkvæmari strengi hjartans. I bók 132 HEIMILI OG SKOLI

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.