Heimili og skóli - 01.12.1969, Blaðsíða 18

Heimili og skóli - 01.12.1969, Blaðsíða 18
anum eða atvinnulífinu, sem þeir halda að sé sá rétti, verðum við að sjá um, að þeir komist að sem lærlingar. Það er líka ágætt að hafa samband við kennara og atvinnu- rekendur til að komast eftir, hvort þeir hafi í raun og veru valið sér rétta hillu í lífinu. Ef þeir þrífast þarna ekki, ef þeir hafa val- ið skakkt, verða þeir að leita fyrir sér í annarri grein, eða öðrum skólaflokki. Það er algengt, að sá, sem greiðir fyrir barn í barnaheimili, krefjist þess, að barnið greiði eitthvað sjálft, þegar það fer að vinna fyr- ir kaupi. Þess munu einnig flestir foreldr- ar vænta af barni sínu, þegar það fer sjálft að vinna fyrir peningum. Stundum geta ris- ið vandamál, ef mismunandi sveitarfélag eða stofnanir greiða með börnum í barna- heimilum. Annars eru oft settar reglur um það, hve mikið börnin eiga að fá, hve mik- ið það á að spara og hve mikið það á að fá í vasapeninga. Það væri mikill ávinning- ur ef hægt væri að koma á sömu reglum fyrir alla, innan sama barnaheimilisins. (Ur bókinni Barnehjem — Hjem for barn.) H. J. M. þýddi. TIL GAMANS Auga jyrir auga. Þegar ungverski kommúnistaflokkurinn kom af stað harðvítugri auglýsingsatarfsemi fyrir sovésk læknavísindi varð til fjöldinn allur af gamansög- um þar um. Ein þeirra er þessi: I Moskvu var kona ein, sem hreinsaði fisk. Þá vildi það óhapp til að hnífurinn snerist í hendi hennar og lenti í auga konunnar. Það vildi kon- unni til láns, að þarna var við rússneskur augna- sérfræðingur. Honum tókst með skjótum aðgerð- um, að bæta konunni þetta tjón með þvr að taka augað úr fiskinum og setja það í konuna. Eftir nokkra daga hafði konan náð fullri sjón, þótt hún hefði áður ekki getað lesið nema með gleraugum. Sögumaður lauk frásögn sinni með því að segja: „Er hér nokkur, sem vill leggja fram spurningar?“ Ungverskur læknir stóð nú upp og sagði: „Það er ánægjulegt að heyra þessa frásögn, en svipað átti sér stað hér í Ungverjalandi. Það gerð- ist hjá héraðslækni einurn í afskekktu læknishér- aði. Mjaltastúlka ein varð fyrir því óhappi að skera af sér fjóra fingur í þreskivél. Nú var eng- inn frægur sérfræðingur viffstaddur, bara lítt þekktur héraðslæknir. Hann skar í snatri fjóra spena af einni kúnni og saumaði þá við hönd stúlkunnar. Eftir lítinn tíma höfðu spenarnir gró- ið við höndina, og það svo vel, að stúlkan varð umtalsverður píanóleikari. Þegar hún þurfti að fá sér að drekka, saug hún bara fingurna og streymdi þá úr þeim mjól'k, og fékk hið sósíalska þjóðfélag þannig ókeypis mjólk, hvorki meira né minna en 12 lítra á dag.“ „Hver hefur séð þetta?" spurði rússneski fyrir- lesarinn snöggt og hvatskeytlega. „Hún með fiskaugun," svaraði sá ungverski um hæl. ★ Við réttinn í Itzehoe rétt fyrir sunnan landa- mærin hefur fyrir skömmu verið kveðinn upp mjög einstæður dómur. Lyfjafræðingur einn hafði í ógáti afgreitt hægðapillur í staðinn fyrir p-pill- una, til konu einnar. Hann var dæmdur til að greiða hálft meðlag með barninu, sem varð til vegna þessa misgánings, til 18 ára aldurs, en for- eldrarnir áttu að sjá fyrir kostnaði við uppeldið að hálfu. Þetta var rökstutt með því, að lyfjafræð- ingurinn, sem afhenti lyfiff hefði vanrækt aff lesa það, sem stóð á glasinu. 134 HEIMILI OG SKOLl

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.