Heimili og skóli - 01.12.1969, Page 23

Heimili og skóli - 01.12.1969, Page 23
Aidortðhíð getor orðíð oð dlífð EFTIR GRAHAM PORTER Ég vil ekki fullyrða, að ég hefði bókstai- lega gaman af því að standa í því einn morgun að taka saman og dusta rykið af hinum margvíslegu leikföngum, sem börn- in mín höfðu haft með sér í sumarleyfið, en þau voru fjögur, frá þriggja til níu ára, og þessu þurfti ég svo að koma fyrir í bíln- um. Það var eiginlega kraftaverk að þetta tókst, að hafa lokið þessu á tilsettum tíma. En nákvæmlega á fyrirfram ákveðnum tíma, skellti ég farangursgeymslunni í lás, og þá vorum við tilbúin til heimferðar. Ég gekk þó aftur inn í sumarbústaðinn, þar sem kon- an mín var í óða önn að sópa saman sand- inum í síðasta sinn, sem borizt hafði inn á gólfið. — Sumarleyfi okkar við ströndina var lokið. „Klukkan er orðin hálf sjö — við verð- um að fara að koma okkur af stað,“ sagði ég. „Hvar eru krakkarnir?“ Eva, kona mín, lét kústinn á sinn stað. „Ég leyfði þeim að skreppa niður á strönd- ina. Þá langaði til að vera þar síðustu mín- úturnar.“ Ég hristi höfuðið dálítið vonzkulega yfir að áætlanir mínar höfðu þannig verið truflaðar. En þær höfðu verið nákvæmlega útreiknaðar. Hvað átti þetta hringl að þýða? Við höfðum einmitt farið svona snemma á fætur, miklu fyrr en venjulega, til þess að vera komin nokkuð áleiðis, þeg- ar umferðin komst í algleyming. Og þegar á allar aðstæður var litið, höfðu börnin haft til umráða tvær áhyggjulausar vikur til að byggja heilar hallir úr sandi og til að reika um ströndina í leit að „töfrastein- um“. í dag áttu þau svo bara að sitja í bílnum og hvíla sig eftir allt annríkið. — Já, meira að segja sofa, ef þau vildu. Á meðan varð ég að hafa allan veg og vanda af að koma öllu klakklaust hina löngu leið heim til okkar. Ég gekk út á svalirnar og litaðist um. Þarna niðri, hinumegin við klettana, kom ég auga á krakkana okkar. Þau höfðu far- ið úr skónum og stikluðu á tánum út í flæð- armálið. Það heyrðust í þeim fagnaðarlæt- HEIMILI OG SKOLI 139

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.