Heimili og skóli - 01.12.1969, Side 24

Heimili og skóli - 01.12.1969, Side 24
in, þar sem þau hoppuðu af gleSi hverju sinni, þegar lítil alda kom aS utan og skol- aðist yfir fætur þeirra. Þetta var gamall leikur aS vita hvaS þau gætu vaSiS langt út í sj óinn án þess aS föt þeirra vöknuöu. Og mér varS enn þá gramara í geSi, þegar ég hugsaSi til þess, aS nú var búiö aS ganga frá öllum fötum þeirra í ferSatöskum inni í bílnum. GuS mátti vita hvar þau væri aS finna þar í hinni troöfullu farangurs- geymslu. Ég myndaöi trekt með lófunum og ætlaði að kalla til barnanna, að nú yrðu þau að koma upp aS bílnum. En hvernig, sem á því stóð þá komust þessi orð, með tilheyr- andi reiðilestri, aldrei út af vörum mínum. Morgunsólin var enn lágt á lofti og mynd- aði gullna umgjörS um hvert eitt af hinum litlu verum þarna niður við ströndina, þar sem þau höfðu gleymt sér við leikinn. Þau áttu aðeins eftir þetta litla andartak til að njóta sólarinnar þarna, hafsins og himins- ins. Því lengur, sem ég virti fyrir mér þessa dásamlegu mynd, ímynd sakleysis og áhyggjuleysis, því meir breytti hún um eðli. Það var eins og yfir hana legSi töfrabjarma, sem ég myndi aldrei fá að sjá og lifa aft- ur nákvæmlega eins og nú. Hver veit hvaða breytingum tilvera okkar hefur tekið eftir fimm ár, eða tíu ár? Hið eina, sem hafði gildi nú, var þetta andartak, sem var að líöa hjá. Þessi ljómandi strönd og þessi börn -— börnin mín, sem drukku í sig sólar- ljósiö með ljósu kollunum sínum um leið og hlátrar þeirra blönduöust saman við bylgjuniðinn og þyt vindsins. Hvers vegna hafði ég veriö svo óðfús að komast af stað, að ég hafSi ætlaS að þjóta frá sumarhús- inu til aS skeyta skapi mínu á börnunum? Var það til að halda uppi fööurmyndug- leika mínum, eða var ég bara í skapi til aS skammast, vegna þess, að ég átti langan og þreytandi dag framundan? Þetta hefðu verið fráleit mistök. Við myndum ekki vinna neina gullmedalíu, þótt við kæmumst af stað á ákveðinni mínútu, jafnvel þótt við kæmum til hótelsins þar sem við ætluSum að gista, einum tíma seinna en áætlaS var. Þar stóð engin 40 manna hljómsveit eftir aS viS kæmum. Og hvernig átti ég að gera mér vonir um aS skilja börnin mín, bæSi nú og síSar, ef ég myndi ekki alltaf eftir því, aS ég hafSi líka einu sinni veriS barn? Elzta dóttirin veifaSi til mín og benti mér, aS ég skyldi koma niSur eftir til þeirra. Svo byrjuðu hin einnig aS veifa og kalla. Þau hrópuðu og báSu okkur bæSi aS koma, „því, aS þetta er svo gaman“. Ég hikaöi eitt andartak. En svo hlupum viS Eva af staS og leiddumst hönd í hönd niS- ur brekkuna. Við hálfvegis runnum niður að hinni löngu, sendnu strönd, niður að hafinu. ÞaS laust upp gleSi- og sigurópi meSal barnanna, sem jukust um allan helm- ing, er viS Eva fórum aS vaSa út í sjóinn. Eva hélt upp um sig pilsunum og ég fletti upp buxnaskálmunum eins hátt upp og ég gat. En þá skeSi óhappiS: Eva rann allt í einu til á hálum steini og datt æpandi í vatn- ið og dró mig meS sér viljandi. Það eru mörg ár síðan þetta gerðist, en mér hlýnar alltaf um hjartaræturnar, þegar ég minnist fagnaðarlátanna og ópanna í börnunum, þegar þetta skeSi. Þetta er eitt hið skemmtilegasta augnablik, sem við höf- um nokkru sinni lifaÖ saman. Og þaS kem- ur oft fyrir, þegar börnin mín tala um bernsku sína, aS þau minnast á þetta skemmtilega og dásamlega augnablik við ströndina. Og ég hafði nærri því eyðilagt þetta allt.... Þýtt. H. J. M. 140 HEIMiLI OG SKOLI

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.