Heimili og skóli - 01.12.1969, Page 25
Bœkurog rit
Heimili og skóla hafa borizt eftirtaldar bækur
frá Ríkisútgáfu námsbóka:
Algebra eftir Má Arsælsson, 1. hefti. Þetta hefti
er prentað sem handrit, eins og títt er um margar
bækur Ríkisútgáfunnar meðan verið er að reyna
þær sem kennslubækur. Höfundur segir, að upp-
hafiega hafi þetta verið hugsað sem dæmasafn
fyrir gagnfræðaskóla og landsprófsnemendur, en
síðan verið ákveðið að breyta henni í kennslubók
í algebru. Upphaflega var ætlazt til að bókin kæmi
aðeins út í einu hefti, en til þess reyndist efnið of
mikið. Hér er um geisilega rnikið dæmasafn að
ræða, og geri ég ráð fyrir, að það sé mikill feng-
ur fyrir gagnfræðaskólana og landsprófsnefndur
að fá þessa bók í hendur. Bókin er í tveimur höf-
uðþáttum. Fyrri þátturinn nefnist Tölur og að-
gerðir, en síðari þátturinn skiptist í fimm kafla
eftir aðferðum.
Skýringar viS lestrarbók handa gagnfrœSaskól-
um, 3. hefti. Árni Þórðarson, Bjarni Vilhjálmsson
og Gunnar Guðmundsson tóku saman.
Bók þessi er með mörgum myndum til skýring-
ar, ekki sízt á ýmsum hlutum, sem nú eru að
hverfa úr sögunni. Meginefni bókarinnar er auð-
vitað skýringar á orðum, sem eru fátíð og liggja
kannski ekki öll á vörum þjóðarinnar, ekki sízt
hinna ungr. Þetta er því mjög handhæg og bráð-
nauðsynleg bók til notkunar í skólunum, ekki
sízt við lestur íslenzkra bókmennta.
Aftast í bókinni eru svo myndir af höfundum
ljóða og sagna, sem fyrir koma í bókinni og ævi-
ágrip þeirra, sem er mátulega langt til þess, að
nemendur geti fest sér það í minni og fengið
þannig einbverja fræðslu um skáldið og rithöf-
undinn.
Myndirnar hafa teiknað Skeggi Ásbjarnarson,
Baltasar og Halldór Pétursson. En flestar mynd-
irnar hefur Bjarni Jónsson teiknað. Káputeikning
er gerð af Þresti Magnússyni.
Hljóðjall og tórnr nefnist nýútkomin bók eftir
Jón Ásgeirsson. Er þetta eins konar vinnubók í
tónlist, sem virðist vera skemmtilega byggð upp,
þótt sá, er þessar línur ritar kunni ekki að dærna
um hana. Bókin er gefin út að tilhlutan Söngkenn-
araféiags Islands og ætluð byrjendum í listinni:
Þetta er lítil bók. Aðeins 16 blaðsíður með nokkr-
um skýringarteikningum. Ég gæti trúað, að vel
hafi tekizt til um þessa byrjendabók, sem myndi
hvetja notendur til að vilja fá meira að heyra.
Skrifbœkur 5. og 6. hefti eftir Marinó L. Stef-
ánsson. Þetta er árfamhald áður útkominna hefta,
og eru nú tekin fyrir þyngri verkefni, en þá alltaf
rifjað upp það, sem áður hefur verið fjallað um.
Það er sami snilldarbragurinn á þessum heftum
og þeim fyrri og lífgað upp með myndum og teikn-
ingum. Nú er ekki aðeins hugsað um skrifstafina,
heldur skipan stafa og orða í línur. Kennt að fylla
út ýmis eyðublöð og lögð rík áherzla á að allt sé
áferðarfallegt. Til dæmis eru sýnishorn af halla
stafanna og orða, bæði rétt og rangt, þéttleiki staf-
anna og orðanna. Þá er sýnt hvernig setja á upp
sendibréf á blaðsíðuna. Marinó gleymir engu, sem
góður skriftarkennari þarf að muna. 5. hefti er
einkum ætlað 11 ára börnum, en 6. heftir 12 ára
börnum. Aftan á kápusíðu er leiðbeiningar fyrir
kennarann og börnin.
Það er fengur að því fyrir skriftarkennsluna í
skólana að fá slíkar bækur. Skemmtilegar teikn-
ingar eru á kápum beggja heftanna, en ekki sé ég
þess getið hver hefur gert þær.
Danskar œfingar, eftir Guðrúnu Halldórsdóttur,
gagnfræðaskólakennara. Þess er getið á kápu bók-
arinnar, að þetta sé tilraunaútgáfa. Bókin skiptist
í nokkra kafia. Fyrst er langur kafli, sem fjallar
á mjög aðgengilegan hátt um danska máifræði,
með tilheyrandi æfingum. Þar eru stílar á íslenzku,
sem á að snúa á dönsku og einnig kaflar á dönsku,
sem á að snúa á íslenzku. Ég er ekki lærður
dönskukennari og get því ekki dæmt um bókina í
heild, en í fljótu bragði virðist mér hún aðgengi-
leg. Myndirnar eru teknar úr hliðstæðum kennslu-
bókum fyrir 6. og 7. bekk í dönskum skólum. Þó
að þetta sé tilraunaútgáfa virðist mér margt benda
til þess, að bókin festi rætur í íslenzkum skólum.
VmferSabókin eftir Jón Oddgeir Jónsson. Þetta
er 3. útgáfa bókarinnar. Þegar hægri handar akst-
ur var upp tekinn hér á landi, þurfti auðvitað að
endursemja bókina og hefur Sigurður Pálsson
kennari séð um þessa útgáfu, en Bjarni Jónsson
HEIMILI OG SKOLI H1