Heimili og skóli - 01.12.1969, Page 26

Heimili og skóli - 01.12.1969, Page 26
teiknað myndir í samráði við höfundinn. í bók- inni er fjöldi mynda til skýringar og allar prentað- ar í litum. Það gerir bókina glæsilega á að líta og skemmtilega til náms og fræðslu. Bók þessa þyrfti hvert barn að eiga og skoða hana og nema af henni. Bókin er annars einkum ætluð til náms í tveim efstu bekkjum skyldustigsins og framhalds- skólum, en er nú nauðsynleg öllum börnum þótt neðar séu í skólastiganum. Þarna er ýtarleg fræðsla urn öll umferðamerki og myndir af þeim. Kemur sú fræðsla sér vel fyrir alla hjólreiðamenn, á hvaða aldri, sem er. Þetta er bók, sem skemmti- legt er að fá í hendurnar. Sagan um húsin tvö eftir Alice Midelfart, en þýdd af Svövu Þorleifsdóttur, fyrrverandi skóla- stjóra. Þetta er lítil en skemmtileg bók, sem fjallar um tannvernd og mataræði. Fjöldi mynda er í bókinni og flestar í tveimur eða fleiri litum. Þetta er skemmtileg lestrarbók fyrir börn, sem farin eru eitthvað að lesa, og auk þess mjög lær- dómsrík og mun verða öllum börnum minnisstæð, sem lesa hana. Bókin er gefin út í samráði við Kvenfélagasamband Islands og hefur hlotið með- mæli tannlæknafélags Islands. Vinnubókablöð í eðlisfrœði. Þetta er 16 fjöl- rituð blöð um ýmsar greinar eðlisfræðinnar og byrjar á varmafræði, en síðan tekin ýmis fleiri viðfangsefni eðlisfræðinnar. Ekki er það Ijóst, hvort þetta eiga að vera drög að stærri og full- komnari eðlisfræði, en á henni er nú mikil þörf, að minnsta kosti í framhaldsskólunum, nú á þess- ari miklu tækniöld, þegar eðlisfræðin er að verða grundvöllur hagnýtrar menntunar í mörgum grein- um. Ekki verður heldur séð hver hefur tekið sam- an þessi vinnubókablöð, en trúað gæti ég að þau væru kærkomin öllum, sem fást við kennslu í eðlisfræði. Tölur og mengi, eftir Guðmund Arnlaugsson. Leskaflar um stærðfræði, ásamt dæmum. Þetta er þriðja útgáfa aukin. Bók þessi fjallar um hina nýju stærðfræði, sem nefnd hefur verið mengi. I formála skýrlr höfundur frá ástæðunni fyrir því að þessi grein stærðfræðinnar hefur orðið til og þróun hennar. Þar segir hann meðal annars: „Sú bók, sem hér hefur verið saman sett, skipt- ist í tvo kafla, svipaða að stærð. Sá fyrri fjallar um heilar tölur um gerð þeirra og rithátt, um 142 HEIMILI OG SKÓLI ýmis einkenni þeirra, um samlagningu, frádrátt, margföldun og deilingu. Tilgangurinn er að gera lesandann handgengnari tölum en áður, fá hann til að sjá ýmislegt í nýju ljósi, er hann hefur áður lært í reikningi. Síðari hlutinn fjallar um nokkur frumhugtök mengjafræði, kynnir mengi, venzl þeirra og einfalda reikninga með þeim.“ Bókin er 133 blaðsíður að stærð og girnileg til fróðleiks fyrir þá, sem eitthvað skilja í þessum fræðum. A förnum vegi, eftir Sigurð Pálsson. Þetta eru umferðaleiðbeiningar handa börnum 6—9 ára með fjölda skýringarmynda. Bókin er í söguformi, og segir frá Ara og Asu í umferðinni. Raunar er þetta samtal foreldranna við börn sín, og ber þar margt á góma varðandi umferðina. Þetta er tilvalin bók handa börnum á þessum aldri og kærkomið tækifæri fyrir alla foreldra, að fá þessa fræðslubók í hendur. Auk þess er hún bæði fróðleg og skemmtileg. Bókin er gefin út í samráði við Umefrðamálaráð. Baltasar hefur gert teikningarnar. Bókin er 62 blaðsíður að stærð. H. J. M. Ttt gomons I nánd við þorpið Eyrarbakka á Islandi er fang- elsi. Fangarnir eru látnir vinna að útistörfum á hverjum degi hjá bændum í sveitinni. Fangavörð- urinn sýnir föngunum mikið traust og treystir á að þeir komi aftur heim á ákveðnum tíma. Þegar það kom samt fyrir, að einn fanginn kom ekki heim fyrr en undir miðnætti, tók fangavörðurinn á móti honum með þessum orðum: „Næsta skipti, sem þú kemur svona seint heim, verðurðu lokað- ur úti.“ (Ur erlendu tímariti.) ★ Veika kynið. Hér koma fáein orð inn í umræð- urnar um veika kynið: í vestur-þýzka bænum Bochum var tvo daga í röð sýnd fræðslukvikmynd um barnsfæðingar. Hún var svo raunhæf, að á hverri sýningu þurfti að bera marga út úr salnum vegna þess, að það hafði liðið yfir þá. Samtals leið yfir 54 sýningargesti. Það voru allt karlmenn.

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.