Læknaneminn - 23.04.1940, Side 9
INNGANGUR
í vetur var hafinn undirbúningur að ljósprentun
„Læknanemans”, þótt hugmynd um slíkt eigi sér
nokkru lengri sögu. Flestir eldri árgangar blaðsins
eru löngu þrotnir og fá eintök til af hinum, en margir
hafa sýnt áhuga á að eignast blaðið í heild. Að lok-
inni nánari athugun á væntanlegum kostnaði og
sölumöguleikum ákvað ritnefnd að láta ljósprenta
fyrstu 18 árganga blaðsins. Með hliðsjón af kostn-
aði verður að játa, að hér er alldjarflega teflt, en þó
ekki, ef allir eða flestir læknanemar kaupa strax ritið
auk þeirra lækna, sem þegar hafa heitið stuðningi
sínum.
Eins og sjá má, var sú leið valin að sleppa auglýs-
ingum eftir megni, þar eð kostnaðarverð hefði
annars hækkað verulega. Vegna tæknilegra örðug-
leika hagaði þó sums staðar þannig til, að um tvennt
var að velja: að hafa auða blaðsíðu eða auglýsingu.
Fannst ritnefnd síðari kosturinn betri, en reyndi að
haga svo til, að sama auglýsingin kæmi ekki of oft
fyrir. Vafalaust má deila um, hvernig til hefur tek-
izt, en við vonum, að menn taki viljann fyrir verkið
og megi hafa nokkra ánægju og gagn af þessari út-
gáfu.
Ritnefnd „Læknanemans” i967-’68.