Læknaneminn - 23.04.1940, Qupperneq 13
Læknisneminn.
3
1. tbi . 1. árg v 194o_
U tdrættir.
Arnold R. Rich and John D. Hamilton: TIIE EXPERIMENTAL PRODUKTION
OF CIRRHOSIS OF THE LIVER BY MEANS OF A DEFICIENT DIET. ( Bull.
Johns Hopkins Hosp., marz 194o. )
Noklcur dýr, sem alin höfðu verið á vissu fæði í því skyni að
rannsaka sóttnæmi í sambandi við fóður, fengu lifrarcirrhosis,
svipandi mjög til Laennecs cirrhosis hjá mönnum. Höfundar álíta
að ekki hafi verið ritað um slíkt áður.
Ákveðnar tilraunir eru nú gerðar á kanínum, til þess að komast
fyrir hvaða fæðuefni það væri, sem hindraði cirrhosismyndun hjá
þeim. Þar sem mörg efni vantaði í þá upprunalegu cirrhosisfæðu,
þurfti að dtiloka þau hvert um sig. Efni þetta virðist vera i
osti, en er þó ekki Bl- B2- B6- vitamin né heldur nicotinsýra.
Það kemur og i ljós, að proteinum í basalfæðunni er ekki um
að kenna, hvað kvantititet snertir að minsta kosti, því það breyt-
ir engu hvort þau eru aukin eða minkuð. Kolvetnin virðast einnig
áhrifalaus í þessu efni. Saltblandan er sú sama hjá öllum dýra-
flokkum. Fitan virðist vera áhrifalaus, og er sama hvort gefin
er plöntufeiti eða svínafeiti. A- og D- vitamin voru nægilega til
staðar í þessari fæðu, og C- vitamin á ekki að þurfa handa kan-
ínum. Hjá sumum kanínunum kom fram vöðvadegeneratio eins og við
E- vitaminvöntun. Tilraunir eru þvi sérstaklega gerðar, til þess
að útiloka að sú vöntun gæti veriö valdandi sjúkdómnum, enda hafði
heldur ekkert verið birt um slíkt. Það kemur þá í ljós, að E- vit-
aminið eitt er fært um að hindra vöövadegeneratio, heldur þarf
einnig vatnsuppleysanlegt efni, sem er i ostinum til þess, þótt
sum dýrin á ostlausa fæðini hafi reyndar sloppið. Coline vantar
þegar ostinn vantar, en þaö efni nægir þó ekki.til þess að hindra
eirrhosismyndun.
F. Ólason.
Harry L. Segal: CIGAF.ET SMOKING. 1. As a couse of fatigue; 2. Eff-
ect on the electrocardiogram with and without the use of filters.
( Amer. Journal of the med. sciences, des. 1938 )
Tilefni þessara rannsókna var að sjúklingar, sem þjáðst höfðu af
þreytu í mörg ár, og ekki hafði batnað með neinu móti, batnaði
við að hætta reykingum.
Ef nicotin er gefið intraven. kemur í Ijós, að áhrifin eru í aðal-
atriðum þau söumu og við reykingar, og er því lítill vafi hverju
ber að kenna nicotináhrifunum í reyknum. Viö rannsóknir á fjölda
mörgum mönnum og konum kemur í ljós, að púlsinn eykst að meðal-
tali um 2o - 3o á mín., og breytingar koma fram í electrocardio-
gramminu, aðallega 11. leiðslu, T- talckanum, sem verður mun lægri
og allt að því isoelectriskur eða negativur, eftir reykingu. P-
takkinn verður einng stundum breyttur, og þá hærri, en hann á að
vera. Þessara áhrifa gætir minna úr því, að menn hafa náð fimm-
tugsaldrinum. Rannsóknum er þannig hagað, að fyrst er tekið elecro-
cardiogram af mönnum i fullkominni hvíld, að morgni dags, og áður
en þeir hafa reykt nokkuð; siðan er aftur tekið electrocard. ca.
1/2-tíma eftir að þeir haf'a reylct 1/2 sigarettu af "Camel'' eða
"Luky Strike". Gerður er samanburður á denicotiniseruðum sigar-
ettum, "Sano" og "Carl Henry" og reynist útkoman sú sama. Einnig