Læknaneminn - 23.04.1940, Page 15

Læknaneminn - 23.04.1940, Page 15
Lækniöneminn- 5 1. fbl. 1. árg. I94o þeim bakteríum, sem koma mcc vatninu til hreinsunarvélanna. En þrátt fyrir allar heil'brigöisráListafanir hc-fir ekki tekist að hindra nef og eyrnasýkingu i sambandi við sund. H. M. Taylor veitti því athygli, að áberandi margir sjúklingar með sinusitis og otitis höfðu verið tíðir gestir í sundhöllum, og tók hann ser fyrir hendur að rannsaka orsakasambandið þar á milli. Vatnið x viðkomandi sundhöllum var 22 gráöur á C., mjög tært, endurnýj- aðist fljótt og stöðugt undir bakteríologisku eftirliti, en með því bakteríutaian var mjög lág, voru engin antiseptisk efni látin i^það. Af þessu var ályktað, aö ekki væri eingöngu um utankomandi sýkingu að ræða, heldur hlytu einnig aðrar orsakir að liggja til grundvallar. Eftir kenningum bioiogiunnar lagar hver tegund dýra sig eftir því umhverfi, sem hún 1 i.fir í. Þannig hafa oll dýr með heitu blóði, sem lifa að nokkru eöa miklu leyti í vatni, öðlast slíka anatomiska byggingu, að ];au geta sjálfrátt eða ósjálfrátt lokað nefi og eyrum, þegar þau dveija undir vatnsborðinu, og á þann hátt hindrað skaðleg áhrjf vatns á ytri eyrnaganga og hina viðkvæmu slimhúð x efsta hluta öndunarvegsins. Hjá manninum eru engin líffæri lengur til staðar, sem lokað geti nefi eða eyrum, aðeins næstum rudiment vöðvar finnast, t.d. rnusc . compressor narium ( M. nasalis pars transversa ) og mm. dilatoris naris ant. et post. Tilsvarandi vöðvar viö eyrun, þeir, sem verka þar dilat- erandi, eru að nokkru leytx eftir, en sphincteri eru rudiment. I slímhúð nefsins eru bikarfrur.ur og kirtlar, er gefa frá sér efni, sem drepa bakteríur eða hindra vöxt. þeirra. Ef vatn kemst í nef- holið þynnast þessi efni, skolast burtu og ná ekki að verka. Hjá manninum eru því hvorki anatomisk né physiologisk skilyrði fyrir hendi, til þess að hindra áhrif vs.tnsins, eina vörnin er rétt öndun. Sundmaðurinn á að anda djúpt að sér gegn um munninn, áður en hann fer í kaf, en undir xatnsooi'ðinu á hann að anda frá sér gegn um nefið hægt en jafnt. A þenna hátt er hægt að halda posi- tivum loftþrýstingi í nefholinu miöaö við umhverfið, og útiloka að vatn geti komist þár inn. En ef þrýstingurinn er nægilegur á vatninu, á það greiöan gang úr nefholinu inn í sinus maxillaris, tuba auditiva og jafnvel sinus frontalis og cellulae ethmoidalis. Þegar um sýkingu í nefi og nasaholum er aö ræöa sem afleiðingu af sundi, koma einkum þessar orsakir til greina. Framandi patho- gen bakteriur geta borist með vatninu þær leiðir, sem áður hefir verið lýst, og valdið bólgu í slímhúðinni þar sem þær setjast að; eða að þeim bakteríum, sem normalt eru þarna til staðar, sé veitt betri lífsskilyrði vegna minkaörar mótstöðu af völdum vatnsins, þannig að þær verði ekki lengur meinlausar, heldur nái að sýkja. Auk þess, sem vatnið skolar burtu bakteríueyðandi efnum, truflar það starfsemi bifháranna og kælir slímhúðina, en við það dragast æðar saman og blóðsókn veröur niinni, og mótstaðan þar með. Svipað má einnig segja \xm orsakir til sýkinga í ytri eyrnagöngum. Þar er að vísu marglaga flöguepithex rneo hornlagi,^en það er þunnt og við- kvæmt, blotnar upp o^ leysist su.ndur fyrir áhrif vatnsins, en þá eiga bakteríur um fram allt^staphylococcar, sem þarna eru að stað- aldri, greiðan aðgang til sýkingar. Til varnar er nægilegt að loka eyrnagöngunum með bórullHrhnoðrum; sem vættir hafa verið £ oliven- oliu eða smurðir með vasilini, einnig eru notuð sérstök gúmmílok £ sama tilgangi. Viðvikjandi métstöðu likamans almennt gegn sýkl ingu kemur til greina, að hitatap er 27 sinnum örara £ vatni en

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.