Læknaneminn - 23.04.1940, Page 16

Læknaneminn - 23.04.1940, Page 16
Læknis neminn. o 1. tbl. 1. árg. 194o í lofti við sama hitastig; og hefir því sund í köldu vatni í f'dr með sér nokkra lækkun líkamshitans þrátt fyrir aukinn bruna. En Samfara kælingu líkamans er mihkuð mótstaöa hans, og aukin sýk- ingarhætta almennt. II. M. Taylor fann við atkugun á 25o krökkum, sem öll voru yngri en 13 ára, eftir að þau höfðu synt í sundhöll í 45 mín., hiti vatnsins 23 gráöur á C., aö aðeins 12$ þeirra höföu dhreyttan líkamshita, en hjá hinum haföi hitinn lækkað nið- ur x allt að því 35 gráður á C. Einnig var gerð athugun á 8 vönum sundmönnum. Þeir syntu í 45 mín. í 19 gráðu heitum sjó. Að meðal- tali lækkaði hiti þeirra um 2 gráður, erytrocytum fjölgaði um 1 milj. pr. cmm., og leucocytum einnig um 2 þús. pr. cmm. Bæði syst- oliskur og diastoliskur hlóðþrýstingur var til muna lækkaður, og sundmenn nokkuð cyanotiskir að sjá. Athugunin leiddi í ljós, að sund í köldu vatni hefir í för meö sér perifer vasoconstriction, perifer stasis og anoxemia. Það er alrnennt viðurkennt , að samfara æðakontraktion perifert verði einnig kontraktion á æðum í slímhúð nefholsins. Rannsóknir hafa einnig leitt x ljós, að ef menn dvelja að mestu hreifingarlausir í vatni, sem er mun kaldara en líkams- hitinn, kemur fram leukopeni, áberandi fækkun á neutrofilum leuko- cytum, og er talið að það dragi einnig úr .mótstöðu líkamans gegn sýkingu. Orsakir til sinusitis og otitis hjá sundmönnum eru því ekki aðal- lega bakteríur úr vatninu, heldur eru það hin margþættu physiolog isku áhrif vatnsins, sem ráða ef til vill mestu í þessu efni. A. Kolbeinsson. K-vitamin. H.-. P. Smith; Ziffren, Owen and Hoffman; Clinical and experimental studies of vitamin K.(J. Am. Med. Ass., júlí 29-, 1339.) Það hefir lengi verið vitað, aö oft ber mikið á blæðingum, hjá sjúkl., sem hafa meckaniskan icterus . Kemur þetta sérstalclega fram eftir operationir, getur jafnvel orið sjúkl. að bana, þar sem engin ráð þekkjast til þess að stöðva blæðingarnar. Ekki alls fyrir löngu hefir fundist efni, svokallað K-vitamin, og með því að gefa það per os hefir tekist að stöðva icteriskar blæð- ingar. Efnið er fundið af dönskum lækni fyrir ca. 9 árum Ilenrik Dam að nafni. Var hann að fást við rannsóknir á fitumetkabolisma, og ól kjúklinga á fitulausu fæði. Eftir nokkrar vilcur komu blæð- ingar í húð og slímhúð kjúklinganna. Þetta leiddi aftur til frek- ari rannsókna, og kom þá x ljós, að protrombin hafði lækkað í blóþinu, og var það afleiðing skorts á fituuppleysanlegu vitamini. Vitaminið var kallað K-vitamin eftir upphafsstafnum á danska nafn- inu koagulation. Frekari rannsóknir hafa leitt í ljós eftirfarandi; 1) Vitaminið er til x ýmsu grænmeti, þar á meðal alfalfa og spinati. 2) Það getur myndast í tractus intestinalis, fyrir áhrif frá bact- eri 3) Tekist hefir að isolera það kemiskt sem ljósgula olxu, er inni- heldur kolefni, vetni og súrefni en ekki k'dfnunarefni. Eftir því, sem næst verður komist, er þaö naphtoguinine-samband. Ttl þess að vitaminið geti resorberast þarf gallrenslið að vera í Xw.gi. K-vitaminið hefir sömu uppleysingareigmleika og fitan; og gallið, sem hjálpar til þess að fitan geti resorberast, þarf einnig

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.