Reykjanes - 01.05.1943, Blaðsíða 2

Reykjanes - 01.05.1943, Blaðsíða 2
2 R E Y K J A N E S Sjúkrahúsmálið Rausnarleg gjöf. sköpuðu. Og þó að þetta megi ef til vill ekki teljast algikl regla, er óneitanlega margt sem bendir til, að hún komi víða heim. Þá er það orðið talsvert algengt að lieju’a enskuslettur í daglegu tali við ýms tækifæri, sérstaklega af vörum æskunnar. Margir heils- ast á ensku, kastast á orðum á íslenzk-enskublendingi og kveðjast á ensku. Afneitun og misþyrming málsins er orðið að meira eða minna leyti daglegt brauð. Enda þótt slíkt málfar sé ótvíræður ó- menningarvottur, virðast allmarg- ir telja sér það til álitsauka. Það er gamla sagan, sem virðist vera að endurtaka sig, aðeins í nýrri út- gáfu. Um eitt skeið í sögu þjóðarinn- ar var sú tízka rikjand að tala ann- að erlent mál í íslenzlcu stað; það var á tímum hinnar miklu niður- lægingar, þegar þjóðin var orðin svo magnþrota, að hún var að þvi komin að gefast upp og láta bugast fyrir ofurþunga þess, sem á hana var lagt. Hættan, sem nú steðjar að er sú, að liin uppvaxandi kynslóð okkar tíma, sem á við alit önnur og miklu betri kjör að búa, gefist upp af frjálsum vilja, óþreytt og óbuguð — bregðist skyldu sinni, dáleidd af áhrifamagni nýstárleikans. Ef sú tízka yrði ofan á, að við færum að telja tungu sambýlis- manna okkar „fínni“ en móður- málið, væri hrunsins skammt að bíða, og þá kynni að fara svo áður en varir að öðru meira vrði varp- að útbyrðis — jafnvel því, sem við teljum nú dýrmætast af öllu. Ef þjóðin vill vera sjálfri sér trú og menningararfi sínum, verð- ur hún að sameinast í baráttunni geng hverskonar málspillingu, af hvaða rótum sem hún kann að vera runnin og hvernig sem hún birt- ist. I þessari baráttu verður æskan að vera í fylkingarbrjósti. Hún verður að skoða það sem dýrinæt forréttindi að lifa á þeim tíma, þegar skyldur hennar eru svo ó- tvíræðar og svo mikið er undir liðsinni hennar komið. Hún verð- ur að gera sér ljóst, að málspilling er hrörnunareinkenni, merki þess, að siðferðisþróttur, sjálfsvirðing og manndómur þjóðarinnar er að Stjrón Rauðakross deildar Keflavíkur er í þann veginn að efna til samskota i væntanlega sjúkrahúsbyggingu i Keflavík, og hefir í því skyni lagt fram eftirfar- andi ávarp, sem mun verða sent um Keflavík. Ávarp. Eins og yður er kunnugt, var á stofnfundi Rauðakrossdeildar Keflavíkur ákveðið að beita sér fyrir byggingu sjúkrahúss hér i Keflavík strax og ástæður leyfðu, og kosin sérstök nefnd í því skyni. - Enda þótt málið sé aðeins skammt á veg komið ennþá, er styrkur úr rikissjóði tryggður, og teikning og kostnaðaráætlun á- samt staðarákvörðun mun verða gerð i vor. Það þarf ekki að færa nein sér- stök rök fyrir brýnni nauðsyn þessa aðkallandi máls, jafn aug- Ijós og þau hljóta að vera hverjum manni, en þess má þó geta, að engir hljóta að finna jafn tilfinn- anlega til vöntunar á sjúkrahúsi og sjómenn og útgerðarmenn, sem hundruðum saman stunda áhættu- sama vinnu og verða oft að liggja veikir, við mjög ófullnægjandi að- búnað. Það er ekki lengur vansalaust, að jafn stórt framfarapláss og lamast. Móðurmálið er hinn dýri arfur, hin mikla röksemd fyrir lil- veru okkar sem sjálfstæðrar þjóð- ar. Það má aldrei gleymast. Hins er og hollt að minnast, að uppi hafa verið meiri og voldugri ríki en við, þar sem menning stóð með miklum blóma ,unz þau gerðust sjálfum sér sundurþykk og hjuggu i blindni á tengslin við arf fortíð- arinnar. Þessi ríki eru nú ekki lengur til nema sem viðfangsefni fræðimanna, sem leggja stund á að rannsaka líf og sögu þjóðajina, sem týndust. Sp. Keflavík er, fylgist ekki með sjálf- sögðum kröfum tímans í þessu efni, eins og önnur ldiðstæð kaup- tún. En til þess að hrinda þessu í framkvæmd, þarf sameiginlegt átak allra, sem einhvers eru meg- andi, og eru það því tilmæli vor lil yðar, að þér styðjið þetta nauð- synjamál með fjárframlagi eftir efnum \’ða r og ástæðum. Það skal tekið fram, að til að standast fyrirsjáanlegan mikinn stofnkostnað, munu fleiri fjáröfl- unarleiðir verða farnar, en til þess er ætlasl þegar sjúkrahúsið er komið upp, að viðkomandi hrepps- félög og sýslan annist rekstur þess. Yirðingarfyllst Stjórn Rauðakrossdeildar Keflavíkur og sjúkrahússnefnd. Þann 1. maí barst formanní Rauðakrossins bréf frá þeim hjón- unum Bjarnfríði Sigurðardóttur og Jóhanni Guðnasyni, Vatnsnesi, ásamt 10 þúsund króna peninga- ávísun, sem þau gefa til bygging- ar eins herbergis í væntaiélegu sjúkrahúsi, til minningar um for- eldra sína. Fyrir þessa stórhöfðinglegu gjöf vottar stjórn Rauðakrossins og byggingarnefnd þessum heið- urshjónum silt innilegasta þakk- læti. — Með þessu hafa þau ekki aðeins sýnt óvenjulega rausn, hedlur líka með þvi að verða fyrst til, gefið fagurt fordæmi lil eftir- breytni, þótt í smærri stíl verði. F. h. Rauðakrossdeildar Keflavíkur. Karl G. Magnússon. Vel að orði komizt. „Orðrómur á sveimi er aldrei í vandræðum með lendingarstað.“ „Hún var í baðfötum, sem pöss- uðu henni eins og sólbruni.“

x

Reykjanes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjanes
https://timarit.is/publication/1890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.