Reykjanes - 01.07.1943, Blaðsíða 4

Reykjanes - 01.07.1943, Blaðsíða 4
4 R E Y K J A N E S Sundmót fyrir Reykjanesbúa í Sundlauginni í Keflavík. Þann 22. ágúst n.k. fer frani, að tilhlutan Ungmennafélags Kefla- víkur, sundmót í sundlaug félags- ins í Keflavík. Keppt verður í 50 m., 100 m., 200 m. og 500 m. sundi frjáls aðferð. Ennfremur í stakka- sundi og boðsundi. í 200 m. bringu- sundi verður keppt um Thors- bikarinn. Einnig verður keppt um stakkasundsbikarinn og boðsunds- skjöldinn. Heimilt er hverjum þeim sem á Reykjanesskaganum býr að taka þátt í móti þessu, sem bæði er Það stafar af skorti manna á virð- ingu fyrir eigna og umráðarétti nábúans yfir eignum sinum. Það stafar af slcorti íslendingsins á þvi, að virða nokkrar reglur, heldur ana beint af augum eftir eigin geð- þótla. Það stafar af skorti á um- gengnismenningu yfirleitt, þrátt fyrir allt gortið og gasprið um að við stöndum öðrum þjóðum jafn- fætis, eða jafnvel framar, i þvi sem öðru. En úr því að ég á annað borð fór að minnast á þessi mál, þá er rétt að víkja að umgengnismenn- ingu islenzku bifreiðarstjóranna, ])vi það er öllum vitánlegt að hún er mjög misjöfn. Það er ekki ó- sjaldan að þeir aki liér um göturn- ar með algerlega óleyfilegum iiraða og ausi ryld og óþverra yf- ir vegfarendur, án þess að láta sér til liugar koma að hægja ferðina. Þessir menn mættu gjarnan læra dálítið af bifreiðarstjórum setu- liðsins, sem yfirleitt eru miklu kurteisari í akstri og fylgja betur settum reglum um hraða, livort heldur er innan bæjar eða úti á þjóðvegunum. G. G. fyrir unglinga (stúlkur og drengi) og fullorðna (konur og karla). Þetta er frysta sundmót sem boðað er til og allir Reykjanesbú- ar hafa aðgang að, ættu sem flest- ir, bæði einstaldingar og félög að hagnýta sér það. Nánar verður mótið auglýst síðar. Happdrætti Rauðakrossdeildarinnar. Nýlega var hafin sala happ- drættismiða til ágóða fyrir sjúkra- skýlissjóð Keflavíkur. Vinningur- urinn er ný Dodge-bifreið af vönd- uðustu gerð. Dregið verður þann 30. júlí. Söfnun Rauðakrossdeild- arinnar nýtur almennra vinsælda og liafa sjóðnum þegar borizt rausnarlegar gjafir. Frá Vatnsnes- hjónunum kr. 10.000.00, frá Kveld- úlfi h.f. kr. 10.000.00 og Skúla Hallssyni og Ásdísi Ágústsdóttur kr. 3.000.00 til minningar um dóttur þeirra. Hjónaefni. Nýlega liafa opinberað trúlofun sína ungfrú Elín Qlafsdóttir, ís- hússtíg' 5 og Marteinn Árnason verrzlunarmaður, Hafnargötu 9, Keflavik. Nýtt hraðfrysíihús tekur til starfa. Föstudaginn 25. júní s. 1. tók til starfa nýtt hraðfrysthús í Keflavík. Frystihús þetta er eign Hlutafélagsins Hraðfrystihús Keflavíkur, en félag þetta eiga nokkurir útgerðarmenn á staðn- um. Forstjóri hússins er Stein- grímur Árnason fyrverandi síldar- kaupmaður. Ilúsið er 840 ferm. að stærð, byggt úr steini og er allt hið vand- aðasta. Frystiafköst eru nú 10 tonn af flökum á sólarhring, en mögu- leikar eru til að auka afköstin um helming. Vinnusalur er 10x30 metrar, en geymsluklefar fyrir 450 til 500 tonn. Qskar Halldórsson varð fimmtugur 17. júní s. 1. Hann er Suðurnesjamönnum að góðu kunnur. Um nokkur ár bjó Qskar í Keflavík. Á þeim árum byggði hann hafskipabryggju Keflavikur, sem er eina hafskipa- hryggjan á Suðurnesjum. Á Qskar fyllstu þakkir Suðurnesjamanna skilið fyrir að hrinda því verki í framkvæmd. Rlaðið árnar Qskari alls hins bezta á þessm timamót- um. Skátadeild kvenna stofnuð. Nýlega hefir verið stofnað kven- skátafélag hér í Keflavik. Starfar það sem deild úr skátafélaginu „I4eiðabúar“. 26 stúlkur skipa deildina og mun Helga Kristins- dóttir verzlunarmær vera foringi þeirra. Gunnar Þ. Þorsteinsson deildarforingi mun sjá um allan undirbúning undir nýliðapróf. Ný saumastofa hefur starfsemi sína. Nýlega tók til starfa saumastofa hér í Keflavík og hefir verzlun verið opnuð í sambandi við hana. Fyrirtækið er eign hlutafélags sem nefnist Saumastofa Keflavíkur h.f. Forstjóri fyrirtækisins er Björn Pétursson í Keflavilc, en Oddný Sigtryggsdóttir annast stjórn saumastofunnar. Síldveiðar við Norðurland. Síldveiðibátar frá Keflavík,, Garði og Sandgerði, sem herpi- nótaveiðar stunda, eru nú allir farnir norður. Frá Keflavik fóru þessir bátar: Keflvíkingur, Björn II, Guðný og Ingólfur. Frá Garði og Sandgerði: Njiáll, Arthur, Árni Árnason, Trausti og Guðmundur Þórðarson. Sala happdrættismiða fyrir sjúkrahússjóðinn stendur nú sem hæst. S. I. sunnudag fóru nokkurir sjálfboðaliðar i söluferð til R.vikur og seldu fyrir ca. 8.000 kr. Sérstakan dugnað í þeirri ferð sýndi frú Þórunn Ólafsdóttir. Framhald af greininni „í vík- ing“, sem birt var upphaf af í síð- asta blaði, verður að bíða næsta blaðs.

x

Reykjanes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjanes
https://timarit.is/publication/1890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.