Reykjanes - 01.05.1966, Blaðsíða 4

Reykjanes - 01.05.1966, Blaðsíða 4
4 REYKJANES Maí 1966 Vaxandi menning í vaxandi bæ Sesselja Magnúsdóttir: Enn á ný stöndum við frammi fyrir skyldu okkar, sem þegn- ar í lýðfrjálsu landi, en það er ao ganga að kjörborðinu og þakka eða hafna því, sem gert hefur verið á síðastliðnum 4 árum, það hefur þótt góður siður — meðal fólks að nema staðar á áföngum, litast um , horfa yfir farinn veg, læra af reynslu síðasta áfanga og efla kjark og dug til þess næsta með því að nema af atburð- um liðinnar ferðar. Þau mál, sem ég hefi haft einna mest afskipti af eru þau sem falla myndu undir mann- úðar- og menningarmál, og vildi ég hér á eftir gera þeim nokkur skil. Það er þá fyrst til að taka æskulýðsmálin, — sem ofarlega hafa verið á baugi, enda mun að hlúa að ungviðinu síðar skapa vöxt- inn, til hagsældar fyrir byggð- ar lag og land vort. Á vegum Sjálfstæðisflokksins var í síð- asta kjörtímabili lokið við að fullbúa æskulýðsheimili að Austurgötu 13, það er glæsi- legt og gott hús og vel búið til þeirrar starfsemi, sem þar fer fram. Eftirfarandi starfsemi hef- ur verið þar undanfarið: Tón- listarskólinn er staðsettur á neðstu hæð hússins, og hefur starfsemi skólans aldrei verið meiri en nú, þar sem nemend- ur hafa verið á 3 hundrað. Má segja að starfsemi skól- ans sé gildur þáttur í æsku- lýðsmálum, þar sem veruleg- ur hluti nemenda er æskufólk. Formaður skólans frá upphaf i hefur verið frú Vigdís Jak- obsdóttir, og jafnframt hefur hún verið í vetur skólastjóri í fjarveru Ragnars Rjörnsson- ar. Þar hefur og Karlakórinn samastað fyrir æfingar, einn- ig báðar bindindisstúkurnar fyrir sína starfsemi. En æsku- lýðsstarfsemin sjálf hefur að mestu leyiti farið fram á efri hæð hússins, — og hefur sú starfsemi farið ár vaxandi og aldrei verið meiri en nú, þar sem nú voru þátttakendur á 3. hundrað. Ber að þakka því ágæt fólki sem starfað hefur að þessum málum. Af reynslu undangenginna ára er óhætt að segja að starfsemin sjálf hafi sannað nauðsyn sína og því fé, sem til þessa hefur ver- ið varið ekki á glæ kastað. Eins og raun ber vitni um, er húsnæði æskulýðsheimilisins þegar svo full setið að þörf mun verða á næstunni á að stækka húsnæðið — enda eru góð skilyrði til þess, þar sem lendrými er nóg umhverfis húsið. Annað er það mál, sem ég vildi minna nokkuð á og er nú komið á rekspöl. Það er dag- heimili barna í Keflavík, en forsaga þessa máls er sú, að á árinu 1965 skrifaði Kvenfélag Keflavíkur bæjarstjórninni og fór þess á leit að bæjarfélagið byggði dagheimili á lóð Kven- félagsins við Tjarnagötu, sem það bauð undir starfsemina. Jafnframt lofaði Kvenfélagið framlagi að upphæð 150 þús. kr. til byggingarinnar. Bæjar- stjórnin brást vel við þessari málaleitan og var verkið boð- ið út og tók Guðm. Skúlason að sér framkvæmdir sem voru miðaðar við að skila húsinu fokheldu fyrir kr. 460 þús. en áætlað er að húsið muni end- anlega kosta fullbúið kr. 1.5 milljónir. Standa vonir til að verkinu muni verða lokið í haust. Verður þetta til mikils hag- ræðis fyrir húsmæður hér í bæ — en þó einkanlega fyrir þær konur, sem vinna utan heimilis, þar sem gert er ráð fyrir að heimilið verði starf- rækt allt árið. Núverandi dag- heimili, sem rekið hefur ver- ið af kvenfélagskonum með styrk frá bænum hefur áður starfað til miðs desember, en fyrirhugað er, þegar hið nýja heimil verður fullbúið, verði í Tjarnarlundi starfræktur leik skóli, sem áður hefur verið til húsa í barnaskólanum. Vil ég þá næst minnast lít- ilsháttar á barnaleikvelli. Á undanförnu kjörtímabili hafa verið tveir gæzluvellir, en nú hefur sú viðbót verið á- formuð, sem reyndar var vís- ir lagður að síðast liðið haust við Nónvörðu, — en þar var komið fyrir rólum til þess að reyna hvort opnir vellir ættu ekki rétt á sér, eins og víða annars staðar. Hefur það gef- izt vel og verður því bætt við þar ýmsum leiktækjum. En á- kveðið að að setja leiktæki á eftirfarandi velli: Við Máva- braut, og leikvöll milli Lyng- holts og Háholts og einnig að koma fyrir leiktækjum á opn- um svæðum víðs vegar um að þetta mælist vel fyrir og beini börnunum frá götunni og hættum hennar, ef vel tekst til með framkvæmdir þessara mála. Má bæta því við að nú þeg- ar hafa verið pöntuð leik- tæki á fyrrnefnda velli. Á sínum tíma var rætt um að koma upp sumardvalar- heimili fyrir börn í sveit, — breyting hefur nú orðið á þessum áætlunum vegna þess að um svipað leyti flutti séra Bragi Friðriksson erindi hér í Keflavík á vegum þjóðkirkj- unnar og skýrði frá að komið hefði fram tillaga um að Kjal- arnesprófastsdæmi sameinað- ist um byggingu myndarlegr- ar starfsemi fyrir börn í Krísuvík. Hefur bæjarstjórn samþykkt þessa ráðstöfun og lagt nú þegar fram töluvert fé til hennar. Hugmyndin er að hver bær hafi sér skála fyrir sig, en starfrækt verði sameiginlegt mötuneyti. Á- ætlað var að hver skáli mundi kosta fokheldur kr. 270 þús. kr. og er nú á fjárhagsáætlun bæjarins varið fé til þess, um 150 þús. kr. Rætt hefur verið um þann möguleika að þar mætti starfrækja heimavist- arskóla að vetrinum. Rætt hefur verið um og samþykkt nauðsyn þess að komið væri hér á fót heilsu- verndarstöð. Var fyrst athug- aður möguleiki á að starf- rækja hana í sjúkrahúsinu, en þar var húsrými ekki fyrir hendi. En aftur á móti á bær- inn hús að Túngötu 11, sem er fyrirhugað til starfseminn- ar, verður húsið lagfært nú í sumar, en mun geta tekið til starfa í haust. Verður þetta til mikils hagræðis fyrir fólk hér i bæ, því þarna mun verða sérmenntaður barnalæknir, hjúkrunarkona og bæjarljós- móðir, svo og almenn lækn- ingaþjónusta. Kosin hefur verið fram- kvæmdanefnd til að hrinda þessu máli í framkvæmda. 1 nefndinni eiga sæti Helgi S. Jónsson. Kjartan Ólafsson, héraðslæknir og Arnbjörn Ól- afsson, læknir. Ráðgerðar hafa verið mikl- ar framkvæmdir í skólamál- um og er á fjárhagsáætlun bæjarins ætlaðar ríflegar upp- hæðir til barnaskóla og gagn- fræðaskóla og íþróttahúss. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt sérstaka áherzlu á að upp bæinn. Eru vonir bundnar við komi stórt og vandað íþrótta- hús, enda hefur verið stefnt að því að gera sem mest og bezt fyrir íþróttastarfsemina, enda hefur íþróttafólk okkar getið sér góðan orðstír. Góðir samborgarar, við búum á ört vaxandi bæ og verkefnin eru mörg og margvísleg. Með á- framhaldandi forystu Sjálf- stæðisflokksins í stjórn bæjar- ins verður þeim framfaramál- um, sem hér hefur verið á drepið fylgt eftir og þau efld. Við verðum að beita kröftum vorum sameiginlega í eina átt ef ekki svo — hljóta kraftar okkar til framafar að tvístr- ast. Gott sjálfstæðisfólk---- fram til sigurs undir einum vilja og einu merki. — Undir merki Sjálfstæðis- flokksins.

x

Reykjanes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjanes
https://timarit.is/publication/1890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.