Reykjanes - 01.05.1966, Blaðsíða 6
6
REYKJANES
Maí 1966
/
Sjálfstœðisflokkurinn í Keflavík leggur hér með fyrir kjósendur í Keflavík málefnayfirlýsingu flokksins varðandi fram-
kvœmd hinna ýmsu greina bœjarmála. Stefna Sjálfstœðisf lokksins í bœjarmálum er sú, að tryggja sem bezt hagsmuni
og atvinnuöryggi bœjarbúa, að fjármálum bœjarins sé stjórnað af hagsýni svo unnt sé að stilla álögum á bœjarbúa
í hóf, því velferð þeirra og sjálfsbjargarviðleitni er sú stoð, sem bœjarfélagið byggist raunverulega á, en jafnframt því
verði verklegum framkvœmdum haldið uppi af stórhug og framsýni, svo bœrinn okkar sýni það og sanni, að hér
býr þróttmikið og athafnasamt fólk. — Málefna yfirlýsingu þessari er œtlað það hlutverk, að gera grein fyrir nokkr-
um þeim atriðum í samþjöppuðu formi, sem Sjálfstœðisflokkurinn í Keflavík telur, að bœjarstjórn beri að vinna að
í náinni framtíð. Fyrir framgangi þessara mála og annarra hagsmuna bœjarfélagsins munu Sjálfstœðismenn í Kefla-
vík beita sér fyrir undir forystu þeirra bœjarfulltrúa, sem kosnir verða af lista þeirra 22. maí nœstkomandi og í sam-
vinnu við þá, sem eiga málefnalega samleið um alhliða uppbyggingu Keflavikurbœjar.
Gatnagerð
Frá upphafi hefur Sjálfstæðisflokkurinn haft forystu um
gatnagerð úr varanlegu efni í Keflavík. Flokkurinn telur það
höfuðnauðsyn fyrir bæjarfélagið, að gert verði enn stórátak
í varanlegri gatnagerð. Þær framkvæmdir verði m. a. eitt
meginverkefni bæjarins á komandi árum. I sambandi við
jjetta stórverkefni bæjarfélagsins vill Sjálfstæðisflokkurinn
benda á eftirfarandi, sem hann telur nauðsynlegan undan-
fara þess, að gert verði stórátak á varanlegri gatnagerð:
1) Að gerð verði yfirlitsáætlun um alla gerð gatnakerfis-
ins jafnóðum og skipulagningu bæjarins miðar áfram.
2) Að gerðar verði nákvæmar tæknilegar og fjárhags-
legar áætlanir um áfanga heildarverkefninsins tiltekið ára-
bil fram í tímann.
3) Að fjármagn verði tryggt fyrirfram til framkvæmda
á hverjum þætti gatnagerðarinnar og verulegs lánsf jár aflað
í þessu skyni.
4) Að framkvæmdir verði boðnar út í sem særstum á-
föngum eftir því sem tök eru á og jafnan á sem hagstæðust-
um árstíma.
Holræsagerð og vatnsveita
Gerð verði heildaráætlun um holræsakerfi bæjarins og jafn-
hliða áætlun um fullnaðargerð gatnakerfisins. Áætlun um
dreifikerfi vatnsveitu bæjarins verði endurskoðuð og hún
færð til samræmis við gatnagerðaráætlun. Áætlanir þessar
nái einnig yfir land það allt, sem nú er fallið undir kaupstað-
inn við hin nýlega samþykktu lög um stækkun lögsagnarum-
dæmis Keflavíkur.
Rafmagnsveita
Gerð verði áætlun um endurbætur og aukningu á rafmagns-
veitukerfi bæjarins og götulýsingu í samræmi við áætlun um
fullnaðargerð gatnakerfisins.
Hitaveita
Áherzla verði Iögð á, að áfram verði haldið á þeirri braut í
hitaveitumálum, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur beytt sér
fyrir, og rannsókn á öflun jarðvarma til hitaveitu haldi á-
fram með tilraunaborunum.
Skipulagsmál
Sjálfstæðisflokkurinn telur að semja beri heildarskipulag
fyrir umdæmi Keflavíkurkaupstaðar og hraðað verði sem
mest skipulagi á landi því, sem féll undir kaupstaðinn við
stækkun llögsagnarumdæmisins með lögum frá Alþingi nú í
maímánuði.
Á grundvelli heildarskipulagsins verði samhliða gerðar á-
ætlanir um, hve mikil byggð muni rúmast á bæjarstæðinu
og á hve löngum tíma æskilegast sé, að uppbyggingin fari
fram.
Hafnarmál
Sjálfstæðisflokkurinn fagnar hinu mikla átaki, sem ríkis-
stjórnin hefur hafið í uppbyggingu Landshafnar Keflavíkur
og Njarðvíkur í samræmi við framkvæmdaáætlun sína í
hafnarmálum, en telur nauðsynlegt, að bæjarstjórnin vinni
að því í samvinnu við landshafnarstjóm, að öraggt smá-
bátalægi verði gert sem fyrst. Þá vill Sjálfstæðisflokkurinn
leggja áherzlu á, að ýtarleg rannsókn verði látin fram fara
á því, hvort Keflavíkin sé hentugt hafnarstæði.
Atvinnumál
Sjálfstæðisflokkurinn í Keflavík telur, að auka verði veru-
Iega atvinnurekstur í bænum, sérstaklega þjónustu- og iðn-
rekstur, jafnframt því, að þær atvinnugreinar, sem nú eru
undirstaða atvinnulífsins hér í bæ s. s. útgerð og fiskvinnsla
verði efldar og auknar með fjölgun og endurnýjun bátaflot-
ans, bættri aðstöðu til móttöku og nýtingar sjávaraflans.
Telur Sjálfstæðisflokkurinn, að vinna beri á komandi árum
að fjölbreyttari iðnaði innan lögsagnarumdæmisins bæði
hvað snertir sjávarútveginn og annan iðnrekstur.
Sjálfstðæisflokkurinn telur, að bæjarfélagið eigi ekki að
annast annan atvinnurekstur en þann, sem telja megi beina
þjónustu við bæjarbúa, og þær framkvæmdir bæjarins, sem
ekki reynist hagstæðara að bjóða út.