Nesfréttir - 01.06.2023, Blaðsíða 4
4 Nesfrétt ir
Bókasafnið – 20 ár á Eiðistorgi
Það er ánægjulegt að segja frá
því að um þessar mundir eru
20 ár liðin frá því að Bókasafn
Seltjarnarness flutti í núverandi
húsnæði á Eiðistorgi en það opnaði
þar á 17. júní 2003.
Bókasafnið á sér samt miklu lengri
sögu því Lestrarfélag Seltjarnarness
var stofnað 1885 af Framfarafélagi
Seltjarnarness. Upphaflega var
safnið til húsa í Mýrarhúsaskóla
eldri en fékk síðar inni í byggingu
nýs Mýrarhúsaskóla. Árið 1983
flutti bókasafnið í nýtt húsnæði
Heilsugæslunnar að Skólabraut
en flutti svo í núverandi húsnæði
á Eiðistorgi.
Gjörbylting í starfsemi
safnsins eftir flutningana
Nýja húsnæðið við Eiðistorg
hefur haft mjög jákvæð áhrif á
starfsemi safnsins og bæjarlífið
á Seltjarnarnesi enda var gamla
húsnæðið bæði orðið þröngt og
uppfyllti ekki vaxandi þjónustuhlut
verk þess. Hlutverk bókasafnsins
hefur breyst frá því að vera „einungis“
almenningsbókasafn yfir í að
vera menningarmiðstöð okkar
Seltirninga en sú áhersla hefur
stöðugt aukist. Safnið er lifandi
stofnun, öllum opið og þar fer fram
fjölbreytt menningarstarf fyrir bæjar
búa og aðra gesti á öllum aldri allt
árið um kring. Þangað eru allir, stórir
sem smáir, velkomnir að koma, vera
og njóta umvafin bókum, menningu,
listum og notalegri stemningu.
Flutningum safnsins voru gerð
góð skil í Nesfréttum sumarið 2003.
Í viðtali við Pálínu Magnúsdóttur
þáverandi bæjarbókavörð kemur
m.a. fram að ánægja viðskipta
vina safnsins sé mikil en ekki
síðri meðal verslunareigenda á
Eiðistorgi enda jók ný staðsetning
bókasafnsins verulega umferðina
og aðsóknina að torginu sjálfu
og þjónustufyrirtækjunum þar.
Fjölmargar breytingar og
nýjungar á 20 árum
Þrátt fyrir langan tíma á Eiðistorgi
þá hafa þessi 20 ár liðið nær eins og
hendi sé veifað og ýmislegt breyst í
takt við breyttar þarfir hverju sinni.
Séu gamlar myndir skoðaðar má
sjá að safnið leit ekki eins út þá og
nú. Afgreiðsluborði og hillum var
fundinn nýr staður og safnið skipu
lagt upp á nýtt. Ný unglingadeild leit
dagsins ljós 2015, útstillingar af ýmsu
tagi, tímaritadeildin hefur tekið
breytingum og nýjasta breytingin var
þegar opnað var milli barnadeildar
og unglingadeildar 2021.
Mestu framkvæmdir eftir flutning
ana 2003 urðu þó árið 2017, þegar
öllu safnefni, þar með talið öllu efni
úr geymslum og vinnustöðvum,
auk allra vinnutækja starfsmanna,
var pakkað í kassa og troðið inn
í Gallerí Gróttu og hvar þar sem
var pláss, utan skrifstofu og safns.
Lokaði safnið svo í 6 vikur á meðan
skipt var um gólfefni og lokað betur
á milli hæða áður en að safninu var
svo stillt upp aftur.
Alls kyns nýjungar hafa litið
dagsins ljós á þessum tíma,
dagskrá í hverjum mánuði yfir
veturinn, heimsóknir leikskóla og
grunnskólabarna, ratleikir, þrauta
leikir, föndur, bókmenntakvöld,
rithöfundakvöld í jólabókaflóði og
tónleikar auk fjölmargra annarra
viðburða. Sýningarsalurinn Gallerí
Grótta er vinsæll sýningarsalur og
þéttbókaður og prjónahópurinn
Selgarnanes hefur aðstöðu í safninu
einu sinni í mánuði.
Eðlilega hafa orðið manna
breytingar, bæði yfirmanna og
starfsmanna en enn sem fyrr er
frábært að vinna og vera á Bókasafni
Seltjarnarness. Dagarnir eru
sjaldnast eins enda getur líf og fjör
einkennt safnið eina stundina en
kyrrð og ró þá næstu.
Sumarið á
safninu árið 2023
Sumarið á Bókasafni Seltjarnar
ness er fjölbreytt að vanda þar sem
finna má skemmtilega afþreyingu
fyrir alla fjölskylduna. Alla daga
er sumargetraun í gangi þar sem
dregið er um Syrpu í lok hverrar
viku og alla miðvikudaga frá kl.
1517 er boðið upp á skemmtilegt
föndur. Skákborðið er opið öllum
sem vilja, ávallt hægt að fá fjölbreytt
spil að láni, snúa persónuleika
hjólinu og sýna listir á teikniborðinu.
Blómabýtti er í boði fyrir þá sem eiga
eða vantar græðlinga, matjurtir eða
kryddjurtir. Í allt sumar standa
yfir tvö samstarfsverkefni á lands
vísu, annars vegar sumarlesturinn
Leitin að ævintýraheimum sem
er samstarfsverkefni með bóka
söfnum um allt land og hins vegar
Sögudýr Náttúruminjasafnsins
þar sem börnum er boðið að velja
sögudýr sýningar sem opnuð
verður í nýju Náttúruhúsi í Nesi.
Úrslit verða kynnt með pompi og
prakt á Gróttudeginum 2. septem
ber. Í Gallerí Gróttu stendur
yfir myndlistar sýning Bjargar
Eiríksdóttur, Fjölröddun, svo nokkuð
sé nefnt af sumarstarfi safnsins í ár.
Verið nú sem áður ávallt
h j a r t a n l e g a v e l k o m i n á
Bóka safn Seltjarnarness.
Opnunartími í sumar er: mán.
fim. 1018:30 og föstudaga 1017.
Við opnun safnsins 17. júní 2003.
Við opnun safnsins 17. júní 2003 – hér sést hvar almenningstölvurnar
voru áður og þar fyrir aftan sést í gluggana sem þá voru inn í Gallerí
Gróttu (áður Eiðissker).
Við opnun safnsins 17. júní 2003: Marta H. Richter frá Bókasafni
Mosfellsbæjar t.v. og Hulda Björk Þorkelsdóttir frá Bókasafni
Reykjanesbæjar t.h. færa Pálínu Magnúsdóttur bæjarbókaverði
Seltjarnarness gjöf í tilefni dagsins.
Hér sést inn í Gallerí Gróttu (þá Eiðissker) fyrir breytingar en þarna var
sýning á verkum Jóns Axels árið 2006.