Nesfréttir - 01.06.2023, Blaðsíða 11

Nesfréttir - 01.06.2023, Blaðsíða 11
Nesfrétt ir 11 Björg Eiríksdóttir opnaði sýning- una Fjölröddun í Gallerí Gróttu Eiðistorgi, 8. júní sl. Í verkinu Fjölröddun vinnur Björg með hugmyndina um að lög skynjana í náttúru vefjist hvert um annað og myndi mynstur í líkamanum. Í verkum sínum notar Björg miðla eins og málverk, vídeó, teikningu og textíl. Viðfangsefnin eru oftast tengd líkama manneskjunnar og veru hennar í náttúru. Sýningu lýkur 18. ágúst. Björg segir að titill sýningarinnar „Landsleg“ sé forn mynd hugtaksins landslag og vísar til þess þegar við skynjum umhverfi okkar bara til að skynja og finnum fyrir tengingu við það líkt og þegar við vorum fóstur í móðurkviði, í fullkomnu samræmi við umhverfið. Titillinn Fjölröddun vísar á sama hátt til þess þegar lög skynjana vefjast hver um aðra og mynda mynstur í líkamanum. Grunnstef færist milli radda uns allar raddir fléttast saman en eru þó sjálfstæðar. Björg var í MA námi við myndlistadeild háskólans í Portó síðasta vetur, lauk MA í listkennslu frá HA vorið 2017. Hún útskrifaðist frá fagurlistadeild Myndlistarskólans á Akureyri 2003 og lauk Bed frá KHÍ 1991. Hún starfar við myndlist samhliða kennslu myndlistargreina í Verkmenntaskólans á Akureyri og listkennslu í LHÍ. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og er þetta tólfta einkasýning hennar. Sýningin stendur til 18. ágúst. STUÐ STUÐ 0 STUÐ 1 » Þarf stærri heimtaug? » Hvaða lausn hentar best? » Er kerfið búið álagasstýringu? » Sjálfvirkt greiðslu- og innheimtukerfi? Er hleðsla rafbíla hausverkur í húsfélaginu? Við aðstoðum við að leysa málið með hagsmuni húsfélagsins að leiðarljósi Hlutlaus úttekt og ráðgjöf fyrir húsfélög um fyrirkomulag rafbílahleðslu og framkvæmdaáætlun. Útvegum og berum saman tilboð og aðstoðum við styrkjaumsóknir. thjonusta@eignaumsjon.is | eignaumsjon.is Björg sýnir Fjölröddun í Gallerí Gróttu KLAPPARSTÍGUR 29 UMHVERFISVÆN ÍSLENSK HÖNNUN Björg Eiríksdóttir myndlistarmaður.

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.