Nesfréttir - 01.06.2023, Blaðsíða 6
6 Nesfrétt ir
Aðfaranótt föstudagsins
10. maí árið 1940 hernámu
Bretar Ísland. Fyrirboði
hernámsins var flugvél sem
flaug frekar lágt yfir borgina og
vakti nokkra borgarbúa. Sumir
óttuðust það versta og héldu að
Þjóðverja væru að gera innrás.
Fjögur herskip lögðust að
bryggju í Reykjavík og stuttu síðar
var bærinn fullur af her mönnum.
Engin mótspyrna var veitt og
ekki var hleypt af skoti. Ísland
var hernumið af því að það var
talið hafa hernaðarlegt mikilvægi.
Bretar lofuðu að skipta sér ekki af
stjórn landsins en stóðu ekki við
loforðið því fyrsta verk þeirra var
að handtaka Þjóðverja sem voru á
Íslandi og senda þá í fangabúðir í
Bretlandi. Bretar lögðu undir sig
nokkrar byggingar í Reykjavík,
meðal annars Hótel Borg sem
þeir gerðu að aðalstöðvum sínum.
Talið er að um 25 þúsund breskir
hermenn hafi verið á landinu
þegar mest var árið 1941 og höfðu
þeir flestir búsetu í Reykjavík
og nágrenni. Þann 7. júlí 1941
hófu Bandaríkjamenn að landa
herliði og fluttu hingað samtals
45.000 hermenn. Bretar fóru samt
ekki allir fyrr enn eftir stríðslok.
Hernámið snerti flestar byggir
landsins þótt með mismiklum
hætti væri. Seltjarnarnesi er ekki
undanskilið. Hernaðarumsvif
og mannvirki voru nokkur á
Nesinu einkum á Valhúsahæð
en einnig í Suðurnesi.
Auður Sigurðardóttir sem bjó á
Bjargi við Norðurströnd ræddi við
jólablað Nesfrétta 2012. Hún sagði
í viðtali við blaðið að her setan á
stríðsárunum hafi nokkuð mótað
umhverfið. „Herinn var hér í
túninu á Bergi og eitt af því sem
hann gerði var að sprengja fyrir
virki. Þar voru hermenn á vakt,
eftirlitsmenn sem áttu að fylgjast
með öllum skipaferð um inn til
Reykjavíkur. Stríðinu lauk og herinn
fór en ummerkin eru enn þá hér á
garðinum. Virkið og gangbrautin.
Okkur vantaði einhverju sinni mold
í garðinn og Hafsteinn maðurinn
minn sagði þá að nóg væri af henni,
við þyrftum bara að grafa virkið upp
sem við gerðum. Virkið setur mikinn
svip á garðinn og krökkunum fannst
þetta ekki ónýtt leiksvæði – sjálft
Bretavirkið.Auður gekk síðan með
tíðindamanni út í garðinn að baki
Bergi og sýndi honum hervirkið.
Camp Grótta
Bæjarstjórn Seltjarnarness lét fyrir
nokkrum árum hefist handa við að
endurreisa gamlar stríðsminjar. Um
var að að ræða tvenn mannvirki,
byrgi á Valhúsahæð og ljóskastarahús
í Suðurnesi. Mannvirkin voru hluti af
stjórnstöð strandvarna Reykjavíkur
í síðari heimsstyrjöld en Bretar létu
reisa það ásamt tveimur fallbyssum
um sumarið 1940. Stjórnstöðinni
var ætlað að verja innsiglinguna að
Reykjavíkurhöfn og flotastöð Breta í
Hvalfirði fyrir skipum og kafbátum
Þjóðverja. Þrátt fyrir starfsemi á
vegum hernámsaflanna í stríðinu
eru lítil verksummerki eru um hana
nú. Stríðsminjarnar teljast ekki til
fornminja vegna þess að þær eru
ekki orðnar hundrað ára gamlar. Í
tímans rás hafa þessi mannvirki
hrunið og skemmst en bæjarstjórnin
hafði hug á að endurbyggja þau
aftur og varðveita til lengri tíma.
Á hernámsárunum reistu Bretar
,,Camp“ Grótta á Valhúsahæð, þar
sem bæði voru braggar og skotvarna
byrgi. Þar voru einnig settar upp
loftvarnabyssur og fallbyssur til að
verja innsiglinguna til Reykjavíkur og
Hvalfjarðar. Einu ummerkin nú eru
steyptar grunnplötur og stakar rústir
skotvarnabyrgja. Á Valhúsahæð voru
árið 1980 skráðar 14 rústir hernaðar
mannvirkja á sérstök númer, auk
þess sem 15 til 20 rústir á austan
og norðaustanverðri hæðinni voru
skráðar saman á eitt númer. Margar
þessara rústa eru nú horfnar, enda
hefur talsvert rask verið á hæðinni
síðan þær voru skráðar.
Úr höggnu grjóti
og steinsteypu
Þór Whitehead, prófessor í
sagnfræði hefur rannsakað þessi
mál og fjallað um þau. Hann fagnaði
því að Seltjarnarnesbær ætli að
varðveita þessar minjar, þar sem
nær skipulega hafi verið gengið fram
í því að eyðileggja stríðsáraminjar í
landinu á umliðnum áratugum. Í
grein sem hann birti um málið sagði
hann að sérstök byggingardeild úr
landgönguliði breska flotans hafi
verið send til landsins til þess að
gera smíði þeirra sem best úr garði.
Eitt það merkilegasta við mann
virkin hafi verið byggingaraðferðin
en virkjagerðarmennirnir reistu
byrgin á Valhúsahæð úr höggnu
grjóti og steinsteypu og var þar fylgt
sér stökum byggingarstaðli við virkja
gerð sem ekki sást annars staðar á
landinu. Þessi deild ferðaðist svo um
landið og reisti önnur sam bærileg
mannvirki fyrir stöðvar Breta á
landsbyggðinni, til dæmis í Hvalfirði
og Eyjafirði.
Skip lýst upp
Ljóskastararnir á Seltjarnarnesi
lýstu upp skip að nóttu til, svo að
aðgreina mætti hvort þar væri
vinur eða fjandmaður á ferð. Einnig
var strengdur sérstakur strengur,
sem nam breytingar á segulsviði,
frá stjórnstöð í Bollagörðum á
Seltjarnarnesi og yfir til Akraness.
Var þannig hægt að vara við ferðum
kafbáta og annarra skipa sem sigldu
óboðin yfir strenginn. Vinveittum
skipum var hins vegar gert að sýna
sérstakar veifur að degi til og ljós
merki að nóttu til, sem höfðu verið
ákveðin þann daginn
Stærstu byssur á Íslandi
Í grein Þórs kemur fram að fall
byssurnar tvær sem reistar voru
á Valhúsahæðinni hafi ásamt
sam skonar byssum í Hvalfirði verið
þær stærstu sem Bretar létu reisa á
Íslandi, með sex þumlunga (15 cm) í
hlaupvídd. Þær drógu um 12 kílóme
tra út á haf, og var ætlað að reyna að
koma í veg fyrir að Þjóðverjar myndu
gera hér innrás. Þrátt fyrir það þóttu
byssurnar heldur lítilfjörlegar og telur
Þór ljóst að líklega hefðu byssurnar
ekki haldið innrásarflota Þjóðverja
lengi frá og hér hefði orðið fátt um
varnir. Þegar Bandaríkjamenn tóku
við hervörnum hér sumarið 1941
kom í ljós að þeim þótti lítið til koma
til bresku byssanna. Bættu þeir þó
sjálfir ekki úr, þar sem innrásar
hættan frá Þjóðverjum minnkaði
eftir því sem leið á stríðið. Ekki kom
til skipskaða af þessum aðförum
og höfðu hernaðarumsvifin í heild
takmörkuð áhrif á líf fólks.
Hernámsárin á Seltjarnarnesi
Stærstu byssur Breta á Íslandi
Stríðsminjar á Valhúsahæð.
Þessi mynd mun tekin á öðrum áratug liðinnar aldar. Trúlega um 1912.
Þarna sést vel af hverju Bretar völdu Valhúsahæð. Gott útsýni bæði til
lofts og sjávar allt um kring.