Nesfréttir - 01.06.2023, Blaðsíða 15

Nesfréttir - 01.06.2023, Blaðsíða 15
Nesfrétt ir 15 Maí mánuður var viðburðaríkur hjá krökkunum í handboltanum. Helgina 12 – 14. maí fór fram síðasta mót tímabilsins hjá 7. flokki karla og kvenna. Mótið var á Selfossi og gistu krakkarnir eina nótt í Vallarskóla. Strákaliðin voru 8 talsins og stelpuliðin 5 talsins. Samtals tóku yfir 60 Gróttukrakkar þátt í mótinu. Krakkarnir stóðu sig frábærlega og gaman að sjá uppskeruna á leikvellinum eftir veturinn. Framtíðin er svo sannarlega björt hjá okkur í Gróttu. Þá héldu 7. flokkur karla Gróttu og KR mini mót í lok maí þar sem bæði lið tefldu fram um 8 liðum. Þá tefldu foreldrar drengjanna einnig fram liðum og vart mátti á milli sjá hvor liðin skemmtu sér betur. Mótið endaði svo með hamborgaraveislu og mikilli gleði á Nesinu. Eldri ár 6. flokks karla og kvenna spiluðu einnig sín síðustu mót í maí. Báðir flokkar tefldu fram 2 liðum og stóðu sig virkilega vel! Magnús Karl Magnússon var ráðinn yfirþjálfari barna­ og unglingastarfs handboltans. Magnús Karl er uppalinn Eyjamaður og spilaði handbolta með ÍBV. Hann hefur sinnt handknattleiksþjálfun hjá yngri flokkum ÍBV og Vals sem og styrktarþjálfun. Magnús Karl er íþróttafræðingur að mennt og með MSc. í íþróttasálfræði. Við hlökkum mikið til samstarfsins við Magnús, hann hefur þegar hafið störf. Uppskeruhátíð handboltans fór svo einnig fram í lok mánaðar. Hátíðin var þrískipt vegna fjölda og fór fram í hátíðarsal Gróttu. Hver iðkandi fékk persónulegt viðurkenningarskjal frá þjálfurum sínum og barna­ og unglingaráð bauð svo iðkendum sínum í pylsuveislu að lokinni afhendingu viðurkenningar. Í heildina æfðu um 380 iðkendur handknattleik hjá Gróttu og KR í vetur og ljóst að starfið er virkilega öflugt og lofar góðu fyrir næstu ár! Fyrir flesta flokka markaði hátíðin lok tímabilsins sem hefur verið virkilega viðburðaríkt og skemmtilegt. Eldri flokkar félagsins halda þó áfram að æfa í júní enda stefna 4. og 5. flokkar karla og kvena á Partille Cup og 3. flokkur karla í æfinga­ og keppnisferð til Þýskalands. Barna­ og unglingaráð Gróttu í handbolta þakkar öllum iðkendum og aðstandendum þeirra kærlega fyrir frábæran handboltavetur og við hlökkum til að taka á móti iðkendum okkar aftur í handboltaskólanum í ágúst og svo byrjar starfið af krafti við upphaf skólaárs síðar í sama mánuði. Mikið að gera hjá yngri flokkum handboltans í maí Afgreiðslutími: Mán: 10-16 Þri-fös: 10-17 Lau: 11-16 ÓÐINSGÖTU 1, REYKJAVÍK systrasamlagid.is @systrasamlagid Sími: 511 6367 HUGSAÐU VEL UM HÚÐINA Einstakur fatnaður Ripple jóga klæðnaður er að okkar mati einn sá best sniðni fyrir jóga, allskyns hreyfingu og lífið. Góðgerlapartý 20 billjónir góðgerla. Synerbio daglegir meltingargerlar eru í hópi bætiefna ársins 2023 frá Virdian. Inniheldur allt litróf prebiótíska oligosakkaríða og inúlín sem fjölgar góð­ gerlunum. Kíktu á úrvalið. Blóðrásabætandi verðlaunaolía Sellulít olía er sérlega áhrifarík lífræn nuddolía við appelsínuhúð. Örvandi blanda af blóðrásarbætandi olíum og jurtum sem vinna saman að sléttri, bólgulausri og fallegri húð. Inniheldur m.a. græna kaffibaunaolíu, gotu kola, sætti birki ofl.

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.