Vesturbæjarblaðið - nóv. 2023, Blaðsíða 8
Nú í október kom út hjá
Bókaútgáfunni Hólum
bókin Vesturbærinn
eftir Sigurð Helgason
og ber hún undirtitilinn Húsin -
Fólkið - Sögurnar. Þar kennir
ýmissa grasa, farið er í stuttu máli
yfir byggingarsögu hverfisins, en
hún spannar flest stig íslenskra
byggingarhátta. Þar voru torfbæir
á sínum tíma, við tóku steinbæir,
sem voru sérstakt byggingarform,
síðan timburhús og því næst
steinhús af öllum gerðum.
Í bókinni stígur minnisstætt
fólk fram í sviðsljósið og má þar
nefna Bryndísi Zoëga, Steindór
H. Einarsson, Ásdísi Steinþórs-
dóttur, Harald Á. Sigurðsson,
Guðbjörn Jónss on (Bubba),
Guðrúnu Helgadóttur, Þórarin
Eldjárn, Svein Guðjónsson, Halldór
fisksala, Jósefínu í Nauthól, Bóbó
á Holtinu, Agga ljósmyndara,
Gunnar A. Huseby, Svein Jónsson
og Bjarna Felixson og er þá fátt upp
talið. Vesturbjarblaðið fékk leyfi
útgefanda til þess að grípa niður í
sögur af Haraldi Á. Sigurðssyni
leikara með meiru og Bjarna
Felixsyni knattspyrnu- og íþrótta-
fréttamanni sem lést fyrir skömmu.
Haraldur Á. Sigurðsson
Haraldur Á Sigurðsson var Vestur-
bæingur í húð og hár, fæddur að
Vesturgötu 28, þann 22. nóvember
1901. Móðir hans, Þórdís Hafliða-
dóttir, lést þegar hann var aðeins
fimm ára gamall og flutti hann þá
til móðurömmu sinnar og -afa að
Suðurgötu 6 og síðar til föður síns,
Ásgeirs Sigurðssonar, og konu
hans, Millýjar Sigurðsson, ofar í
sömu götu, eða á númer 12. Hann
hóf síðan búskap með konu sinni,
Guðrúnu Ólafíu Hjálmars dóttur,
sem var alltaf kölluð Ollý, að
Hávallagötu 1 en síðar lágu leiðir
þeirra víða, meðal annars að Litlu-
Drageyri í Skorradal. En Vestur-
bæingur var hann alltaf. Segja má
að Haraldur hafi brugðið sér í ýmis
gervi og ólík á ævi sinni. Hann var
liðtækur knattspyrnumarkvörður á
yngri árum en síðar var hann allt
í senn; gamanleikari, leikstjóri,
rithöfundur, verslunarmaður, bóndi,
náttúruunnandi og veiðimaður og
margt fleira. Það var hið fyrstnef-
nda sem hann varð hvað þekktastur
fyrir enda var hann burðarás í
leiklistarlífi landsins í hartnær þrjá
áratugi. „Það var dauður maður
sem Haraldur gat ekki fengið til
að brosa,“ skrifaði Árni Helgason
í Stykkishólmi í minningargrein
um þennan vin sinn. Haraldur var
kunnur af tilsvörum sínum við ýmis
tækifæri. Hann var hávaxinn maður
og skrokkmikill og notaði stundum
vaxtarlag sitt til að vekja kátínu
í kringum sig, bæði á leiksviði og
annars staðar.
Einn af góðum vinum Haraldar
var Páll Jónsson, iðulega kallaður
Púlli. Það sem einkenndi hann öðru
fremur var bjartsýnin, rólyndið
og nægjusemin. Hann var alltaf
ánægður og brá aldrei skapi, hafði
sennilega ekki andstyggð á vinnu
en það stappaði nærri því. Hollasta
hreyfingin, sem hann vissi um, var
að aka í bíl. Og uppáhaldsrétturinn
hans var kjötkássa því að hana mátti
borða með annarri hendi og hafa
hina á meðan í vasanum. Púlli sagði
líka: „Ég held að það sé best að gera
ekki neitt og hvíla sig svo vel á eftir.“
Þetta kom líka frá honum: „Sá sem
getur ekki sofið til hádegis hefur
vonda samvisku.“
Þeir Haraldur og Púlli höfðu
gaman af því að ráða krossgátur.
Sátu þeir oft saman, réðu gáturnar
yfir kaffibolla og hjálpuðu þá hvor
öðrum við að fylla í eyðurnar.
Eitt sinn vantaði þá fjögurra stafa
orð yfir „matur“ og lauk svo að báðir
gáfust upp. Um kvöldið var landslei-
kur í knattspyrnu milli Íslendinga
og Svía á Melavellinum og fóru þeir
félagar þangað. Í miðjum leiknum,
þegar Íslendingar voru í hörkusókn
og nánast allir áhorfendur í
uppnámi og hvetjandi landa sína,
hnippir Púlli í Harald og segir:
„Heyrðu, Haraldur! Það er kæfa!“
Hér segir Haraldur sjálfur frá
einu af ævintýrum þeirra Púlla:
„Í æsku vorum við dálítið
vín hneigðir, eins og gengur og
gerist. Eitt haust, er við vorum við
skál, fengum við þá hugmynd að
fara til Þingvalla og gera okkur
glaðan dag. Þetta var um helgi og
því mann margt á sögustaðnum. Er
við leituðum eftir gistingu í Valhöll
var okkur sagt að öll rúm væru þegar
lofuð að undanteknum tveim í átta
manna herbergi. Var ekki um annað
að ræða en að gera sér þau að góðu.
Um daginn var drukkið hraust-
lega, því að við vorum engir
meðal menn í þeim sökum, hann
Púlli minn og ég, þegar við vorum
upp á okkar allra besta. Er líða tók
á kvöldið gerðumst við ölvaðir
nokkuð og gengum því snemma til
náða. Þegar við sofnuðum, þreyttir
eftir dagsins önn, voru engir af
herbergisfélögum okkar mættir.
Við vöknuðum snemma næsta
morgun, litum í kringum okkur
og sáum hrjótandi haus í hverju
rúmi. Því miður var líðan okkar
nú ólík því sem verið hafði kvöldið
áður – mesti glansinn var farinn af
tilverunni. Eins og alþjóð veit eru
timbur mennirnir einu íslensku
iðnaðar mennirnir sem mæta
ávallt stundvíslega á vinnustað
og stundum svo, að óhugnan-
legt verður að teljast. Umræddan
morgun voru þeir óvenju árrisulir
og athafnasamir. Engu var líkara en
að þeir ynnu í ákvæðisvinnu eða
eftir uppmælingu. Var nú aðeins eitt
ráð fyrir hendi til þess að reyna að
lama starfsgetu þessara þokkapilta.
Það var að stramma sig af.
Er við höfðum stundað okkar
skemmtilegu og þjóðlegu iðju
um hríð varð Púlli þess var að
járn smiður var að skríða ofan
á sænginni hans. Hann strauk
járnsmiðinn burt svo að lítið bar
á, enda kannski ekki alveg viss um
raunverulega tilveru skriðdýrsins.
Ef tveir menn sitja að drykkju og
annar sér einkennilegar pöddur
en hinn ekki – þá er sjaldnast gott
í efni. En innan stundar var annar
járnsmiður kominn þarna og nú var
ekki um að villast. Við sáum hann
báðir.
Þótt Púlli væri rólyndur og
þolin móðasti maður veraldar
þá ofbauð honum þessi óvænti
átroðningur enda rann honum
svo í skap að hann sló dýrið ofan af
sænginni um leið og hann sagði:
„Hvaða helvítis járnsmiðir eru
þetta?“
Þá reis maður upp við dogg í einu
rúminu og sagði afar hæglátlega:
„Við erum úr Héðni.“
Bjarni Felixson
Í félagsblaði KR, sem gefið var út
árið 1969 í tilefni af 70 ára afmæli
stórveldisins, er viðtal við Bjarna
Felixson, sem á sínum tíma hlaut
viðurnefnið Rauða ljónið og var
hann síður en svo óánægður
með það, baráttuglaði vinstri
bakvörðurinn. Grípum hér niður í
viðtalið:
„Ég hef verið í þessu í rúman
áratug og aldrei verið ánægðari
með leik minn en þegar liðinu er
illa tekið af áhorfendum. Sérstak-
lega hef ég notið þess, ef þeir hafa
tekið mig fyrir, því að það hefur
hert mig í baráttunni. Ég hef komist
áfram á keppnisskapi og hörku
og verið bestur, er við höfum átt í
vök að verjast. Maður var orðinn
dauðleiður á þessu árið 1959, þegar
við unnum öll lið með yfirburðum.
Einkum er þó margs að minnast
frá Akureyri. Árið 1960 höfðu þeir
átt lélega byrjun í mótinu, eins og
oftar, en áttu eftir heimaleikina
síðari hluta sumars. Við áttum
að fara norður og þá höfðu þeir
unnið Fram fyrir skömmu. Daginn
fyrir norðurför okkar var tilkynnt
landslið og var „augasteinninn“ [Jón
Stefánsson] þeirra utangarðs. Var
nokkur ólga nyrðra af þeim sökum
og þegar við komum var fullur
völlur eins og venjulega.
Í fyrri hálfleik áttum við varla
upphlaup. Akureyringar áttu
leikinn og áhorfendur voru allæstir.
Snemma í leiknum slapp einn
þeirra í gegn en ég næ að renna mér
á knöttinn og afstýra hættunni. Varð
þá nokkur urgur meðal áhorfenda.
Rétt á eftir lendir okkur aftur saman
á kantinum og ég næ boltanum
eftir návígi og geysist fram völlinn.
Ræðst hann þá aftan að mér með
þeim árangri að ég hlaut mikið sár
á fæti og áminningu frá dómara
en forystumaður heimamanna
heimtaði að ég yrði rekinn út af.
Ég lék þó áfram og barðist „eins
og ljón“ og Gísli [Þorkelsson],
varamarkvörður, varði meistaralega.
Eftir hálftíma leik skora Akurey-
ringar, en Þórólfi [Beck] tókst að
jafna fyrir hálfleik. Í leikhléi kom
héraðslæknirinn, leit á sárið og
sagði að það yrði að gera að því, en
ég aftók það með öllu.
Í síðari hálfleik náðum við tökum
á leiknum og sigruðum, 5:2. Þá lék
ég fjær stúkunni og var þar fyrir
hópur 20-30 stráka undir stjórn
fyrrgreinds íþróttaleiðtoga norðan-
manna. Er ekki að sökum að spyrja,
að þegar séð var fyrir um úrslit, hófu
þeir grjótkast að okkur.
Í miðjum hálfleiknum fékk Gísli
mikið spark og leist mér þá ekki á
blikuna. Meðan menn hugðu að
meiðslum hans, tók ég boltann og
henti honum á bak við grjóthrúgu
við völlinn. Æpti þá lýðurinn: Út af
með rauða tuddann! Var mörgum
heitt í hamsi og í leikslok ruddust
menn inn á völlinn í bræði sinni.
Ég hafði vart gengið 10 skref,
eftir að flautað var af, þegar
lögregluþjónar koma til mín og
biðja mig að koma eins og skot.
Voru þeir komnir að undirlagi
héraðslæknisins og óku mér til hans
í aðgerð.
En það er af félögum mínum að
segja, að þegar þeir komu í rútuna,
sem aka skildi til búningsklefa
annars staðar í bænum, urðu þeir
þess varir að mig vantaði. Þeir þustu
út á völl og fundur þar annan skóinn
minn, sem ég hafði losaði mig við
vegna meiðslanna, er leik lauk. Þá
mælti Hörður bróðir þessi fleygu
orð:
„Hérna er skórinn. Þeir eru búnir
að drepa Bjarna bróður!“
Metaðsókn var á leiknum, 3964
áhorfendur mættu til að horfa á ÍBA
og KR og urðu einhver blaðaskrif út
af þeim skrílslátum sem þarna urðu.
8 Vesturbæjarblaðið NÓVEMBER 2023
Húsin – Fólkið - Sögurnar
Vesturbærinn:
Haraldur Á. Sigurðsson.
Bjarni Felixson.