Börn og menning - 2022, Blaðsíða 28
Börn og menning28
Loftslagsádeilu er laumað inn en það er málefni sem
yngsta kynslóðin hefur einmitt barist fyrir.
Heimavarnarliðið segist vera að vinna „tímamótaað-
gerð í baráttunni gegn loftslagsvánni,“ (Nornasaga –
Þrettándinn, bls. 124) fyrir svokallað Loftslagsmála-
ráðuneyti. Síðan segir ríkisstjórnin að dularfulli
trjá vöxturinn sé liður í „skógræktarátaki stjórnvalda“
(bls. 160) til að standa við Parísarsáttmálann. Það er
gaman hvernig samfélagsmálum er fléttað fínlega inn í
söguna á kómískan hátt. Háðið er augljóst og bæði
börn og foreldrar sem eru að lesa með börnunum geta
skemmt sér yfir þessu.
Hasar í Goðheimum
Þriðja bókin, Nornasaga – Þrettándinn, gerist í Goð-
heimum þar sem Katla hittir örlaganornirnar þrjár,
Urði, Verðandi og Skuld. Katla er fjötruð við Gullveigu
með silfurþræði og leitar til þeirra til að slíta tengslin.
Goðin góðkunnu, Þór, Óðinn, Loki, Frigg og Freyja,
koma meðal annars við sögu á þessu lífshættulega
ferðalagi þeirra. Stór kostur bókanna þriggja er að í
hverri einustu bók eru lesendur kynntir fyrir nýjum
skrímslum og persónum úr norrænni goðafræði.
Stundum eiga framhaldsbækur það til að verða
formúlukenndar en Kristínu Rögnu tekst að forðast
það og býður upp á eitthvað nýtt í hverri bók. Þar sem
þriðja bókin gerist í Goðheimum fá lesendur að ferðast
úr Reykjavík inn í nýja ævintýraveröld sem er full af
kynjaverum. Þeirra á meðal er kínverski drekinn
Chiwen sem hefur einhvern veginn sprottið upp úr
póst korti. Á vegi Kötlu og Mána verða líka Ratatoskur,
Hræsvelgur, Tanngrisnir og Tanngnjóstur. Ungir
lesendur geta vonandi skemmt sér yfir þessum skrítnu
nöfnum líkt og Katla gerir sjálf.
Eftirtektarvert er að í þessari bók gera konur goða-
fræðinnar uppreisn gegn alræðistilburðum Óðins en
hann hefur „stuðlað að valdaójafnvægi kynjanna og
mismunandi kynstofna...“ (Nornasaga – Þrettándinn,
bls. 190). Frigg fær nóg og bindur enda á þetta feðra-
veldi með því að galdra Óðin ofan í Kókómjólkur-
fernu. Þetta er auðvitað svolítið spaugilegt en einnig
ákveðin speglun á samtímanum þar sem konur hafa alla
tíð verið í öðru sæti en eru sífellt að reyna að leiðrétta
kynjahallann.
Nornasaga – Þrettándinn er uppfull af hasar og missir