Börn og menning - 2022, Page 32
Ótemjur
Höfundur: Kristín Helga
Gunnarsdóttir
Bjartur, 2021
Á síðasta ári kom út ný bók eftir
metsöluhöfundinn Kristínu Helgu
Gunnarsdóttur. Kristín hefur gefið út
fjölda af barna- og unglingabókum og
er líklega þekktust fyrir bækurnar um
prakkarann Fíusól. Aðalpersónan í nýju-
stu bók hennar, Ótemjur, er hin þrettán
ára Lukka. Sagan hefst á því að Lukka miss-
ir ömmu Fló á afmælisdegi sínum. Amma
hennar ól hana upp og áður en hún dó bjó hún til
áætlun svo að Lukka myndi ekki „lenda á flakki í kerf-
inu“. Samkvæmt planinu er Lukka send upp í sveit til
hjónanna Freyju og Rainers. Þar kynnist Lukka heimi
mjög ólíkum þeim sem hún ólst upp í. Áhugaverðar og
skemmtilegar persónur einkenna söguna og í sveitinni
fær hún á sig þjóðsagnalegan blæ. Sagan fjallar um ein-
mana, hrædda en þó hugrakka stelpu sem er að leita að
samastað í heiminum.
Lukka og ólukkan
Líf Lukku hefur ekki verið dans á rósum. Foreldrar
hennar eru fíklar og móðir hennar, Stína stuð, kem-
ur oft með „skuggaverur“ í kjallaraíbúð mæðgnanna
og djammar alla nóttina. Amma Fló var þó ávallt til
staðar fyrir Lukku og hún lærði margt af henni. Meðal
Öll erum við ótemjur
Diljá Þorbjargardóttir
Bækur
annars lærði hún að hafa alltaf með sér
litla stílabók þar sem hún skrifar niður
ýmis plön og áætlanir þegar lífið virðist
vera ómögulegt. Einnig léku þær sér að
því að búa til ný blótsyrði, ýmist á staðn-
um í augnablikinu eða vandlega smíðuð.
Blótsyrðin þýða í raun ekkert en koma
í veg fyrir að Lukka noti raunveruleg
blótsyrði sem amma Fló taldi vera ofnot-
uð og asnaleg. Dæmi um nýyrði þeirra
eru rumputruntur, fýlustrompur, bláskot-
ans, holbítis og hrollvekjutröll. Þessi orða-
leikur er mjög skemmtilegur. Samband
ömmu Fló og Lukku var mjög sterkt og
náið og því ríkir mikil sorg og ólukka þegar
amma Fló deyr í byrjun bókar og það á afmælisdegi
Lukku.
Lukka verður í raun munaðarleysingi þegar amma
hennar deyr því foreldrar hennar eru óhæfir. Munað-
arleysingjar eru algengar aðalpersónur í barna- og ung-
lingabókum þar sem ævintýrið eða sagan getur ekki átt
sér stað ef foreldrar eða forráðamenn eru til staðar. Saga
Lukku og ævintýri hennar í sveitinni hefði aldrei haf-
ist ef amma hennar hefði ekki dáið og foreldrar hennar
væru hæfir. En þó að saga hennar hefjist vegna forráða-
mannaskorts snýst hún í raun um leit að nýrri fjöl-
skyldu og henni lýkur þegar markmiðið næst í sveitinni
hjá Freyju og Rainer.
Fortíðin og nútíminn
Í sögunni blandast fortíð og nútími saman á skemmti-
Kápuna hannaði
Hlíf Una Bárudóttir.