Fréttir - Eyjafréttir - 19.10.2023, Blaðsíða 9
19. október 2023 | | 9
um í Vestmannaeyjum heldur bara
yfir landið. Þarna getum við gert
betur í mörgum árgöngum og við
þurfum að hjálpast að við það.“
Áfall en ekki heimsendir
Það var ekki hægt að sleppa Ellert
án þess að ræða sumarið hjá
meistaraflokkunum. „Þetta var
auðvitað erfitt sumar og niður-
staðan ákveðið áfall að sjá bæði
liðin og KFS falla niður um deild.
Þetta er samt ekki heimsendir.
Staðan er nú samt sem áður sú að
það eru ekki nema tvö ár síðan
strákarnir komu upp úr þessari
deild. Það gleymist svolítið í
þessari umræðu allri. Það hefur
líka oft verið rætt að það sé mjög
erfitt að komast upp úr næst efstu
deild karla. ÍBV hefur fallið þang-
að tvisvar á þessari öld og í bæði
skiptin stoppað þar í tvö tímabil
þannig að það er bara verkefni
framundan.“
Endurskoða og horfa inn á við
Aðspurður um tekjutap af því að
leika ekki í efstu deild vildi Ellert
ekki nefna upphæðir en sagði það
umtalsvert. „Það munar auðvit-
að um allar tekjur í þessu starfi.
Það er mikill munur á tekjum af
sjónvarpi og svo EUFA styrkjum.
Eins og staðan er núna þá verða
breytingar á rekstrinum næsta
sumar, við þurfum að endurskoða
hvernig við stillum upp liði í 1.
deild. Við þurfum að horfa inn á
við og nýta þá krafta sem eru í
boði hér heima.“
Svörin ekki á kaffistofum
bæjarins
Það hafa ýmis spjót staðið á ÍBV
síðustu vikurnar á samfélagsmiðl-
um og víðar. Þar hafa verið til
umræðu bæði árangur sumarsins
og staðan í málefnum yngri
flokka. Þetta hefur að sjálfsögðu
ekki farið fram hjá Ellert frekar en
öðrum. „Það er eðlilegt, það hafa
allir skoðanir á ÍBV sama hvort
þær eru góðar eða slæmar. Það
sem hefur aftur á móti gerst að
ég hef fengið til mín fólk síðustu
daga sem hefur bæði viljað fá
betri upplýsingar um stöðu mála
sem er mjög gott það eru allir vel-
komnir í Týsheimilið því svörin
fást venjulega ekki á facebook eða
á kaffistofum úti í bæ. Það hefur
líka komið aðilar sem hafa viljað
hjálpað til og það er rétt að taka
það fram að það eru allir þeir sem
vilja leggja sitt af mörkum fyrir
ÍBV eru velkomnir og ég mun
engum vísa frá. Það er nóg af
verkefnum fyrir hendi og hægt að
finna verkefni fyrir alla.“
Sjálfboðaliðarnir verðmætasta
eignin
Ellert segir líka ýmislegt í gangi í
félaginu og þar beri hæst sú vinna
sem sáttahópurinn sem skipaður
var hefur verið að vinna. „Þetta er
mikil vinna og umfangsmikil sem
hópurinn hefur staðið að og fram
hefur farið mikil endurskoðun á
ýmsu innan félagsins. Mest vinna
liggur á bakvið barna og ung-
lingastarfið. Aðalstjórn hefur verið
að kynna þessa vinnu fyrir nefnd-
um og ráðum innan félagsins og
hefur þessu verið vel tekið og það
er góður samhljómur í félaginu
að bæta það sem þarf að laga og
horfa til framtíðar félaginu okkar
til heilla.“
Ellert hafði þetta að segja að
lokum. „Það verðmætasta sem
ÍBV á eru sjálfboðaliðarnir og við
reiðum okkur mikið á þá. Í svona
stormi eflist fólk og hópurinn
þjappast saman. Það er ekkert
félag á landinu sem býr yfir jafn
sterkum hóp sjálfboðaliða. Það
er ekkert félaga á landinu sem
getur gert svona hluti eins og við
gerum.“
ÍBV - Keflavík í sumar í Bestu deild karla.
ÍBV - Keflavík í sumar í Bestu deild kvenna.
Fjórði flokkur kvenna gerði góða hluti í sumar og komust í undanúrslit í
Íslandsmótinu. Ljósmyndir/Sigfús Gunnar.