Reykjanes - 23.03.1988, Blaðsíða 8
11. tbl. miðvikudagur 23. mars 1988
TÉKKAREIKNINGUR
SPARISJÓÐSINS
Með SÉRstakri kveðju sparisjóðsins
Buio að samþykkja
stalbræoslu
VOGAR: Búið er að fjalla um umsókn Stálfélagsins hf. um starf-
rækslu stálbræðslu í Kúagerði í byggingarnefnd Vatnsleysustrand-
arhrepps. Var á fundinum bókaö að nefndin fallist á starfrækstu
fyrirtækisins, en að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Þau eru að sjónmengun verði engin, brotamálurinn verði
geymdur í skemmum og að vinnusvæði verði bundið slitlagi.
Hreppsnefnd Vatnsleysustrandarhrepps samþykkti síðan á fundi
sínum fyrir skömmu þessa afgreiðslu byggingarnefndar og bókaði
einnig: „Jafnframt vill hreppsnefnd undirstrika að hugsanleg stað-
- að uppfylltum
ákveðnum
skilyrðum
setning stálbræðslu í hreppnum er háð því að fyrirtækið greiði
opinber gjöld til sveitasjóðs Iögum samkvæmt þegar og ef þar að
kemur.“
Ekki mun vera ákveðið enn hvenær framkvæmdir hefjast við
stálbræðsluna. Og nú mun vera í gangi samkvæmt heimildum
blaðsins viðræður um þátttöku sveitarfélagana í fyrirtækinu.
■ Hýr
sjúkrabíll!
Nu er ketnin á göturnar nýr
sjúkrabíil sem Rauða kross
deildin á Suðurnesjum hefur
fest kaup á. Er nýja biíreiðin
af sömu gerð og su gamla en
hún er af FORD ECONOLINE
gerð. Nlun þessi nýja bifreið
leysa hina eldri af hólmi en
hún mun vera keyrð um 180
þúsund km, sem mun jafn-
gilda að gömlu bifreiðinni
hafi verið ekið 2.250 sinnum
Reykjanesbrautina til
Reykjavikur.
Jón Kr.
57 atvinnulausir
á Suðurnesjum
fékk
viður-
kenn-
ingu
frá
KKÍ
Jón Kr. Gíslason leik-
maðurinn snjalli úr ÍBK var
afhent fyrir stuttu viður-
kenning frá Körfuknattleiks-
sambandi íslands fyrir að
hafa leikið 50 leiki fyrir
íslands hönd í körfuknatt-
leik. Var viðurkenningin
sem Jón hlaut vegleg
stytta.
Jon Kr. Gislason.
KEFLAVÍK: Alls voru 57 einstaklíngur atvínnu-
lausir á Suðurnesjum i febriiarmánuði að því er
segir í frétt frá vinnumálaskrifstofu félagsrnála-
ráðuneytisins, en i janúarmánuði voru atvinnu-
lausir á Suðurnesjum 143. Flestir voru atvinnu-
lausir i Keflavík eða 35. Tálf voru á atvinnu-
leysisskrá í Njarðvik. 6 í Sandgerði og 4 i Garð-
inum. Flestir hinna atvinnulausu eru konur eða
41 af 57.
Kvenfélagið
gaf 500 þúsund
GRINDAVÍK: Nýlega afhenti t'ormaður Kvenfélags
Grindavíkur Giiðveig Siguröardóttir Sverri Jóhanns-
syni formanni byggingarnefndar EHiheimilisins í
Grindavík 500 þúsund krónur. Var hér um að ræða fé
sem kvenfélagið hafði safnað til elliheimilisbyggingar-
innar. Guðveig sagði í samtali við blaðið að kvenfélags-
konur hafi nú safnað til byggingarinnar um 1.400 þús-
undum krónum. Kvenfélagið hefur aflað þessa fjár
með bingóhaldi, þær eru með kaffisölu á sjómanna-
daginn og síðan hafa konurnar haldið kvöldvökur.
Nefndi hún sem dæmi að á kvöldvöku sem félagið hélt
nýlega hefðu 200 þúsundir króna safnast.
Útvarp Suðurnes um páskana
KEFLAVIK: Útvarpsáhugamenn
munu alveg örugglega spenna
eyrun til fulls því Útvarp Suður-
nes nuin þá hljóma á svæðinu.
Verða útvarpssendingar þessar í
tengslum við Menningarvökuna
sem hefst í kvöld. Byrjaó verður
að útvarpa á skírdag og svo verður
útvarpað alla páskana fram á
annan í páskum.
Mun verða byrjað kl. 14.00
hvern dag en dagskrá verður fram
á kvöld.
Þátttakendur í dagskránni
verða öll launþegasamtök á
Suðurnesjum auk þess verður
IBK og iS með í dagskránni en fé-
lögin fá klukkustund til að kynna
sig og starfsemi sína. Segja má að
dagskrárgerðarmenn séu þeir
sömu og stóðu fyrir útvarpi FS á
dögunum sem fékk mikla og verð-
skuldaða áheyrn. Auk þess verða
einhverjir fleiri með í að móta
dagskrána.
■ Njarð-
víkur
stúlkur
vinsælar
í þau þrjú ár sem keppnin
um titilinn Ungfrú Suðurnes
hefur staðið hefur það tvi-
vegis komið fyrir að stúlka úr
Njarðvíkum hefur verið valin
vinsælasta stúlkan. í fyrstu
keppninni sem haldin var á
Glóðinni var það Rut Júns-
dóttir sem titilinn hlaut og í
keppninni í Glaumbergi á
dögunum var það önnur
Njarðvíkurmær sem hlaut
þennan titil en það var Mar-
grét Örlygsdóttir. Það má því
sannarlega segja að stúlkur
úr Njarðvíkum hafi verið vin-
sælar í keppnum þessum.
M Maður
handtekln
þegar hann
hugðist fram-
seija falsaðri
ávísun
GRINDAVÍK: Lögreglan í
Grindavík handtók á föstu-
daginn mann sem var að
reyna að skipta faisaðri ávís-
un úr stolnu ávísanahefti. Var
hér um að ræða mann sem
kem á leigubifreið innan úr
Reykjavík og hugðist skipta
ávísuninni í Sparisjóðnum í
Grindavík. En þar komst upp
um manninn og var kailað á
lögregluna sem handtók
hann eins og áður sagði. Var
hann síðan afhentur Rann-
sóknarlögreglunni sem mun
taka málið til frekari rann-
sóknar. Maður sá sem hér um
ræðir mun vera sá sami og
dvaldi í viku á Holliday Inn
hótelinu i Reykjavik án þess
að greiða fyrir og sagt var Srá
i biöðunum á sínum tíma.