Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 23.02.2024, Page 3
Framkvæmdafréttir nr. 729
1. tbl. 32. árg.
3
Prófanir á Íslandi
Vegagerðin hefur sett upp tvo færðarskynjara frá sitt
hvorum framleiðandanum (Teconer og Vaisala)
á einn eftirlitsbíl á Suðurlandi sem oft er á ferð um
Hellisheiði og uppsveitir Árnessýslu. Skynjararnir eru
staðsettir þannig að þeir nema færð og ástand í annars
vegar hægra og hins vegar vinstra hjólfari. Skynjararnir
geta greint færð á vegyfirborði, s.s. þurrt, blautt, snjór,
krap, ís. Einnig er mældur hiti vegyfirborðs og í lofti,
auk ályktunar um viðnám eða hálkuaðstæður (frá 0
til 1) frá hröðunarnema. Gögn eru send frá mælitæki í
síma á skjáborði sem birtir niðurstöður, tekur myndir af
vettvangi og sendir loks gögnin í skýið þar sem hægt er
að nota gögnin til ákvarðana um aðgerðir.
Vegagerðin hefur einnig fengið aðgang að tilteknum
gögnum frá bílum framleiðandans Volkswagen
gegnum fyrirtækið NIRA. Þessi gögn eru hálkuástand,
veghiti og notkun rúðuþurrka (úrkoma). Enn sem
komið er eru gögnin takmörkuð en í nánustu framtíð
mætti nýta gögnin til að sýna stöðu og meta árangur
vetrarþjónustuaðgerða.
Um NordFoU
NordFoU er samstarfsvettvangur vegagerða
Norðurlanda í rannsóknum. Þátttökulöndin eru
Finnland, Svíþjóð, Noregur, Danmörk, Ísland og
Færeyjar. Markmið NordFoU er að vinna sameiginlega
að ákveðnum rannsóknarverkefnum og fjármagna þau
sameiginlega úr sjóðum sínum. Nánari upplýsingar á
www.nordfou.org/.
↑
Aðstæður á vegum geta verið erfiðar á veturna og þá skiptir máli að
vaktstöð Vegagerðar hafi góð gögn að byggja á.
↙
Tveir færðarskynjarar frá sitt hvorum framleiðandanum hafa verið
settir upp á eftirlitsbíl Vegagerðarinnar.
↓
Niðurstöður frá Teconer færðarskynjaranum.