Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 23.02.2024, Page 14
14 Framkvæmdafréttir nr. 729
1. tbl. 32. árg.
Jarðgöng: Eldur í bíl í
Hvalfjarðargöngum
Eldur kviknaði í bíl í Hvalfjarðargöngum þann
11. október á síðasta ári. Valgarður
Guðmundsson, sérfræðingur hjá Vegagerðinni,
fór yfir atburðarrásina á morgunfundi
Vegagerðarinnar um þjónustu og rekstur
jarðganga sem haldinn var í janúar 2024.
←
Valgarður
Guðmundsson
„Vaktstöðin í Suðurhrauni fékk fyrstu tilkynningu
um kyrrstæðan bíl í Hvalfjarðargöngum í gegnum
atvikamyndavélakerfið klukkan 15:49. Eldurinn hafði
líklega kviknað eitthvað áður en bíllinn stoppaði,“ lýsir
Valgarður, en um var að ræða bensínbíl frá árinu 2015.
Fyrsta viðbragð ökumanns og farþega var að stökkva
út, sækja slökkvitæki í skottið á bílnum og reyna að
slökkva í logunum, en eldurinn breiddist hratt út og
bíllinn varð brátt alelda.
„Um leið og tilkynningin barst hafði starfsfólk
vaktstöðvar samband við Neyðarlínuna og lokaði
göngunum beggja megin. Síðan var send tilkynning til
ökumanna í göngunum í gegnum útvarpið um að rýma
göngin, en kerfi Vegagerðarinnar getur tekið yfir FM
útvarpssendingar,“ útskýrir Valgarður.
Mengunarnemar í göngunum námu mikla mengun
frá eldinum og við það keyrðust blásarar sjálfkrafa á
fullt. „Það er náttúrulegur trekkur í gegnum göngin til
suðurs og því er oftast betra að beina blásurum í þá
áttina líka. Reykurinn kemur því út úr gangamunnanum
Reykjavíkurmegin.“
↓
Reykinn lagði út um gangamunnann
sunnan megin. Bæði náttúrulegur trekkur
og blásarar sáu til þess að reykinn lagði út
norðan megin.