Bæjarblaðið Jökull - 08.03.2012, Side 8
Stóra upplestrarkeppnin var
haldin í miðrými Grunnskóla
Grundarfjarðar s.l. fimmtudag
og voru 8 upplesarar að þessu
sinni. Stóðu nemendur sig með
stakri prýði og frábært að sjá
hversu miklum framförum þeir
voru búnir að ná á þeim tíma,
frá því byrjað var að æfa textana.
Í dómnefnd sátu Kolbrún
Reynis dóttir, Ragnheiður Þór
arins dóttir og Sólrún Guðjóns
dóttir og voru þær ekki öfunds
verðar af því starfi. Nemendur
byrjuðu á að lesa upp dagbókar
færslur úr bókinni Dagbók
Berts eftir Anders Jacobsson og
Sören Olsson, stórskemmtilegir
textar og ánægjulegt eyrna
konfekt. Í seinni umferð lásu
svo nemendur ljóð að eigin vali
sem gekk afar vel hjá þeim.
Boðið var upp á kaffi og með
því í hléi á meðan dómnefndin
réði ráðum sínum. Kynnti
Sólrún síðan úrslitin en þeir
nemendur sem komust áfram á
lokahátíð keppninnar, sem
verður haldin 15. mars í Snæ
fellsbæ, voru Álfheiður Inga
Ólafsdóttir, Krisbjörg Ásta
Viðarsdóttir og Svana Björk
Steinarsdóttir. Fengu þær
gjafabréf frá Hrannarbúðinni í
verðlaun sem og allir fengu
þátttökuviðurkenningu. Þetta
er alltaf jafn skemmtileg stund
og notarleg.
þg
Nú um helgina var haldið
saumanámskeið á Hellissandi,
voru þar samankomnar 11
konur á öllum aldri ásamt
tveimur leiðbeinendum.
Námskeiðið stóð yfir frá
föstudagskvöldi til sunnudags
og það voru ófáir metrarnir af
efni, tvinna og fleiru sem urðu
að fallegum flíkum s.s.
fimleikabolir, kjólar, buxur og
peysur. Saumavélarnar gengu
eins og í verksmiðju enda var
mikið hlegið og saumað, í lok
námskeiðsins voru flíkurnar
orðnar rúmlega 40 sem búið
var að sníða og sauma.
Leiðbeinendur voru Laufey
Jónsdóttir klæðskerameistari
og Selma Gísladóttir kjóla
meistari er þetta í annað skipti
sem þær koma hingað og mjög
líklegt að þær komi aftur.
þa
Upplestrarkeppni
Saumanámskeið
Auglýsingaverð í Jökli
Heilsíða í svarthv. 21.600
Hálfsíða í svarthv. 13.800
1/4 í svarthv. 9.000
1/8 í svarthv. 6.500
1/16 í svarthv. 4.000
Heilsíða í lit 44.100
Hálfsíða í lit 29.500
1/4 í lit 20.600
1/8 í lit 13.100
1/16 í lit 8.500
Verðin eru með 25,5% vsk
Síðasta helgi var frekar róleg
í tippinu þannig séð, að það
urðu svo til engar breytingar á
töflunni. Þó náðu sumir
góðum spretti eins og Anton
Ö sem skoraði 11 stig og
færðist upp um 2 sæti. Aðrir
hópar voru ekki að gera neina
rósir í skori eða hala sig upp
töfluna. Púkarnir virðast vera á
niðurleið þeir fara niður um 2
sæti. Sjóarar leiða ennþá með
9 stig á næsta hóp sem er
Grobbelear. Það kom enginn
út úr hafnarskúrnum þessa
vikuna með heitstrengingar en
samt náðu Bryggjupollarnir að
færa sig upp um 1 sæti.
Meistararnir féllu niður um 2
sæti og Pétursson náði að
halda sínu 18. sæti.
Nú 1. umferðin í Bikar
keppninni var spiluð um
helgina og þar bar helst til
tíðinda að Sverrir Karls ásamt
vinkonu sinnu unnu félagana í
Bryggjupollum. Nú pípararnir
í S.G. Hópnum og Frænkunni
ásamt félögum mættust og
urðu jafnir og þurfa því að fara
í umspil ásamt N1 og
Meisturunum og Sæstjörnunni
og Pétursson. Vonandi verða
meiri sveiflur um næstu helgi.
Kær kveðja
Gummi Gísla
Fátt um framfarir
í tippinu