Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 04.04.2013, Side 6

Bæjarblaðið Jökull - 04.04.2013, Side 6
Reglur Tónlistarskóla Snæfellsbæjar 1) Eingöngu er hægt að sækja um skólavist á auglýstum tíma. 2) Eingöngu er hægt að gera breytingar á skólavist ef mjög mikilvægar ástæður liggja fyrir, eins og t.d. flutningur eða veikindi. 3) Greiða þarf fyrir hverja önn í tónlistarskólanum á réttum tíma. Þó nemandi hætti í skólanum eftir að önnin er byrjuð þá þarf engu að síður að greiða fyrir alla önnina. 4) Ef barn fær inngöngu í tónlistarskólann skuldbindur það sig til að fara í einu og öllu eftir því sem tónlistarkennarinn ætlast til af því. Barnið skuldbindur sig einnig til að mæta á alla tónfundi, tónleika og í vorpróf. Af og til getur einnig verið nauðsynlegt að vera með auka æfingar og verður barnið að skuldbinda sig til að mæta á þær ef kennari fer fram á það. 5) Barnið skal mæta í alla tónlistartíma vetrarins nema eitthvað mikilvægt komi í veg fyrir það, eins og t.d. veikindi. Skal þá undantekningarlaust láta tónlistarkennara vita og fá leyfi frá honum ef ástæðan er önnur en veikindi. 6) Tónfræði er kennd öllum að kostnaðarlausu fyrir nemendur 3. – 10. bekkjar. Þetta er mikilvægt fag og nauðsynlegt að börn mæti í þá tíma sem þeim stendur til boða. 7) Börn þurfa alltaf að mæta í tíma með bláu æfingabókina sem þau fá í byrjun skólaárs. Í hverjum tíma skrifar tónlistarkennari í bókina og gott væri að foreldrar læsu bókina til að fylgjast með framgangi barna sinna. 8) Mikilvægt er fyrir tónlistarþroska barnsins að það æfi sig heima. 9) Tónlistarmenntun kostar peninga og mikilvægt er að foreldrar fylgist með því hvernig börnum þeirra gengur í sínu tónlistarnámi. Foreldrar verða að sýna áhuga og bera ábyrgð á námi barna sinna. 10) Tónlistarnám er ekki skyldunám. Einmitt þess vegna er það mikilvægt að í tónlistarskólann komi aðeins þeir sem hafi áhuga á að læra tónlist og þeir sem eru tilbúnir til að fara eftir reglum tónlistarskólans. Tónlistarskólastjóri

x

Bæjarblaðið Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.