Bæjarblaðið Jökull - 04.04.2013, Blaðsíða 7
Oft er sagt að landbúnaður sé
ein af meginatvinnugreinum
Íslendinga. Það er hárrétt en
segir þó alls ekki alla söguna.
Sveitirnar og atvinnustarfsemin
þar er grundvöllur byggðar í
landinu því að þorp og bæir án
blómlegra sveita eru oftast í
vörn og alls kyns vandræðum.
Hagsmunir og lífskjör fólksins í
sveitunum og þorpunum og
bæjunum eru nefnilega afar
mikið og margvíslega sam tvinn
uð og tengd.
Sem betur fer vill margt ungt
og kraftmikið fólk búa í sveit
unum og þorpunum og ala þar
upp börnin sín og sér réttilega í
því alls kyns ávinning og
lífsgæði. En einhæft atvinnulíf
og fá atvinnutækifæri í sveit
unum og þorpunum standa
þeim fyrir þrifum. Þessu þarf
að breyta. Það er afar mikilvægt
að stjórnvöld styðji við fjöl
breytni en ýti ekki undir fá
breytni og einhæfni. Skjóta þarf
mörgum og styrkum stoðum
undir atvinnustarfsemi í sveit
um og þar teljum við í Bjartri
framtíð að séu mjög mikil tæki
færi.
Samfélagið hefur ákveðið að
styðja við landbúnað með bein
greiðslum sem lækka verð til
neytenda og tryggja tekjugrunn
bænda. Styrkir í landbúnaði
hafa að langmestu leyti runnið
til framleiðslu á mjólk og sauð
fjárafurðum. Beingreiðslurnar
eru framleiðslutengdar. Til þess
að fá þær þarf því að framleiða.
Mikilvægt er að draga úr þessari
tengingu og breyta bein greiðs
lum í búsetustyrki þar sem
áhugi og tækifæri eru hjá
bændum til að beina kröftum
sínum að öðru og byggja um
leið upp önnur atvinnutækifæri
fyrir sjálfa sig og aðra. Styrkirnir
mega ekki verða til þess að
tækifærin fjölmörgu í sveit
unum verði síður nýtt. Bóndi
sem býr með golfvöll er sveit
inni mikils virði ekkert síður en
sá sem býr með sauðfé og báðir
hagnast á breyttu fyrirkomulagi.
Sá sem rekur golfvöllinn hefur
af því tekjur og sauðfjárbóndinn
getur því framleitt meira.
Við í Bjartri framtíð viljum
skoða hlutina í nýju ljósi.
Stjórnvöld eiga að styðja við
nýjar hugmyndir, framtak og
kjark. Lítil breyting með fjöl
breytni að leiðarljósi getur
skapað ný tækifæri án þess að
ógna því sem fyrir er.
Árni Múli Jónasson og
G. Valdimar Valdemarsson.
Höfundar eru í 1. og 2. sæti á lista
Bjartrar framtíðar í NV-kjördæmi.
Björt framtíð í sveitum og þorpum